Good-Templar - 01.07.1902, Blaðsíða 8

Good-Templar - 01.07.1902, Blaðsíða 8
80 í bága við stórstúkuna. Ætlar hún sér iíka að lifa vel og lengi, svo að gjöf þessi geti henni að sem mestu gagni komið. Meðal meðlima stúkunnar eru margir ötulir og áhuga- miklir bindindismenn. Starfið gengur yfirleitt vel og samkomu- lag er hið ákjósanlegasta. Allir láta sér sameiginlega ant um heill og framfarir stúkunnar. Ekki er enn farið að safna undirskriftum undii' áskoran- irnar um aðflutningsbann á áfengi. En ekki mun stúkan láta sitt eftir liggja í því efni. Þótt eg fyrir mitt ieyti sé ekki eindregið með sölubanns- eða aðflutningsbannslögum á áfengi, þá mun eg þó gera mitt til að leita eftir vilja aimennings í því máli. En eðlilegii ieið virðist mér bindindisleiðin, að gerast sjálfur bindindismaður og gera aðra að bindindismönnum þvingunarlaust. Það viiðist eitthvað ósjálfstætt við það, ef menn viija fá víninu útrýmt úr landinu með bannlögum, en vilja þó ekki sjálfir hætta að kaupa það, á meðan það fæst. Það er sama sem að segja: „Vér getum ekki stiit oss um að drekka nje haft vit fyrir oss sjálfir, og verðum því að snúa oss til löggjafarvaldsins og biðja það að taka burt frá oss það, sem vér getum skaðað oss á og höf- um ekki vit á með að fara“. Margir munu segja, að úr því að menn vilji láta taka mögulegleikann burt, þá sé ekki hyggi- iegt frá bindindislegu sjónarmiði að sleppa því tækifæri úr höndum sór, að nota sér ekki það vopn, sem þannig er lagt upp i hendur bindindismannanna. Getur vel verið. En á hverju byggist sá viiji þjóðarinnar, að vilja ekki hætta vin- kaupum, en vilja þó helzt ekki geta fengið vín keypt? Hætt er við því, að þessi vilji sé ekki á mikilli hugsun eða sannfær- ingu bygður, og annar viiji verði svo efst á blaði, þegar til framkvæmdanna kemur. Auk þess verður jafnan álitlegur minni hluti innflutningsbanni andstæður. Á engan gaum að gefa að skoðun hans? Þvi mun verða haldið fram, að minni hluti í þessu máli verði að sætta sig við að lúta meiri hlut- anum, og er það ekki annað né meira en það sem venjulegast á sér stað. En er það heppilegt fyrir bindindismálið ? Er það hyggilegasta leiðin? Nei, bindindisleiðin er að mínu áliti réttasta og heppileg- asta leiðin. Ekki það, að lögbanna kaupmönnum að flytja vín, heldur að lofa þeim að flyfija svo mikið af því, sem þeir

x

Good-Templar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Good-Templar
https://timarit.is/publication/428

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.