Muninn - 01.04.1993, Page 12
MORFÍS
Þann 11. febrúar var dregið í
undanúrslitum Mælsku- &
rökræðukeppni framhaldsskólanna á
íslandi. Okkar hlutskipti var að etja
kappi við M.R. á útivelli. Samkvæmt
hefð höfnuðum við einhverju af því sem
okkur var boðið, að þessu sinni einum
dómara og umræðuefninu, en það var:
„Er stúdentsprófið einskis virði?"
Eftir talsvert strangar
samningaviðræður og dálitla
taugaspennu var ákveðið að við
skyldum mæla gegn því að maðurinn
væri góður í eðli sínu. Þá fór af stað
hefðbundinn undirbúningur og voru
málin krufin til mergjar sem aldrei fyrr.
*
Eg ætia ekki að tíunda hér framvindu
mála þessa viku, enda ekki á nokkum
mann leggjandi að lesa um öll þau
misgáfulegu gullkorn sem vom látin
falla á þeim tíma og er þá engu orði
ofaukið.
Og þar kom að stóri dagurinn rann
upp. Keppnin var haldin í
húsakynnum Verslunarskólans og er
skemmst frá því að segja að við
töpuðum. Það var þó bót í máli að
við áttum ræðumann kvöldsins, Jón
Óttar Birgisson. Vonbrigðin vom
náttúrulega mikil, og ekki laust við að
menn þyrftu tíma til að jafna sig.
Auðvitað kemur dagur eftir þennan
dag, en það er ljóst að betur má ef
duga skal.
Að lokum við ég fyrir hönd liðsins
þakka Tryggva Gíslasyni skóla-
meistara, Kristjáni Kristjánssyni,
Hrútafjarðarprenti, stuðningsliðinu
góða, svo og öllum öðrum sem
greiddu götu okkar á einhvern hátt.
F.h. MFH,
Steinþór Heiðarsson.
12
MUNINN