Muninn

Årgang

Muninn - 01.04.1993, Side 22

Muninn - 01.04.1993, Side 22
Hæstvirti herra sálfræðingur skólablaðs Menntaskólans á Akureyri, Munins. (Það má anda núna. Innskot ritstjómar). Mér finnst afskaplega leitt að ónáða yður með lítilfjörlegu vandamáli mínu, en nú er svo komið að ég sé mér því miður ekki annað fært en að brjóta odd af oflæti mínu og fá að njóta góðs af víðkunnri ráðsnilld yðar og hæfileikum (smeðj). Reyndar kýs ég að rita bréf þetta undir dulnefni til að hlífa viðkvæmum sálum og ættingjmn mínum, þar sem þeirra biði annars óbætanlegt sálartjón (snökt). Og hugsið yður, kæri sálfræðingur, hvers konar ófremdarástand ríkti í vom landi ef allar geðdeildir fylltust af ættingum mínum. (Þunglyndi í hæsta flokki). Með kærri fyrirfram þökk fyrir birtingu og góð ráð. Bólu-Hjálmar. P.S. Þú ferð ekkert með þetta lengra. Ef þú segir frá, titturinn þinn skaltu hljóta verra af. En ég er sem sagt með stóra röndótta graftrarbólu á broddnum....... nefbroddnum. Ég hef reynt að fara huldu höfði, en vegna gífurlegra vinsælda og Valentínó-takta hefur það reynst mér best að nota til þess gert getnaðarvarnagúmmí á grýlukertið. En þar sem útgjöld mín vegna þessa eru orðin svo mikil, sá ég mér ekki annað fært en að hafa samband við þig, þó ég viti svo sem vel að það hefur ekkert upp á sig. Þú þama Bólu-hjálmur, hjálmar eða hvað sem það annars er. A I fyrsta lagi, hvem djö... (ritskoðað) ertu að ónáða mig með þessu „vandamáli" yðar ef þér finnst það svona ómerkilegt. Og ómerkilegt er það, varla þess virði að birta það. En vegna yfimáttúrulegrar góðmennsku minnar og fádæma hæfileika mun ég leitast við að verða þér að einhverju liði. ✓ I þínu tilfelli (ég veit vel hver þú ert, og ég get sagt þér að Valentínó-taktarnir bmgðust þér í það skiptið) mundi ég ráðleggja þér að brjóta af þér grýlukertið, merkikertið þitt, og láta græða á þig gogginn af Gunnsa vini mínum. Dr. Tönn. P.S. Svínka þakkar fyrir síðustu helgi. Kæri sáli! Eg á í virkilegum vandræðum og vantar hjálp þína sem fyrst. Þannig er að ég held að konan mín haldi fram hjá mér með skattinnheimtumanninum. Þetta byrjaði á því að hún hætti að vilja svíkja undan skatti, síðan fór ég að finna smokka með jarðarberjabragði út tun allt hús. Grtmur minn staðfestist svo er ég fann svohljóðandi bréf inn á milli reikninganna: „Elskan mín! Ég get ekki 22 MUNINN

x

Muninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.