Morgunblaðið - 03.08.1960, Qupperneq 13
Miðvikudagur 3. ágúst 1960
MORCrrnnr 4 01»
13
Skozkur ferðamað-
ur fórst í Brúará
Var að fylgja brezkum skátum
um hálendið
Þessi mynd er tekin fyrir nokkrum vikum úti i Skotlandi, þar sem þeir Stuart Mclntosh og
Gunnar Bjarnason eru að sýna Philiph, hertoga af Edinborg, eiginmanni Bretadrottningar, ís- |
lenzka hesta. Hertoginn er á milli þeirra á miðri myndinni. :
ÞAÐ hörmulega slys skeði
sl. laugardagskvöld, að skozk-
ur maður, Stuart A. Mc
Intosh, sem var leiðsögumað-
ur brezkra skáta í ferð þeirra
á hestum norður Kjöl, lenti á
hesti sínum í Brúará og beið
bana. Lík mannsins náðist
skömmu síðar en hesturinn
ekki fyrr en seinna ^g hafði
hann einnig drukknað.
Mr. Stuart Mclntosh var 31
árs að aldri, dýralæknir að
menntun, og rak búgarð í Skot-
landi, þar seiu hann hafði um
50 íslenzka hesta. Hann skipu-
lagði frá búgarði sínum hesta-
ferðir víða um Skotland, og
höfðu skátar þeir, sem hann nú
hugðist fylgja um öræfi íslands
fengið nokkra æfingu í slikum
ferðum hjá honum þar ytra. —
Stuart ferðaðist mikið hér á
landi á undanförnum árum og
var þaulvanur ferðamaður. —
Munu menn minnast þess, er
hann einn á ferð með tvo hesta,
lenti í gjá á Þingvöllum fyrir
fáum árum. Mr. Mclntosh læt-
ur eftir sig konu og eina dótt-
ur rúmlega 5 vikna gamla.
Leiðangur skáta
Nánari tildrög þessa atburðar
eru sem hér segir:
Sl. fimmtudagskvöld kom
hihgað til Reykjavíkur með flug-
vél Flugfélags Islands hópur
skáta undir fararstjórn Mr.
G. T. H. Burtons skólastjóra.
með honum var kona hans og
auk þess læknir leiðangursins,
en hitt voru 32 skátar frá Epson
College Senior Scout Troop í
Epson á Englandi. Hópurinn hélt
þegar til Þingvalla og með hon-
um Gunnar Bjarnason, hrossa-
ræktarráðunautur og Stuart Mc
Intosh, sem hér hafði dvalizt
undanfarnar vikur til þess að
undirbúa leiðangurinn.
Ingvar Magnússon á Hofstöð-
um í Stafholtstungum og Þor-
kell Bjarnason á Laugarvatni
sáu um hesta fyrir leiðangurinn.
Frásögn Gunnars Bjarnasonar
Eftir að slysið hafði hent átti
blaðið tal við Gunnar Bjarna-
son sl. sunnudag, þar sem hann
þá dvaldi að Geysi í Haukadal
og fórust honum orð á þessa
leið:
Ferðin frá Þingvöllum til
Laugarvatns . gekk mjög vel.
Nokkrir strákanna duttu af baki
en enginn meiddist. Svo rann
upp laugardagurinn bjartur og
fagur. Við riðum inn Laugardal-
irm ira kl. 17.00 síðari hluta
dágsins og allt gekk eins og í
sögu, enginn datt af baki og
skap allra var eins og bezt getur
orðið í stórum hóp í góðu veðri
og fögru umihverfi. Stuart fannst
við fara heldur hratt og vildi
hafa forystuna. Hann hafði riðið
þessa leið áður og var öllu kunn
ugur. Við áðum hjá Efstadal og
þar ræddum við um, hvernig
fara skyldi yfir brúna á Brúará.
Við ætluðum að vera tveir sam-
an við brúarsporðinn og láta
einn og einn hest fara yfir í
einu. Er við nálguðumst brúna
var Stuart fremstur með nokkr-
um strákum. Ég var í miðjum
hóp og hafði teymt hryssu frá
Laugarvatni, en rétt áður en við
komum á hæðina við brúna
setti hryssan af sér beizlið, sem
var bandbeizli, svo að ég var
með kaðalinn í hendinni. Er ég
reið fram á hæðina og kom í hóp
drengjanna, sá ég þá með stein-
gerð andlit, spurði einhvern,
hvort ekki væri allt í lagi en
hann benti þá óttasleginn út í
ána.“
Frásögn Mr. Burtons
Þar sem Mr. Burton var á-
horfandi að slysinu, látum við
hann nú segja frá því hvernig
það skeði eins og hann skýrði
rannsóknarlögregiunni í Reykja
vík frá málinu:
„Þegar við nálguðumst brúna,
var Mr. Mclntosh fyrstu/r, en
rétt á eftir honum þrír af
drengjunum, en þar næst var
ég um það bil 15 metrum á eftir
þeim. Mr. Mclntosh virtist ekk-
ert stanza við brúna en beygði
út af veginum upp með ánni
og drengirnir á eftir honum.
Þeir fóru um það bil 150 metra
upp með ánni en foss er í ánni
um það bil 50 metra ofan við
brúna. Ég sá svo, að Mclntosh
reið þar viðstöðulaust út í ána
en þar sem mér sýndist þetta
vera hættulegt, þá reið ég nú á
eftir þeim upp með ánni til þess
að aðvara drengina, enda höfðu
að beiðni Mclntosh stanz-
að og ekki lagt út í
ána. Ég sá svo að þegar Mclntosh
var kominn miðja vegu yfir ána
að þá var áin svo djúp að vatnið
náði upp í hnakkinn. Hann reið
þó áfram og ég tók eftir að hann
var kominn með fæturna upp í
hnakkinn. Allt í einu sá ég að
hesturinn tók sundtök, en barst
þó óðfluga undan straum og
mjög fljótlega hurfu svo bæði
maður og hestur í ána. Aðeins
augnablik sá ég þá koma upp
aftur en síðan hurfu þeir al-
gerlega."
Líkið næst
Gunnar Bjarnason heldur nú
áfram frásögn sinni af björgun-
inni.
„Ég þaut niður á brúna og sá
þá mann liggja á eyri-um það
bil 100 metrum neðan við brúna.
Þetta hefur varla verið meira en
5 mínútum eftir að Stuart reið
út í ána ofan við fossinn. Ég kall-
aði á 4 skáta mér til fylgdar. Við
hlupum niður árbakkann að norð
anverðu og æddum út í ána, auð-
vitað í brjálæði. Áin er þarna
stórgrýtt og fellur í striðum
straumum • eftir mjóum gjám.
Einn drengjanna féll í gjána en
af guðs náð tókst mér að ná taki
á honum. Við stóðum þarna í
hörðum streng, en þá skynja ég
bandbeizlið í hendi mér.
Stóðu á streng í straumnum
Við tökum nú allir taki á kaðl-
inum og ösluðum áfram til Stu-
arts, sem lá á eyrinni að mestu í
vatni. Við tveir tókum sinn und-
ir hvorn arm og svo ösluðum við
til lands með þeim hraða, sem
við réðum yfir. Þá var þar kom-
inn læknir leiðangursins og hóf
strax með aðstoð skátanna björg-
unartilraunir. Hann gaf mér í
skyn fljótlega að höfuðkúpan
væri brotin og höfuðið var ákaf-
lega skaddað. Læknirinn hélt eft-
ir 5 skátum en við héldum áfram
að Miðhúsum með hópinn. Skát-
arnir gerðu börur úr spýtum við
brúna og báru Stuart langleiðis
að Miðhúsum. Þorkell á Laugar-
vatni reið strax að Múla,
náði í hreppsstjórann Er-
lend á Vatnsleysu og lækni.
Um það bil 2 km frá Mið-
húsum komu hreppstjóri og lækn
ir til móts við skátana. Svo var
haldið áfram til Geysis, en Burt-
on og kona hans fóru í bíl til
að finna Margaréte konuStuarts,
en hún hugðist dveljast hér á
landi um vikutíma.
Snemma í morgun frétti ég að
messað skyldi hér í Haukadal í
dag. Ég talaði við prestinn, Guð-
mun á Mosfelli og boðaði hon-
um 35 brezka skáta til messu.
Kl. 2 gengum við allir fylktu
liði í kirkju í Haukadal. Prestur-
inn flutti ágæta ræðu og talaði
bæði á ensku og íslenzku. Þessj
stund verður okkur öllum ógleyní
anleg og mikil hjálp í andlegri
neyð. Síðan skoðuðum við Geysi.i
Nú bíðum við eftir Burton, senl:
kemur í kvöld og áfram verðuf
haldið á morgun sem leið liggui'
norður". í,
Hér lýkur frásögninni af slys-
inu. í gær fór fram kistulagning
og stutt minningaratihöfn um
hinn látna í kapellunni í Foss-
vogi. Ekkja Mclntosh fer 'utan.
með lík manns síns í dag.
—O—
Stuart Mc Intoch var mörgum
hér á landi kunnur og átti hér
marga vini og kunningja. Hann
kom hingað fyrst árið 1953 og
dvaldist sumarlangt á Hvann-
eyri. Síðan varð hann aðstoðar-
maður Jóns Pálssonar, dýralækn
is á Selfossi um hálfs árs skeið.
Þegar í upphafi fékk hann mikinn
áhuga fyrir íslenzkum hestum og
hefur á undanförnum árum
safnað þeim til sín í Skotlandi.
Öllum, sem Stuart þekktu, og
nutu glaðværðar hans, , góð-
mennsku og vináttu, er hann
mikill harmdauði. Konu hans og
foreldrum vottum við inn.iiega
samúð. — vig.
í KVÖLD KL. 8.30 HEFST LANDSLEIKURINN
ISLAND
V.-ÞYZKALAND
á íþróttaleikvanginum í Laugardal
Sala aðsöngumiða fer fram í aðgöngumiðasölu tþrótta-
vallarins á Melunum, við Útvegsbankann, og á Lauga
vegi 25.
Dómari: T. WHARTON frá Skotlandi
Línuverðir: Þorlákur Þórðarson og Guðbjörn Jónsson.
Verð aðgöngumiða:
Stúkusæti kr. 55.00, Stæði 35.00, Barnamiðar 10.00.
Ferðir frá Melavellinum og B. S. í. Kalkofnsvegi.
Kaupið miða tímanlega. Móttökunefndin.
Í-S.Í. K.S.Í.