Muninn - 01.04.1993, Qupperneq 20
og merkilega menrtingarferð til
nágrannaríkisms Spánar, nánar tiltekið til
borgarinnar Sevilla í Andalúsíuhéraði.
Tilgangur ferðarinnar var að sjálfsögðu
sá að berja augum heimssýninguna
miklu EXPO '92. Lagt var af stað árla
morguns (sem kom ekki að sök því að
auðvitað höfðu allir farið snemma að
sofa kvöldið áður) og komið heim síðla
nætur. Var ferð þessi hin fróðlegasta og
besta.
Einnig hefur gleymst að geta þess að
nokkuð margir fóru í skoðunarferð til
hins sögufræga bæjar Sagres, og einnig
skruppu sumir til Lagos á nautaat, en
portúgölsk nautaöt eru nokkuð
frábrugðin þeim spænsku, og ku vera að
þeim hin mesta og besta skemmtun fyrir
ofbeldishneigða. Þá brugðu nokkrir
fílhraustir ungir menn sér á
hákarlaveiðar, og veiddu marga, marga
hákarla, en af því að þeir eru svo miklir
dýravinir slepptu þeir þeim aftur og
komu tómhentir í land.
Margt fleira má nefna sem fólk gerði
sér allsgáð til dundurs, t.d. voru famar
skemmti- og kreditkortaferðir m.a. til
Albufeira, Faro og Lissabon. Og vel á
minnst, hvemig var eiginlega ástand
annálsritara þegar við millilentum í
Lissabon? Fórum við ekki í
stórskemmtilega skoðunarferð um þessa
hreinu og fallegu blómstrandi borg, í
boði hins merka fyrirtækis EFACEC sem
gaf öllum hópnum penna, svo að
örugglega yrði unnt að rita annál
ferðarinnar?
Já, þessi fríði og heilbrigði hópur
gerði sér svo sannarlega margt til
skemmtunar, annað en að innbyrða
etanól og stunda kynlíf, þó svo að þetta
tvennt sé oftnefndum annálsritumm
augljóslega efst í huga. Það er út í hött
að halda því fram að enginn hafi séð
neitt nema Botelha bar, Bacchus, Farmers
Pub, Bartender, Cocktails & Dreams,
Hera Pub, Dropann, Quarterdeck, Taffy's
Bar, Man of Aran, Jackpot, Graffitie,
Babilone, Sjallann, Discovery og
Katedral. Fæstir stigu nokkm sinni fæti
sínum inn á þessa ómenningarstaði.
Eg vil að lokum minna á að á
heimleiðinni eyddi rjóminn af hópnum
þremur dögum í Lundúnum, og hagaði
sér þar eins og sönnum heimsborgumm
sæmir, fóru í leikhús, skoðunarferðir, á
söfn, út að borða, o.s.frv. Aðrir létu sér
nægja að skjótast inn í miðborgina á
meðan þeir biðu eftir flugvélinni til
*
Islands, hrifsa Levi's buxur og
geisladiska úr hillum verslananna, og
flýta sér svo aftur út á flugvöll.
Eg vona að eftir lestur þessa
greinarkorns verði 3. bekkingum nokkuð
hughægra og einhverjir foreldrar losni úr
öndunarvél. Ég vil að lokum mæla með
hinu frábæra hóteli Clube Praia da Rocha
við alla þá sem í framtíðinni eiga eftir að
heimsækja hið undurfagra Algarvehérað
í Suður-Portúgal.
Anna I. Pétursdóttir, 4.T
20
MUNINN