Muninn - 01.04.1993, Qupperneq 17
fram og aftur yfir honum. Hann reynir
að færa sig frá en of seint. Hann reynir
að grípa brotið en stór oddur stingst
samt í gegnum sængina og inn í kviðinn
á honum. Hann missir meðvitund.
Utvarpsvekjarinn fer í gang á réttum
tíma, 12:10. Hann hefur öðlast svolítinn
styrk í svefninum. Honum til mikillar
undrunar og léttis eru fætur hans ekki
lengur bundnir. Eins liggja bækumar nú
aðeins líflausar á víð og dreif
um herbergið. Aðeins
brotinn þakglugginn og
blóðugt rúmið em til vitnis
um atburði næturinnar.
Hann bítur á jaxlinn og
kippir brotinu upp úr
sárinu. Það hefur ekki farið
djúpt en samt er sængin öll
gegnsósa af blóði. Hann
teygir sig í beltið, bindur það
utan um kviðinn og herðir
vel að. Hann stendur í
snjóskaflinum undir
glugganum og klæðir sig
þegar hann lítur af rælni í
spegilinn andspænis honum.
„Djöfullinn!" hrópar hann
upp yfir sig. Hið fagurbláa
hægra auga hans er horfið! Um leið og
hann sækir sólgleraugu ofan í skúffu
hugsar hann um Óðin og það þegar hann
fómaði öðru auganu fyrir visku þá er
hann öðlaðist. Hann setur sólgleraugun
á nefið lítur svo í spegilinn og brosir
tannlausu brosi. „ Ómótstæðilegur" segir
hann og glottir. Hann gengur að
hurðinni, hún er ólæst. Hann lítur til
baka, á gólfinu sér hann STÆ 403. Hann
tekur hana upp, stekkur upp hjá þriggja
stiga línunni og hittir beint ofan í
mslakörfuna.
Á lóðinni fyrir utan hús, sem stendur
ofarlega í bæ á norðurhjara veraldar, má
sjá kramið auga liggja umkomulaust í
snjónum. Fyrir ofan er brotinn
þakgluggi. Innan hans er illa útleikið
herbergi. Blóðug slóð liggur frá
snjóskafli undir glugganum að opnum
dymm herbergisins, niður stigann að
eldhúsborðinu. Á borðinu er skál
hálffull af seríósi, við hlið hennar er
mánudags DV. Á blóðugri forsíðunni má
sjá áberandi fyrirsögn. „KOMIÐ VERÐI
Á SAMRÆMDUM PRÓFUM í 4., 7. OG
10. BEKK GRUNNSKÓLA TIL AÐ
VENJA NEMENDUR VIÐ ERFIÐ
PRÓF." Blóðug slóðin liggur fram í
forstofu. Líflaus líkami hallast upp að
*
vegg. I höndunum hefur hann
þriðjudags Moggann. Á blóðugri
forsíðunni má sjá áberandi fyrirsögn:
„MENNTAMÁLARÁÐHERRA BOÐAR
MIKIÐ AÐHALD í ÍSLENZKU
MENNTAKERFI." -Inntökupróf í HÍ á
valdi sérhverrar deildar. -Skólaárið
lengt. -Meiri kröfur til námsmanna. -
Niðurskurður. Flækingsköttur birtist í
forstofunni. Hann krafsar sólgleraugun
af líkinu og gæðir sér á innihaldi
augntóftarinnar. Hann mígur á
námsmanninn og skokkar út í frelsið.
Sigurjón Axel Guðjónsson, 3.X
MUNINN
17