Muninn

Árgangur

Muninn - 01.04.1993, Síða 23

Muninn - 01.04.1993, Síða 23
beðið eftir að sjá þig. Þú ert næstum, ég endurtek, næstum eins yndisleg og fullkomin skattskýrsla sem skilað er inn á réttum tíma." Þú sérð, kæri sáli að * þetta er alvarlegt mál! Eg meina, ég veit að það er stundum táfýla af mér og ég sofna stxmdum yfir Derrick, en fyrr má nú aldeilis steinrota en steindrepa! Með von um hjálp, einn vonsvikinn. Kæri einn vonsvikinn! Ég er sammála þér í því að þetta er virkilegt vandamál. Það sem ég held að þú þurfir að gera er að vera skattinnheimtumanninum fremri í öllu. Þú gætir t.d. boðið konunni þinni upp á smokka með kóla- eða mintubragði (fást í apótekum og öllum betri bensínstöðvum). Sannaðu til, hún ✓ steinfellur fyrir því! I sambandi við Derrick ráðlegg ég þér að taka Ginsen G 150, en táfýluna verður þú að laga sjálfur. (Ég vil benda þér á bækurnar „500 holl húsráð" og „Heimilislæknirinn"). Gangi þér vel, Dr. Tönn. Framhald af blaðsíðu 21 synda sinna og taka við gjöf Guðs sem er eilíft líf í Kristi Jesú. En hvers vegna þarf að iðrast synda sinna og taka afstöðu til Guðs? Hvers vegna ekki að taka alla menn til himnaríkis án þess að spyrja þá? Guð skapaði mennina fyrir sig til þess að hann mætti elska þá og vera elskaður af þeim. ' Hann hefði getað skapað menn sem elskuðu hann vegna þess að hann gerði þá þannig og þeir þekktu ekkert annað. En fyndist þér þú elskaður/elskuð nema þú vissir að viðkomandi hefði kosið að elska þig? Myndir þú njóta þess að heyra vélmenni segjast elska þig, vitandi það að það segði þetta aðeins vegna þess að þú ✓ hafðir forritað það þannig? Eg held ekki. Af þessari ástæðu skapaði Guð manninn með frjálsan vilja til að maðurinn gæti kosið að elska Guð eða hafnað honum. Kristin trú er því einfaldlega trú á Jesú Krist. Trú á hfandi, almáttugan og persónulegan Guð. Kristin trú er ekki siðir, hefðir og mannasetningar. Hún er heldur ekki einungis trú á að Guð sé til, heldur er hún samfélag við lifandi Guð. Þú sem lest þetta og þyrstir eftir endurlausn og þráir að tómið í hjarta þínu verði fyllt. Jesús dó til þess að geta fyllt þetta tóm. Hann hefur opnað leiðina til sigurs fyrir þig. Hann er uppspretta alls lífs og hann elskar þig. Hann þráir að þú takir við honum til þess að geta sýnt þér hversu mikið hann elskar þig. Jesús sagði: „Ég er brauð lífsins. Þann mun ekki hungra sem til mín kemur. Og þann aldrei þyrsta sem á mig trúir." BirkirM. Kristinsson, l.A MUNINN 23

x

Muninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.