Muninn - 01.04.1993, Síða 5
PISTILLINSPECTORS
Nú þegar öskunni hefur verið sópað
úr aminum og nýju spreki komið fyrir
sýnist mér vera tími til að rita minn
fullnaðarpistil.
Fyrst af öllu vil ég þakka fyrir mig og
mína og óska nýrri stjóm til hamingju
með kjörið. Ég vona að nýja stjómin
verði eins gagnleg og gæfurík og sú fyrri.
Þó vil ég minna
á það að
árangur og
velgengni em
ekki sjálfsagðir
hlutir. Fólk
verður að leggja
sig fram og vera
tilbúið til að
eyða allri sinni
orku og öllum
sínum tíma án
þess að fá
minnstu þakkir
fyrir. Það að
vera í stjórn
skólafélagsins
er ekki þakklátt starf, frekar en það var
þakklátt að vera Jesús Kristur. Þó sýnist
mér við öll komast lifandi frá þessari
baráttu en við höfum gengið píslagöngu
og fórnað ýmsu fyrir málstaðinn - fyrir
ykkur.
Þrátt fyrir þetta er ég þakklátur þeim
sem kusu mig í fyrra og gáfu mér kost á
því að starfa þetta því þó svo að stjómim
skólafélagsins hafi oft verið erfið, þá var
þetta mjög gaman og þroskandi og
hópurinn sem ég vann með var
stórkostlegur.
Við verðiun samt alltaf að hafa í huga
þá staðreynd að félagslífið er meira en
stjóm skólafélagsins. Félagslífið er
nefnilega allir þeir sem koma því við á
einhvern hátt, þá auðvitað helst
nemendurnir. Ykkur vil ég þakka öllum
fyrir samstarfið.
Starfsfólk
skólans á einnig
þakkir skildar,
hjálpsemi þess
kom mér svo
sannarlega á
óvart. Að öllum
öðmm
ólöstuðum vil
ég nefna Skúla
Flosason sem
var alltaf til taks
á hvaða tíma
sólarhringsins
sem var, og var
oft sem einn úr
stjóminni. Hér með hætti ég þessari
lofmglu minni. Reikningsskil em
hagstæð og það sem áður voru glóðir
einar em nú myndarlegur bálköstur.
Takk fyrir mig,
Ómar Örn Magnússoyi, 4.F
MUNINN
5