Morgunblaðið - 03.08.1960, Side 16

Morgunblaðið - 03.08.1960, Side 16
16 M O fí C, V W n r * f) t fí M18v)ku(Sag«r S. 3gílst ltMMt PATRICIA WENTWORTH G amlor syndir 34 Og Maud Silver sem var að fitja upp á litlum rauðum sokk- um, sem áttu að fylgja peys- unni, var ágætis áheyrandi. Þeg- ar hún hafði látið þess getið, að hn sjálf og frú Castelton og frú Field væri gamlir vinir, þurfti Maisie ekki meira, og bunan stóð jafnskjótt út úr henni svo að Maud Silver varð að hafa góða gát á lykkjunum sínum, meðan hún var að segja hehni frá for- eldrum Carmonu. — Já, hann Georg Leigh var með fallegustu mönnum. Carm- ona er svo sem ekkert sérstak á því sviði, en það var hann. Allar stelpur voru skotnar í hon- um. Hún hló eins og feimnis- lega. — Að minnsta kosti var ég það. En það er nú svo langt um iiðið,að ég get vel sagt frá því. En það var Adela, sem hann var skotinn i . . . leit ekki á neina aðra, fyrr en Geoffrey Castle- ton tók hana frá honum, enda miklu ríkari, og þá snéri hann við blaðinu og giftist Moniku i snarkasti. Ekki veit ég, hvað hann sá girnilegt við hana, saman borið við Adelu. Þetta var að visu sæt stúlka, en Adelá var svo miklu meira. — Þegar fólk hefur svo margt og mikið til brunns að bera, verð ur það stundum drottnunar- gjarnt, sagði Maud Silver. Maisie Trevor glennti upp aug- un. — Ég hef nú víst aldrei hugs- að um það þannig, en þetta er Hklega einhver harka í Adelu. Kannske hefur það verið af því að hún gat svo margt og mikið, og gerði það vel. Því að það gerði hún. Dans, tennis, sund, skylmingar . . . allt þetta virt- ist liggja henni í augum uppi. Ég man eftir, að einhver sagði við mig . . . ég man ekki, hvort það var Jennifer Rae eða Mary Bond eða það hefði líka getað verið Jósephine Carstairs . . . við vorum allar í sömu klíkunni . . . svo að það hefði getað verið hver þeirra sem var . . . bara ekki Ester, því að hún sagði aldrei neitt misjafnt um neinn . . . en það hefur þá verið einhver hinna . . . æ, hvað ætlaði ég að segja . . . ? — Eitthvað, sem sagt var um frú CasUeton. — Já, það var líka satt, og nú man ég líka,. að það var Jane Elliott . . . af því að hún var bálskotin í Georg Leigh, og af- brýðissöm við Adelu. Sem sagt Jane sagði . . . ég er alveg viss um, að það var hún...........Þú getur ekki gert svona margt og svona vel, og haft neinn tíma afgangs fyrir venjulegar mann: legar tilfinningar“. Og þetta var að vissu leyti satt. Henni þótti ekki vænt um neinn og varð aldrei ástfangin, eins og við hin- ar . . . hún skaraði bara alltaf áberandi fram úr, og hún skeilti sér’líka í álitlegasta hjónaband- ið, sem hanni bauðst. Geoffrey var í utanríkisþjónustinni, skiljið þér, og allir spáðu honum glæsi- legri framtíð, en svo dó hann ung ur og hún gitist aldrei aftur. í rauninni hafði hún engan áhuga á manneskjum, heldur málefn- um. Hún hafði mikilvægt verk á hendi á ófriðarárunum, og hún talar opinberlega og tekur, þátt í kappræðum í útvarpinu . . . og öllu þess háttar. En hvað fólk snertir, þá held ég henni hafi aldrei þótt vænt um nokkra lif- andi sálu . . . nema Irenu. — Hver er Irena? XXXI. Nú varð ein af þessum þögn- um, sem geta gert jafnvel heimskustu manneskju skiljan- legt, að ræðumaður hefur hlaup- ið á sig og sagt of mikið. Þarna þurfti ekki annað en Maud Sil- ver endurtæki nafnið. Hún hafði ekki séð neina ástæðu til að stilla sig, og þá heldur ekki gert það, en frú Castleton, kom inn og var Ef ég væri þú hefði ég keypt skóna einu númeri stærri. komin inn á mitt gólf áður en setningunni var lokið. — Hver er Irene? Maud Silver var mjög skýr- mælt, að öllu jafnaði, en þarna var eins og hún talaði óvenju- lega skýrt. Hefði frú Castleton verið komin skemmra inn í stof- una, hefði kannske verið hægt að láta spurninguna eins og vind um eyru þjóta og henni hefði þá heldur aldrei verið svarað, en þarna mátti segja, að hún fengi spurninguna beint i andlitið. Hún stanzaði snöggvast hávaxin og tíguleg í dökka kjólnum, og svar- aði síðan með miklum virðuleik í rödd og fasi: — Frú Trevor hefur víst ver- ið að tala um hana systur mína, sem dó fyrir tiu árum . . . Síðan gekk hún áleiðis til Ester Field, sem stóð við opnar garðdyrnar. Maisie Trevor var sýnilega of- urlítið hvumsa við, en sagði samt: — Okkur þótti öllum svo vænt um hana . . . og sló síðan út í aðra sálma. En ekki voru hinar tvær fyrr gengnar út um garðsdyrnar en Maud Silver hall aði sér að henni og sagði: — Ég vona, að ég hafi ekki verið að angra frú Castleton með þessari spurningu minni ? — Það er nú engin hægðar- leikur, að slá hana út af laginu — og ég efast um, að það sé nokkurs manns meðfæri. Þá set- ur hún bara upp höfðingjasvip- inn og siglir fram hjá manni, eins og hún gerði áðan. Maud Silver horfði um stund gaumgæfilega á umferðirnar, sem komnar voru á prjónana hennar, og sagði síðan: — Það kemur manni stundum á óvart að heyra allt í einu nefnt nafn einhvers nákomins, þegar maður býst ekki við því. Mér þætti leiðinlegt ef ég hefði ver- ið að ýfa upp eitthvert gamalt sár hjá frú Castleton. Maisie Trevor lækkaði rödd- ina. — Já, náttúrlega var það voðalega sorglegt. Hún var svo ung og falleg — miklu fallegri en Adela, fannst mér nú alltaf, miklu mjúklyndari og ekki eins afskaplega fullkomin á öllum sviðum. — Og svo dó hún? Það var sorglegt. — Hn drukknaði. Synti of langt til hafs. Það var sagt, að hún hefði fengið sinadrátt. Maud Silver var aldrei al- mennilega vess um, hvort dálítið sérstök áherzla var lögð á þetta „sagt“, en mikil var hún að minnsta kosti ekki. Maisie Trevor óð elginn áfram. Það var svo hræðilegt að fá sina- drátt. En kannske ættu þær ekki að tala meira um þetta, ef frú Castleton skyldi koma inn aftur. Henni hafði þótt svo vænt um Irenu. „Hún á engin börn sjálf, skiljið þér . . . og sumar konur virðast taka sér það nærri, þó að ég geti nú aldrei skilið í því, og ég veit svo sem ekki heldur, hvort Adela hefur gert það í raun : og veru. Aldrei eignuðumst við Tom neitt barn, og ég hef aldrei harmað það. Krakkar eru svo sóðalegir, og þegar þeir stækka, eru þeir svoddan ógurleg fyrir- höfn. Og svo hvað verður úr sum um þeirra. Allir þessir hjóna- skilnaðir og strákar sem eru að vasast í stjórnmálum eða yrkja kvæði, sem gefa til kynna, að þeir hvorki þvoi sér né raki sig. Nei, svei mér ef ég hefði kært mig um það.. Maud Silver jánkaði því, að þessi nútímaæska gæti verið dálítið þreytandi og gæti verið efni í langar umræður. Pippa Maybury kom inn, í skarlatsrauðum kjól, sem efri hlutann vantaði á að mestu leyti; að minnsta kosti lét hann lítið á sér bera. Hún hafði líka mál- að sig glannalega, með stóra skugga undir augunum, og augn- hárin svört, hörundið fölleitt, varalit í samræmi við kjólinn og lauf, hjarta, tígul og spaða, og var sýnilega full áhuga á þess- ari dægradvöl sinni. Trevor ofursti var að lesa i dagblaði. Hann gerði aldrei ann að á kvöldin, nema þá sjaldan hægt var að draga hann hálf- nauðugan í bridge. Stundum sofnaði hann bak við blaðið og þá vissi jafnvel Maisie, að ekki var ráðlegt að vekja hann. Sjálf var hún að fletta blöðunum í Vogue og hafa hátt um djarfar fatateikningarnar, milli þess sem hún dró upp myndir af sjálfri sér íklæddri þessum nýstárlegu fiíkum og með tilsvarandi hár- greiðslu. Ester hafði lagt frá sér prjón- ana og tekið til við útsaum í staðinn. Hún var að sauma stórt og skrautlegt H í andlitsþurrku fyrir Carmonu — efnið var fín- gert damask og teikningin og út saumurinn mjög vandaður. Hún var ein þeirra kvenna, sem geta sterkrauðar neglur. Darmon gekk j hvílt sig við saum. Brúnu aug- fram á hana í dyrunum og gat ekki stillt sig um að reka upp óp. — Pippa! — Ég veit hvað þú meinar: Góða mín, blessuð farðu upp og klæddu þig í eitthváð nógu un horfðu á verkefnið með á- nægju og hún fann ró og frið í sálu sinni. Yngra fólkið sat saman. Jam- es Hardwik var með tímarit og Pippa með bók, sem hún leit sHtttvarpiö sveitalegt. En það ætla ég ekki ekkf í. Þegar hún hafði fitlað að gera . . . hvorki fyrir þig né j ofurlítið við blöðin, fleygði hún neinn annan. En ef ég á að '__________________________________ fara í fangaklefa á morgun, vil ég skemmta mér almennilega í kvöld, skilurðu. James Harwick kom rétt á eftir þeim. Pippa kyssti á fingur til hans og hélt áfram. Hann lyfti augnabrúnum og leit á Carmonu, „Etum og drekkum og verum glaðir, því að á morgun deyjum vér“. Augu Carmonu flútu í tárum. Hún sagði: — Já, James, en hvar er Bill? Hún vill nú fyrir engan mun, að hann viti af þessu, en hann ætti nú samt að vera kominn hingað. Hann kinkaði kolli. — Komdu. Við verðum að fara inn. — En ef þeir taka hana nú fasta, James . . . — Það held ég þeir geri ekki. — Ég skil ekki í öðru en þeir geri það. Hversvegna ekki? — Kannske vegna þess, að hún er ekki sek. Hún fann allt í einu til óró- leika. — Hversvegna segirðu það? — Ég er líklega skyggn. Síðan gekk hann frá henni og inn í stofuna. XXXII. Margt varð til að halda áhug- þetta kvöld. Þarna voru að minnsta kosti þrjármanneskjur, sem vert var að veita sérstaka athygli. Sjálf talaði hún ekki mikið en hlustaði þvi meira og prjónarnir tifuðu í sífellu. Þegar frú Castleton fór að leggja kap- alinn sinn, eins og hún var vön eftir mat, færði hún stólinn sinn til hennar og horfði á leikinn með mikilli eftirtekt. Fyrst hafði hún afsakað sig með því að segja lágt: — Má ég horfa á? Og hin hafði svarað stuttlega: — Gerið þér svo vel, og svo var ekki meira talað þeirra milli. öðru hvoru small í prjónunum og litli krakkaskórinn fór smám saman að taka á sig mynd. Adela Castleton sat þarna í hálfgagnsæja svarta kjólnum og laut dálítið yfir spilin, rauð, hvít pg svört, með fallegu höndina með roðasteinshringnum á Jofti yfir spilunum, lagði niður kóng hér og drottningu þar, færði til a r L ú ó — Við skulum fara Barney. Ég býst við að Bjarni þurfi ekki á neinum að halda hér eins og er. — Hann elskaði þennan gamla hund sinn, var það ekki Markús? Seinna. .... en Bangsi vildi ekki gefast udp og dó vjð veiðar Lisa! — Veiztu það Markús, að ég skil núna hvers vegna Bjarna þótti svona vænt um hann! Miðvikudagur 3. ágúst. 8.00—10.20 Morgunútvarp (Bæn. — 8.15 Tónleikar. — 8.30 Fréttir. — 8.40 Tónleikar. — 10.10 Veðurír.) 12.00 Hádegisútvarp. 15.00 Miðdegisútvarp. (Fréttir kl. 15.00) 16.30 Veðurfregnir. 19.25 Veðurfregnir. 19.30 Operettulög. 19.40 Tilkynningar. 20.00 Fréttir. 20.30 Marokkó og nálæg lönd — erindi (Baldur Bjarnason magister). 20.50 Islenzk nútímatónlist. a) Sónata fyrir klarinettu og píanó eftir Jón Þórarmscon. — Erling Carlsen og Robert Levin leika. b) Fjórar abstraktsjónir efir Magnús Blöndal Jóhannsson. — Gísli Magnússon leikur á píanó. c) Barnalagaflokkur eftir Leif Þórarinsson. — Gísli Magnús- son leikur á píanó. d) Tríó fyrir blásturshljóðfæri eftir Fjölni Stefánsson. — >— Ernst Normann, flauta, Eg- ill Jónsson, klarinetta, o g Han Ploder, fagott, leika. 21.20 Afrek og æfintýr; Biðin langa; frásögn Olivers La Farges, fyrsti hluti (Viihjálmur S. Vilhjálms- son rithöfundur. 21.45 Stúdentasöngvar frá ýmsum lönd um. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Kvöldsagan: ,,Knittel“ eftir Hein- rich Spoerl, III (Fríða Sigurðsson þýddi. — Ævar Kvaran leikarl 22.30 ,,Um sumarkvöld“: Karlakór Reykjavíkur, Sir Harry Lauder, Zarah Leander, Paul Rich, Torre- bruno, Kathryn Grayson, Max Lichtegg, Lucie Doléne og Nor- man Ljúboí-kórinn skemmta. 23.00 Dagskrárlok. Fimmtudagur 4. ágúst. 8.00—10.20 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Tónleikar. — 8.30 Fréttir. — 8.40 Tónleikar. — 10.10 Veðurfr.) 12.00 Hádegisútvarp. 13.00 ,,A frívaktinni", sjómannaþátt- ur (Guðrún Erlendsd.). 15.00—16.30 Miðdegisútvarp. Fréttir kl. 15.00 og 16.00). 16.30 Veðurfregnir. 19.25 Veðurfregnir. 19.30 Tilkynningar. 20.00 Fréttir. 20.30 Kenjar jarðar IV.: Katlakenning Golds (Hjörtur Halldórsson menntaskólakennari). 20.55 Frægir söngvarar: Elisabeth Schwarzkopf syngur við undir- leik Walters Gieskings lög eftir Mozart. 21.15 Upplestur: Filippía Kristjánsdótt ir les frumort ljóð. 21.25 Barnakórinn í Eschwege syngur bamalög. Stjórnandi: Kristine Biechtler. 21.40 Veiðiskapur á Jökuldalsheiði, — kafli' úr minningum Björns Jó- hannssonar skólastjóra frá bú- skaparárum hans í Veturhúsum þar á heiðinni, — hljóðritaður að heimili Björns í Vopnafirði. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Kvöldsagan: Knittel eftir Hein- rich Spoerl í þýðingu dr. Fríðu Sigurðsson: V (Ævar R. Kvaran leikari). 22.30 Sinfóníutónleikar: Frá tónlistar- hátíðinni í Björgvin í vor: Musik selskapet „Harmonins" Orkester leikur. Arvid Fladmoe stjórnar. a) Leonora-forleikur nr. 3 op. 72 eftir Beethoven. b) Konsert fyrir fiðlu og kné- fiðlu í a-moll op. 102 eftir Brahms. Einleikarar: Igor Ois trakh og Erling Blöndal Bengtsson. 23.30 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.