Muninn - 01.04.1993, Side 7
Klukkan er farin að nálgast hálf níu
og mannfjöldi einn ógurlegur hefur
komið sér makindalega fyrir í Gryfjunni í
✓
V.M.A. A sviðið streyma svo tveir menn
og hefja upp raust sína. Umræðuefni
þeirra er setning Listadaga M.A. og
V.M.A. sem skulu hefjast þetta kvöld.
Að masi þeirra loknu leikur K.K.-band,
öllum til mikillar gleði.
Svona hljóðar í Drottins nafni upphaf
þeirrar hstahátíðar sem M.A. og V.M.A.
efndu til 2.-11. mars 1993. Þar var margt
til skemmtunar gert og dagskráin var
mjög fjölbreytt. Það væri óðs manns æði
að þreyta ykkur með því að segja frá
öllum atriðunum. Því ætla ég að segja
ykkur frá því helsta.
Eftir mjög vel heppnaða K.K.
tónleika skal nefna stjórnmálakappræður
þann 4. mars þar sem Halldór Blöndal og
Steingrímur J. Sigfússon leiddu saman
hesta sína. Fjölmennt var mjög og
umræðurnar líflegar, fróðlegar og
skemmtilegar. Þegar þessum sama degi
var farið að halla var haldið bingó eitt
brjálæðislegt. Þar voru stórglæsilegir
vinningar og enn glæsilegri stjórnendur.
Spennan var sannfærandi á köflum og
var þetta mikil skemmtun fyrir þá sem
tóku þátt. Að degi næsta kvölds var
Kristín Þorsteinsdóttir miðill með
fyrirlestur um dulspeki og lét svo fljóta
með nokkrar skyggnilýsingar í lokin.
Að kvöldi 7. mars var haldin í 1929
alveg ofsaleg karókíkeppni. Þar komu
fram maður og konur, misfölsk eins og
gengur, en allir skemmtu sér
konunglega. Sigurvegari var Jóna
Fanney Svavarsdóttir úr M.A., Sunna
Bjarkadóttir úr M.A. fékk verðlaun fyrir
bestu framkomuna en V.M.A. fékk
verðlaun fyrir bestu heildina. En mesta
athygli vakti náttúrulega undirritaður,
kynnir kvöldsins sem kyrjaði kostulega
með frændkvendi sínu Sommernæts úr
✓
Grís. Aður en hin eiginlega keppni hófst
var kvikmyndin "SSL 25" eftir Óskar
Jónasson sýnd og höfundurinn rabbaði
htillega við gesti. Þetta var án efa eitt af
allra skemmtilegustu atriðunum á
Listadögum.
Þriðjudaginn 9. mars var fólki aftur beint
í 1929 en nú til að sjá uppfærslu
Þjóðleikhússins á leikritinu "Ríta gengur
menntaveginn." Það var stórkostleg
skemmtun og þeir sem á horfðu gengu
út með bros á vör.
Fimmtudaginn 11. mars kepptu
íþróttamenn skólanna í hinum ýmsu
greinum og héldu spennu í áhorfendum,
til að byrja með...... Engin féllu
*
Islandsmetin nema þá helst í stigamun.
Þegar tók að rökkva á ný voru haldnir
rokktónleikar í Gryfjunni. Þar komu
fram hljómsveitimar „Afsakið tilvem
okkar" og „Stjánar" úr M.A., „Frantic" úr
V.M.A. og „Hún andar" framdi einnig
hávaða. Þetta var skemmtileg
uppákoma og stóðu allar sveitimar sig
með prýði. Að öllu þessu loknu var
fretað upp nokkmm rakettum og þar
með var hátíðin búin.
MUNINN
7