Muninn

Árgangur

Muninn - 01.04.1993, Blaðsíða 19

Muninn - 01.04.1993, Blaðsíða 19
leiða misskilning sem fram hefur komið, að hinn harðgifti nítján vetra fjölskyldnfaðir Filip (ath. prentvillu í síðasta tölublaði þar sem ritað var „Phihp" að engilsaxneskum hætti í stað „Filip" að portúgölskum hætti) hafi verið viðriðinn neyslu karnabisefna (með „k" að íslenskum hætti, en ekki „c" að engilsaxneskum hætti). Hvílík fjarstæða. Eins og alhr vita sem Filip kynntust, var þetta ákaflega ljúfur maður, og gaman að „buha í honum," svo að ég noti orð félaga míns í íbúð 533, sem uppnefndur var lygakúkur og AUabalh títtnefndum annál. Þó að hótelið okkar væri ekki nema hálfbyggt, fór því fjarri að byggingarfram- kvæmdir héldu fyrir okkur vöku, enda hófust hamarshöggin aldrei fyrr en kl. 7 á morgnana, þegar allir voru löngu komnir á fætur. Ekki olli það heldur neinum óþægindum að hótehð skyldi standa við hraðbraut, enda var búið að byggja brú yfir götuna í öryggisskyni (sbr.: „For your own safety: Do not cross the street - use the bridge"). Og þó svo að einhverjir hafi slasað sig á því að ganga yfir blessaða brúna, er það á engan hátt brúnni sjálfri að kenna. Enn er eftir að minnast á einn aðalkostinn við hótehð okkar, en það var hin stóra og glæsilega sundlaug, þar sem sólar naut allan guðslangan daginn. Þar var tilvalið að fá sér sundsprett eldsnemma á morgnana, áður en haldið var út að skokka um götur Praia da Rocha, og endað niðri á strönd. Ströndin var, vel á minnst, frábær, og sjórinn ávallt hlýr og notalegur. Þar var margt hægt að gera sér til dundurs, og er því engin furða að halur einn og snót ein sem nafngreind voru í næstsíðasta tölublaði hafi séð ástæðu til að eyða þar þremur vikum, í stað þess að liggja í þynnku uppi á hótelherbergi alla daga. Sem dæmi má nefna að hægt var að leika strandarbolta („beach bah"), sem er einkar uppbyggileg íþrótt, eða leigja sér hjólabát til að þjálfa fæturna. Alhörðustu ofurhugarnir brugðu sér jafnvel á svokahaðan bananabát, og duttu sumir oftar í sjóinn en aðrir (þá er ég ekkert endilega að tala um Ragnhildi frekar en aðra). Það hefur greinhega farið fram hjá annálsriturum sökum „viðhalds vökvajafnvægis" að um það bil fjórðungur hópsins fór dag einn í mikla MUNINN 19

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.