Muninn

Årgang

Muninn - 01.04.1993, Side 10

Muninn - 01.04.1993, Side 10
Himinninn var grár og hvergi sást til sólar, köld golan strauk um vanga barnanna sem sátu í sandkassanum og léku sér. Þau voru klædd í pollagalla og gúmmístígvél. Horinn rann úr nösunum á þeim, en þau sleiktu eða sugu hann jafnóðum. Lítill strákur setti lúku af sandi upp í sig, hann fann hvernig sandkomin blönduðust saman við munnvatnið og hvernig marraði í þeim þegar hann bruddi þau. Litla telpan sem sat á móti honum tók skófluna sem hann hafði verið með og fór að grafa holu. Skóflan hans! Hann varð svo reiður að hann öskraði og tók aðra lúku af sandi og henti framan í litlu telpuna. Fyrst gretti hún sig og neri á sér augun, svo rak hún upp gól sem heyrðist alla leið til Kína. Kínverjarnir horfðu til himins. Þeir héldu að gólið kæmi frá dreka sem ætlaði að éta þá með húð og hári, en þegar þeir sáu ekkert sneru þeir sér aftur að störfum sínum. Ætlaði hún aldrei að hætta þessu væli? Hann horfði reiður á hana. Hún var eldrauð í framan og tárin streymdu eins og lækir niður kinnarnar. Þegar þau runnu niður að munnvikunum rak hún út úr sér tunguna og sleikti þau. Hún nuddaði á sér augun, þetta var svo sárt, sandkornin stungu hana í augun eins og hnífar. Hún hafði líka fengið sand upp í sig. Hvers vegna kom enginn og huggaði hana? Hún þagnaði smástund á meðan hún var að hugsa sig um. Svo leit hún illilega á strákinn, hún ætlaði að hefna sín. Þetta skyldi hann sko fá borgað. Þá kom hún auga á veginn sem hann hafði gert og vörubílinn. Allt í einu stóð hún upp, sparkaði í bílinn hans og eyðilagði veginn. Svo sneri hún sér við og hljóp grenjandi heim. Strákurinn varð hissa. Hvað gekk að henni? Af hverju eyðilagði hún veginn hans? Þetta var allt henni sjálfri að kenna, hún hafði tekið skófluna hans! Hann horfði á eftir henni þegar hún hljóp vælandi í áttina að gula húsinu. Inn að klaga í mömmu auðvitað! Hann ætlaði sko aldeilis ekki að láta skamma sig núna. Svo að hann reis á fætur, horfði kuldalega á gula húsið og fór heim. Hann skyldi hefna fyrir veginn seinna - þegar þau væru ein. Fiðurflétta veínaöarvöruverslun Umboðið á Akureyri Sunnuhlíð - Sími: 27177 Ráðhústorgi5 • Símar 96-22244 & 96-23600 10 MUNINN

x

Muninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.