Morgunblaðið - 03.08.1960, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvik’udagur 3, ágúst 1.96.0
«r
Týndir
Washington, 2. ágúst (NTB)
TVEIR ungir Bandaríkja-
menn, sem starfa við upp-
lýsingaþjónustu hermáiaráðu
neytisins í Washington, hafa
horfið. Bandaríkjamennirnir,
Wiliiam Martin og Vernon
Mitchell, fóru í siumarleyfi í
lok júnímánaðar sl. og sögð-
ust þá ætla til Kyrrahafs-
strandarinnar.
Rannsókn hermálaráðuneyt
isins hefur leitt í ijós að þeir
fóru aldrei til Kyrrahafs-
strandarinnar, en fóru með
bandariskri flugvél til Mexi-
kó hinn 25. júlí. Talið er
sennilegt að þeir hafi farið
þaðan tii Havana á Kúbu.
Martin og Mitchell eru báðir
stærðfræðingar og hafa unn-
ið við upplýsingadeild her-
málaráðuneytisins frá því ár-
ið 1957.
'y~NA /5 hnútar |
SV 50 hnúfar
X Snjókoma
9 05i
\7 Skúrir
K Þrumur
Vsra'bi.
1
Kuldaskll
Hitaski/
H Hm»
L Lrngi
I GÆR var hæg suðlæg átt hér
á landi, léttskýjað á Austfjörð-
um og Norðausturlandi, en
dumbungsveður með nokkurri
rigningu á vestanverðu land-
inu. í innsveitum norðanlands
varð víða hlýtt síðdegis. Klukk
an þrjú voru 19 stig á Akur-
Tvö norsk sildarflutningaskip
hefja síldarflutn-
inga af austur-
miðum
Síld fyrir austan
— dautt nyrðra
SÍLDARVERKSIVÍIÐJURN-
AR á Hjalteyri og Krossa-
nesi hafa tekið á leigu tvö
norsk skip til síldarflutninga
af fjarlægum miðum til verk-
smiðjanna. Kom það fyrra,
„Aska“, til landsins sl. laug-
ardag og hófst löndun í það
á Seyðisfirði í gær. En hitt,
„Basto“, hefur sennilega lagt
af stað til íslands í gær og
getur þá verið komið til Seyð-
isfjarðar eftir 2—3 daga.
Eru þar með hafnar fyrstu til-
raunir til að láta sérstök flutn-
ingaskip taka við síldinni af
síldveiðibétunum og losa þó
þannig við töfina, sem af þvi
leiðir af þurfa að sigla langar
leiðir til verksmiðjanna. Hafa
verksmiðjurnar styrk frá Al-
þingi og frá Í'iskimálasjóði til
þessara tilrauna.
Á áttunda tímanum i gær-
kvöldi fór „Aska“ að taka á móti
síid á Seyðisfirði. Fjögur skip
höfðu þá tilkynnt, að þau myndu
losa um horð í skipið, sem getur
athafnað tvo samtímis. Skipin
voru Heimir SU með 850 mál,
Sunnutindur SC með 600, Stíg-
andi ÓF með 500 og Helga ÞH
með 500.
Taka 3500 mál hvert
„Jolita“, skipið sem upphaf-
lega hafði verið leigt til þess-
ara síldarflutninga í sumar tafð-
ist í viðgerð og þar sem líða tek-
ur á síldarvertíð flaug Vésteinn
Guðmundsson, verksmiðjustjóri
á Hjalteyri utan um miðjan mán-
uðinn og fékk „Aska“ í staðinn,
en það hefur fram að þessu ver-
ið í síldarf 1 utningum fyrir Norð-
menn.
I viðtali við blaðið í gær
kveðst Vésteinn áætla að hvort
skip geti flutt 3500 mál síldar.
Er ætlunin að þau liggi í land-
vari fyrst um sinn þar sem síld-
ar er helzt von, og verði landað
yfir í þau með „grabba" úr síld-
veiðibátunum. Meðan síldin er
fyrit austan jand, mun ferðin frá
síidarverksmiðjunum eftir síld-
inni alltaf taka þrjá sólarhringa,
jaínvel þó flutningaskipin fái
strax fullfermi er á miðin er
keuuið.
Aðeins komin 14500 mál
Til samanburðar má geta þess
að afköst Hjalteyrarverksmiðj-
unnar eru 9000 mál á sólar-
hring, ef allar vélar eru í gangi,
og full afköst Krossanesverk-
smiðjunnar upp undir 5000 mál
á sólarhring. 1 sumar er Hjált-
eyrarverksmiðjan þó aðeins bú-
in að fá 14600 mál síldar. ^
A báðum skipunum verða
norskar áhafnir, en Finnur
Daníelsson, skipstjóri, er um
borð í „Aska“ og sér um af-
greiðsluna.
£
eyri, 17 á Egilsstöðum, 16 í
Möðrudal og 15 á Sauðárkróki.
Á Seyðisfirði a.m.k. komst
hitinn upp í 20 stig.
í sunnanverðri Skandínavíu
var hlýtt meginlandsloft, sem
komið var austan yfir Eystra-
salt, f Osló var 27 stiga hiti og
Stafangri um hádegið, eins og
sjá má á veðurkortinu. í Mið-
Svíþjóð var þrumuveður.
Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi:
SV-land til Norðurlands og
SV-mið til Norðurmiða: Hæg-
viðri ,skýjað, en úrkomulítið.
NA-land og Austfirðir, NA-
mið: Hægviðri, úrkomulaust
og víða léttskýjað.
SA-land, Austfjarðamið og
SA-mið: Hægviðri, skýjað en
víðast úrkomulaust.
Höfðu góð áhrif
FULLYRÐA má að hinar stöðugu
orðsendingar til ökumanna, um
verzlunarmannahelgina, hafi
haft góð áhrif á umferðina á veg-
unum. Engin meiriháttar óhöpp
urðu. Og hjá umferðardómstóln-
um hér í Reykjavík, lá ekki fyrir
neinn tiltakanlegur fjöldi ákæra
fyrir of hraðan akstur eða þess
háttar, er dómstóllinn tók aftur
til starfa í gærmorgun.
Nei, það hefur oft verið meira
að gera eftir venjulega helgi,
sagði einn af starfsmönnum
dómsins í gær í símtali við Mbl.
I GÆRDAG fréttist um vaðandi
síldartorfur 35—40 mílur suð-
austur af Gerpi á Reyðarfjarðar-
djúpinu. Nokkur skip höfðu þeg-
ar kastað, þegar síðast fréttist, og
tilkynnt komu sína tii lands með
saltsíld.
I gær var nokkur veiði austan-
lands, en fyrir norðan mátti alit
heita dar.tt.
★
NESKAUPSTAÐUR, 2. ágúst. —
17 skip komu hér að í dag með
um 7000 mál og tunnur. Þessi
voru aflahæst: Hjálmar NK 800
mál og tunnur, Stefán Ben NK
700 mál og tunnur, Srnári TH 600
mál og Húni HU frá Skagaströnd
560 mál.
Svo mikil síld hefur borizt að
undanförnu, að síldarverksmiðj-
an hefur ekki undan að bræða.
Eru því þrærnar næstum alltaf
fullar. Gífurleg vandræði eru
með geymslu á mjöli, þar eð
skemma verksmiðjunnar er allt
of lítil, svo að mjölinu hefur orðið
að koma fyrir víðs vegar í bæn-
um, þ. á. m. í húsum, sem eru
í smíðum, svo sem Félagsheimil-
inf og Gagnfræðaskólanum. Þetta
hefur að sjálfsögðu mikinn auka-
kostnað í för með sér ,sem varla
var á bætandi vegna hins lága
Á FÖSTUDAGINN var komu
nokkrir ferðagarpar frá Húsa-
vík, Akureyri og Mývatnssveit
og venjast loftslaginu — efi
ekki lengri tíma. En það var
frólegt og gagnlegt að kynn-
ast því sem fyrir augun bar
í þessari för.
— Ertu með annað skákmót
í huga?
— Nei, sagði Friðrik.
Og hér skýrði hann frá þvi
sem til tíðinda telst:
— Ég ætla að átta mig dá-
lítið á hlutunum, — um fram-
tíð mína hef mjög í hyggju að
að hvíla mig á skákíþróttinni
— helzt algjöra hvíld.
— Þú ætlar að gefa þig að
lögfræðinni?
Ég er að visu innritaður í
lögiræði við háskólann, en
um þetta allt þarf ég að gefa
mér tíma til að hugsa gaum-
gæfilega. Annars gæti ég
verið að tefla á ýmsum mót-
um, t. d. Olympíumótinu,
fram til næstu áramóta. En
nú má ég ekki vera að þessu,
þarf að sækja pabba. — Vertu
blessaður.
Þar með var hinn 25 ára
gamli stórmeistari rokinn af
stað. ,
mjölverðs. Stór mjölskemma er
í smíðum, en ekki var hægt að
hefja smíði hennar, fyrr en mjög
seint, vegna þess hve erfiðlega
gekk að fá lán til hennar. Sagt
er, að enn reynist erfitt að afla
lánsfjár til að Ijúka byggingu
hennar, en leysist þetta vandamál
ekki fljótlega, má búast við því,
að verksmiðjureksturinn dragist
nokkuð saman eða stöðvist jafn-
vel alveg, því að allir mjöl-
geymslustaðir, sem til greina
gætu komið, eru að fyllast.
Lýsisgeymar verksmiðjunnar
eru líka næstum fullir, en í dag
eru hér 2 skip, sem taka síldar-
lýsi. Það er norskt skip, sem
tekur um 200 tonn og Kyndill,
sem tekur um 650 tonn. Lýsið
verður flutt til geymslu í Vest-
mannaeyjum. — S.L.
Aðrar fréttir
Á Seyðisfirði komu 4 bátar með
alls 2450 mál í gær (þriðjud.).
Það voru Heimir, Sunnutindur,
Stígandi og Helga. Síldarflutn-
ingaskipið Aska tók við þeim afla
handa Eyjafjarðarverksmiðjun-
um (sjá frétt annars staðar í
blaðinu). í gær var saltað í 400—•
500 tunnur. Allar þrær eru fullar.
Frh. á bls. 18.
úr öræfaferð. Höfðu þeir meðal
annars farið yfir Þjórsá a
gúminíbáti.
29. júlí kom Ferðafélag Húsa-
víkur úr sjö daga ferð um há-
lendið. Farið var suður Bárðar-
dal og um Sprengisand í Jökul-
dal í Tungnafellsjökli. Þaðan
var haldið suður að Þjórsá og
farið yfir hana á gúmmíbáti
skammt fyrir norðan Eyvindar-
ver. Síðan var gengið vestur að
Arnarfelli hinu mikla við Hofs-
jökul og gengu flestir leiðang-
ursmenn á fellið. Uppi á fells-
brún hittu þeir hóp af ófleygum
gæsum, sem nutu hins fagra út-
sýnis þaðan. Sólskin var og svo
mikill hiti þarna, að fólkið gekk
eins léttklætt og kostur var a
velsæmis vegna. Frá Þjórsá var
farið að vatnaskilum í Vonar-
skarði og þaðan um Ódáðahraun
hjá Trölladyngju að Öskju og í
Herðubreiðarlindir, en þar var
gist í hinu ágæta sæluhúsi, áður
en haldið var heim um Mývatns-
sveit. Nokkrir Akureyringar og
Mývetningar voru með í för
Húsvíkinga. Aðalhvatamaður
þess, að farið var á Arnarfell,
var Jón Sigurgeirsson frá Hellu-
vaði. Hafði hann með sér gúmmi
bátinn og ferjaði yfir Þjórsá.
Einnig fór hann og 3 Akureyr-
ingar á bátnum yfir Jökulsá í
Krepputungu. —■ Þátttakendur
voru mjög ánægðir með ferð-
ina, þótt nokkuð rigndi norðan
jökla. — Jóhannes.
- RB-47
Frh. af bls. 1
bandaríska sendiiherrans í
Moskvu.
Sovétríkin hafa áður sent
Bandaríkjunum tvær orðsend-
ingar vegna þessa atburðar,
hinn 11. og 15. júlí, þar sem
borið var á móti þeirri ásökun
Bandaríkjanna að flugvélin hafi
verið á flugi yfir opnu útíhafi.
Tveir af sex manna áhöfn vél-
arinnar eru á lífi, og segja Rúss-
ar að þeir, verði dregnir fyrir
dóm fyrir brot á rússneskiun
lögum.
0 0 0 0 0*0 0 '0 0:0 0..0 0;0,0 0 0000t& 0.0.0
Friðrik œtlar að
hvíla sig á skák
FRIÐRIK Ólafsson stórmeist-
ari, er kominn heim úr S-
Ameríkuför sinni, — af skák-
mótunum í Mar del Plata og
síðast í Buonos Aires.
Ég flýtti mér heim. til þess
að ná í sumarið því þar suður
frá var vetur ríkjandi, að vísu
nokkuð öðru vísi, en þegar
Vetur konungur ríkir hér hjá
okkur, sagði Friðrik, er tíð-
indamaður frá Mbl. hitti hann
í gærdag úti í Austurstræti,
í rigningunni.
— Rigndi hann ekki alltaf
í Buones Aires úr því þar var
vetur?
— Nei, það rigndi ekki mik-
ið?
— Og hvað er um skákför-
ina að segja Friðrik?
— Það geta ýmsir þátttak-
enda verið óánægðari en ég.
Þar suður frá er loftslagið
allt annað en ég hef áður
kynnzt og líklega þarf maður
að vera þarna í eitt ár til
þess að venjast því. Það verk
aði þannig á mann að þreytu
gætti fljótt og eitthvert slen
yfir manni, en þetta stafaði
frá röku loftslagi.
— Og hvað var nú bezta
skákin í suðurförinnx?
__ Ég hef ekki stúderað
þær svo að ég geti um það
sagt. En beztu skákina mína
tel ég þá er ég telldi a dögun-
um við Benkö.
— Og hvaða stórmeistari er
þér minnisstæðastur frá þessu
móti?
Það er Reshevsky. Hann er
eitilharður. Hann og þeir sem
efstir voru á mótinu voru vel
að sigrinum komnir og úrslit-
in sanngjörn.
— Ætli skákáhugi sé al-
mennur í Suður-Ameríku?
— Nei, ekki mun hann
vera að neinu ráði. Það eru
„gamlir Evrópumenn", sem
einkum ber á í Argentinu, þó
að skákkunnátta sé svo al-
menn að nærri því hver
maður þekkir mannganginn.
— Víða flækist landinn, —
ekki hefur þú hitt neinn í
þínu langa ferðalagi?
— Jú, ég hitti Hafnfirðing
einn sem hefur búið í Argen-
tínu í nokkra áratugi, í bæn-
um Rosario við Plata-fljótið,
og heitir Ingimúndur Guð-
mundsson, 55 ára, kona hans
er spænsk. Hann er bókhald-
ari í verksmiðjuskrifstofu og
er eitthvað skyldur Emil
Jónssyni ■ ráðherra. — Þá var
ég á heimili verksmiðjueig-
andans Gravenhorst í Buenos
Aires meðan ég var þar, en
kona hans er íslenzk, Erla
Magnúsdóttir.
— Og hvernig líkaði þér
við fólkið?
— Það er að öllu leyti svo
ólíkt okkur Evrópu mönnum,
að það tekur sennilega jafn-
langan tíma að átta sig á því
+ + <*****■*<++
Á gúmmíbáti
yfir Þjórsá