Morgunblaðið - 03.08.1960, Side 11

Morgunblaðið - 03.08.1960, Side 11
Miðvik'udagur 3. ágúst 1960 MORGUNBLAÐIÐ 11 Eiðurinn er æðsta heit Ræða Ásgeirs Asgeirssonar forseta íslands við embættis- innsetningu 1. ágúst Góðir íslendingar! ÉG HEFI nú undirritað eiðstaí og veitt kjörbréfi viðtöku. Mér er það fagnaðarefni, að byrja nýtt kjörtímabil án þeirra á- taka, sem jafnan fylgja kosn- ingum. Af hræðrum huga þakka ég það traust, sem mér er sýnt, og þann góða hug í garð okkar hjóna, sem við sízt getum án verið. Ég heiti því enn, að gera mér far um að rækja forseta- störfin til heilla fyrir land og Þjóð. Allsherjargoðinn vann í heiðnum sið eið að baugi, kristn- ir lögréttumenn síðar bókareið, en sá eiður, sem mér var staf- aður, hljóðar á þessa leið: „Ég undirritaður, sem kosinn er for- seti Islands um kjörtímabil það, er hefst 1. ágúst 1960 og lýk- ur 31. júlí 1964, heiti því, að viðlögðum drengskap mínum og heiðri, að halda Stjórnarskrá Lýðveldisins Islands“. Þennan eið vinna þeir allir, sem fara með umboð þjóðarinnar á Al- þingi, í stjórn landsins, dómara- stöðu og forsetaembætti. Form- ið skiptir ekki aðalmáli, hvort heldur er unninn lögeiður að baugi, eiður með hönd á helgri bók eða drengskaparheit. Eið- urinn er hið hæsta heit, sem heiður manns leyfir ekki að sé rofið. Vér höfum, allir þeir sem ég áður taldi, heitbundið oss til „að halda Stjórnarskrá Lýðveldisins íslands". Ég veit þess ekki dæmi, að einn eða neinn hafi færzt undan þeirri heitstrenging. Vissulega er það skýr vottur þess, að vér Islend- ingar séum einhuga um stjórn- skipun lýðveldisins í aðaldrátt- um. Er það mikill styrkur og stoð fámennrar þjóðar, sem ný- lega hefir endurheimt sitt full- veldi. Að sjálfsögðu hindrar þetta drengskaparheit engan frá því að berjast fyrir breytingum á stjórnskipunarlögum landsins. En það bindur alla jafnt við að fara að lögum eftir réttum þing- ræðisreglum í baráttu fyrir breytingum og umbótum. Ég heíi ekki orðið þess var, að komið hafi fram tillögur um breyting- ar, sem varða grundvallaratriði stjórnskipunarinnar. Tillögur um takmörkun eða afnám kosn- ingaréttar væru þess eðlis. Höf- uðátökin um stjórnskipun lands- ins hafa síðustu þrjátíu árin staðið um skipun kjördæma og kosningaréttar, en ætíð stefnt til jöfnunar, en ekki ójafnaðar. Ný- lega hefir þessi deila verið leyst til nokkurar frambúðar, að ég ætla. Og á ég þó ekki við, að aldrei þurfi að lagfæra það, sem úr skorðum gengur. Löggjafar- starfi frjálsra manna er aldrei lokið til fulls. Höfuðbreytingin á stjórn- skipulagi íslands frá því er stjórnarskrá var gefin, er, eins og öllum er ljóst, endurreisn lýðveldis árið 1944. Um það var íslenzk þjóð einhuga, þrátt fyrir ágreining um aukaatriði. En þær raddir heyrast fram á þennan dag, að lítt sé við un- andi, hvað dregizt hefur, að færa stjórnskipunarlögin í heild til samræmis við lýðveldis- stofnunina. Ég fæ ekki betur séð, að lengur þurfi að tefja, nú, þegar kjördæmamálið er leyst, og rutt úr vegi annarra umbóta, sem minni ágreining valda. ■ Ég hefi fullyrt ,að lýðræði og þingræði, sem er grundvallar- regla íslenzkrar stjórnskipunar, standi hér föstum fótum. ísland hefir reynzt oss „farsælda Frón“ frá því þjóðin öðlaðist fullveldi árið 1918, og lengur þó. Sama verður, því miður, ekki sagt um allar þjóðir, sem fengu skamm- gott fullveldi á þeim árum. Nú fer önnur frelsis- og full- veldisalda um heiminn, og er þess óskandi að hinar mörgu nýlenduþjóðir, sem nú eru leyst- ar úr böndum, reynist vaxnar þeirri ábyrgð, sem frelsinu fylgir. Nýlendupólitík átjándu og nítjándu aldar var svartur blettur á hinum hvíta kyn- stofni, og hefur þó snúizt mjög á betri veg, víðast hvar, á þess- ari öld. Það, sem mestu veld- ur er, að hugarfarið er breytt frá því sem áður var, á ein- veldis- og landvinningatímum. Stórveldi, sem áður voru misk- unnarlítil, vilja hvorki né treystast lengur til að halda niðri gulu og blökku fólki með vopnavaldi. Þéssi alda fer nú með miklum þyt og hraða um allar álfur, og finnst mörgum nóg um. En það er erfitt að dæma um það, hvenær þjóð sé búin að ná fullum þroska til sjálfstjórnar, og vísast að svo verði ekki fyrr en eftir að öll tjóður eru leyst. Vér megum Forseti íslands flytur ræðu sina eftir embættistökuna. Til hægri eru forsetafrú, forsætisráð- herra, forseti hæsjtaréttar og íorseti Sameinaðs þings. ekki heldur halda, að vort vest- rærta skipulag henti öllum bezt, hversu fjarskyldir sem eru. Því minnist eg þessa, að Is- land var einnig svokölluð ný- lenda um langt skeið. En vér erum þjóð, sem á sögu, sem vér kunnum að rekja. Vér höfum ríka ástæðu til að þakka, frið- samlega þróun vorra mála fram á þennan dag. Vér höfum rika ástæðu til að lofsyngja forfeður vora og örlög, svo sem þjóð- skáldin hafa gert. Lýðræði og þingræði er hér ekki innfluttur, erlendur varningur. Þó hin nor- ræna þingstjórn og eigið lög- gjafarvald gengi hér til viðar um stund, varðveittist betur 1 Englandi og yngdist upp aftur í frelsisstríði Bandaríkjanna og með franskri stjórnbylting — þá tók krafan um endurreisn Al- þingis síðar lýðveldis með vorri þjóð á sig svip Úlfljóts og hins forna þjóðveldis. Þegar grafið var fyrir hornsteinúm nýrrar stjórnskipunar, kom niður á gamlan grunn, traustan og vel hlaðinn. Það er því, sér vér eig- um að þakka betri aðstöðu en ýmsar aðrar þjóðir, sem þó þrá frelsi jafn heitt. Hin fornu goðorð og þing svara til kjördæma. Goðunum var skylt að vernda hag og rétt sinna þingmanna, en þeim aftur, * * * * * » 0..,* 0 0 & 0 + * * 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0. heimilt, að segja sig í þing með öðrum goða, ef vanhöld yrðu á. Slíkt þegnfrelsi var áður ó- þekkt, og svarar til þess að geta kosið frjálst um fulltrúa til Al- þingis. Alþingi fór í upphafi með lög- gjafar- og dómsvald, þó það sé nú aðskilið að ráði erlendra stjórnspekinga. Þó er þing- mennska og dómarastarf ná- skylt, ef betur er að gáð og vel á að fara. Fyrir dómstól eru mál sótt og varin. Dómarinn er bundinn af gildandi lögum, en getur þó beitt þeim með lin- kind. Lög eru almenn og geta aldrei komið að fullu í stað mannúðar og vitsmuna. Á Alþingi eru mál einnig sótt og varin. Þá er lýðræði og þing- ræði hætta búin, ef menn missa trúna á það, að frjálsar, opin- berar umræður í blöðum, á mannfundum og Alþingi hafi nokkurt gildi. Alþingi setur lög, sem binda dómsvaldið að vissu marki, lög, sem fjalla um öll mannleg skipti, og lög til varn- ar áfellis eftir hegðun manns. Hver þingmaður er í senn mál- færslumaður og dómari. Mála- fylgjan má því aldrei kæfa dómgreindina, ef jafnvægi og réttlæti á að ríkja með þjóð- Því minna sem jb/ð talið um handritin ERIK ERIKSEN, fyrrver- andi forsætisráðherra Danmerkur, var einn vara- forseta Norðurlandaráðs- þingsins á dögunum. Erik- sen hefur setið á þingi frá 1933, varð landbúnaðar- ráðherra 1945 og síðar for- sætisráðherra. Hann er fæddur og uppalinn við landbúnað og á enn búgarð og dvelst á honum á sumrin. mótað þing ráðsins að þessu sinni, að það var haldið á Is- iandi. Fulltrúarnir hafa verið mjög ánægðir með veruna hér og viðtökur allar. Þá hafa far- ið fram mjög gagnlegar um- ræður um störf ráðsins og sam starf þess við ríkisstjórnirnar. hví fyrr fáið jbið jboi/ Ériksen er formaður vinstri flokksins danska, en hefur unnið mjög að samstarfi vinstri og hægri manna í Dan- mörku, en báðir þessir flokkar eru nú í stjórnarandstöðu. Við siðustu kosningar unnu vinstri menn mest á í Dan- mörku, og ef úrslit næstu kosn inga verða svipuð, er Eriksen líklegasta forsætisráðherra- efni að kosningum loknum. I þann mund sem Norður- landaráð sleit þingi hittum við Eriksen að máli í mann/þröng- inni á göngum Háskólans. — Hvað finnst yður hafa verið athyglisverðast við þetta þing Norðurlandaráðsins? '■— Það hefur fyrst og fremst — segir Eriksen, fyrrv. forsætis- ráðherra Dana Annars stóð þetta þing stutt og fjailaði ekki um mörg mál, enda skammt til nSesta þings ráðsins í Kaupmannahöfn. ★ — Er það rétt, sem heyrzt hefur, að nýjar kosningar muni verða í Danmörku í nóv- ember? — Þér skuluð spyrja Kamp- mann forsætisráðherra um það. — Ég hef spurt hann um það, en hann vildi ekki segja neitt um það. — Nei, hann heldur því leyndu. — En gerið þér ráð fyrir að kosningar fari fram í nóvem- ber? — Já, ég geri frekar ráð fyrir því. Nú hverfur Eriksen okkur í mannþrönginni, en á leið í bæ inn göngum við fram á hann meðfram tjörninni. Við spyrj um um handritin, en sem kunnugt er, hefur Eriksén ætíð verið vel viðmælanlegur í því máli. Hann segir. — Því minna sem talað er um handritin af Islands hálfu, því fyrr fáið þið þau. — Svo stanzar hann, horfin út yfir tjörnina og segir: — Hér er fallegt. Við skiljum við Eriksen þar sem hann stendur og horfir út yfir Tjörnina. j.h.a. inni. Allt hið sama má segja um framkvæmdavaldið, nema nauðsynin á að beita þar fullri dómgreind sé öllu ríkari. Með lögum skal land byggja. Þetta er norrænt spakmæli, ævafornt og ekkert nútíma víg- orð, — hið fyrsta boðorð þing- ræðisins. I nærfellt fjórar aldir höfðu Islendingar einir lög í stað konungs. Konungdæmi hefir hér aldrei staðið á inn- lendri rót, enda hentar það sízt fámennri þjóð. En lögin standa ekki sjálf eins og innantóm her- tygi, án nokkurs riddara. Ef erfðavenjur og hugarfar fólks- ins fyllir ekki í þau, þá er hætt við eyðing og ólögum. Því tekur það jafnan langan þroska- feril, að skapa traust lýðræði og öruggt þingræði. Þroski allr- ar alþýðu manna við langvar- andi sjálfstjórn í héraði og á allsherjarþingi er undirstaðan. Þingræði með almennum kosn- ingarétti, sem er hin eina trygg- ing til langframa gegn gerræði, verður ekki komið á með snöggri, blóðugri bylting. Til þess eru dæmin ljósust, og vér megum lagna því af heilum hug, að þurfa ekki að grípa til slíkra örþrifaráða. Þjóðin segir til um sinn vilja á fjögra ára eða skemmri fresti, og það hef- ur enginn minni hluti á Alþingi rétt að kalla sig þjóðina milli kosninga. úm stytting þessa kjörtímabils hafa aldrei komið tillögur. Vér treystum því, að sá hugsunarháttur hafi um ald- ir þroskazt með þjóðinni af nor- rænni og kristilegri rót, að stjórnskipun vor standi af sér hverja hryðju Það hugarfar og sá þjóðar- þroski, sem bezt tryggir lýð- ræði og þingræði, leiðir einnig af sér hæfilega dreifing auðs og valda. Ég segi hæfilegan jöfnuð, því það er staðreynd að dug og gáfum verður aldrei hnífjafnt skipt með mannfólk- inu. En hitt er jafnsatt, að auð- söfnun og valdagræðgi komast oft á það stig, að ekki er í neinu hlutfalli við neinn mannamun þó við berum saman þann, sem mest og hinn, sem minnst er gefið. Þessari hættu bandar hinn almenni kosningaréttur og þingræðið frá þjóðfélaginu. Það er almennt vitað og við- urkennt, að kjör einstaklinga og stétta eru hér á landi jafn- ari en meðal hinna stærri þjóða. Þó kemur mér ekki til hugar að fullyrða, að rétt sé hlutað. Á þessum vettvangi eru aðal- átökin. Lífsbaráttunni er aldrei lokið. Margur kann að vera gramur og bölsýnn, þegar hann ber sinn hag saman við hug- sjón sína. En ef við berum nú- verandi ástand saman við af_ komu almennings eins og hún var fyrir fimmtíu árum,> að ég ekki segi heilli öld, þá birtir fyrir augum og kemur í ljós, að vér erum á réttri leið, og getum verið ásátt við það þjóð- skipulag í höfuðdráttum, sem skilar slíkum árangri. , Stéttir verða jafnan við Iýði, Framh. á bls. 11

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.