Muninn

Árgangur

Muninn - 01.04.1993, Blaðsíða 21

Muninn - 01.04.1993, Blaðsíða 21
HVAÐ GETUR KRISTIN TRÚ CERT FYRIR MI<1? Ég ætla nú eftir besta skilningi að greina frá hvað kristin trú er samkvæmt Biblíunni, hvað hún er að gera fyrir menn í dag og hvað hún getur einnig gert fyrir þig í dag. Þetta er þó skrifað fyrir það fólk sem viðurkennir að það er ekki fullkomið og er leitandi eftir lífsfyllingu. Því fólki sem telur sig fullkomið og einskis ábótavant er vinsamlega ráðlagt að lesa ekki þessa grein. Kristin trú höfðar ekki fdl þess nema hugarfarsbreyting verði á. Jesús sagðist nefnilega vera kominn til að kalla syndara, ekki réttláta. Meirihluti íslensku þjóðarinnar tilheyrir Lúthersku kirkjunni og telst því kristinn. En hvað er það að vera kristinn? Er það að tilheyra kristinni kirkju eða söfnuði? Er það að skírast í vatni, að fara í messu reglulega og fara með Faðirvorið á hverju kvöldi, að vera löghlýðinn borgari eða að vera fullkominn og syndga aldrei? Samkvæmt Biblíunni getur allt af ofangreindu, nema hið síðastnefnda, einkennt kristinn mann, en ekkert af þessu gerir mann að kristnum einstaklingi. En hvernig verður maður þá kristinn? „Því af náð eruð þér hólpnir orðnir fyrir trú. Þetta er ekki yður að þakka. Það er Guðs gjöf. Ekki byggt á verkum, enginn skal geta miklast af því." Út frá þessum ritningarstað má sjá að ekki er hægt að vinna sig inn í himnaríki heldur er fyrirgefning syndanna gjöf Guðs. Hvemig tökum við þá á móti þessari gjöf? „En öllum þeim sem tóku við honum (Jesúm) gaf hann rétt til að verða Guðs börn, þeim er trúa á nafn hans." Maður tekur við Jesú Kristi með því að trúa og játa því að hann sé sonur Guðs, að hann hafi dáið á krossi fyrir syndir alls mannkyns, þar á meðal mínar syndir, og með því að biðja hann um að koma inn í hjarta sitt, gefa sér trú og gerast Drottinn lífs síns. Aðeins þegar maður hefur tekið við Jesú sem persónulegum frelsara sínum og fest trú sína á hann, er maður hólpið barn Guðs. Sé þessi trú á fórnardauða Krists sönn og einlæg mun Guð vegna hennar gefa manni fullvissu um að maður fari til himnaríkis og opna skilning manns á sér. Vegna hennar fær maður aðgang að þeim leyndardómum, hamingju, friði, kærleika og gleði, sem aðeins almáttugur Guð getur veitt; ekki bara í hinum komandi heimi heldur einnig þessum. Þó þurfa allir menn annaðhvort að taka við Jesú Kristi, sem er hjálpræði Guðs, eða afneita honum. Guð elskar alla menn jafnt, bæði morðingjann og prestinn. Hann gaf öllum mönnum von með því að deyja í stað allra. En bæði morðinginn og presturinn þurfa að iðrast Framhald á blaðsíðu 23 MUNINN 21

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.