Muninn

Volume

Muninn - 01.04.1993, Page 25

Muninn - 01.04.1993, Page 25
á milli okkar til þess að týna ekki hver annarri. Loks sáum við óljóst glitta í eitthvað dökkt fyrir framan okkur. Við börðumst áfram uns við rákum hausana í eitthvað hart. Þá uppgötvuðum við okkur til mikils léttis að við höfðum villst af leið og vorum nú komnar að Fálkafelli. Við fórum inn í skálann og ákváðum að láta Súlnaferðina bíða betri tíma. Þar drukkum við kakóið okkar og borðuðum nestið og biðum þess að veðrið skánaði. Eftir dágóða stund létti til og við komumst heilar á húfi niður í bæ. Já, þannig fór nú þessi Súlnaferð! Þann 16. des. var svo ákveðið að fara á skauta. Það var eins og fyrri daginn, veðurguðirnir voru okkur alls ekki nógu hhðhollir. Það var mikill snjóbylur þennan dag. Þvílík snjókoma hafði ekki sést í tugi ára. Snjórinn bókstaflega hlóðst upp og það var orðið erfitt að ferðast um bæinn. Okkur Signýju fannst það nú samt skylda okkar að mæta ef svo ólíklega vildi til að einhver ofur- hress hefði ákveðið að mæta svo að við klifruðum upp í jeppann og ókum af stað niður á svell. Er við komum þangað var okkur farið að verða ljóst að við værum kannski full bjartsýnar að ætla á skauta í veðri sem þessu. Enda var svellið lokað og við hröðuðiun okkur á braut og dauðskömmuðumst okkar fyrir þá heimsku að mæta þarna þrátt fyrir þetta mikla óveður og hlógum mjög að sjálfum okkur. Þið sjáið því kæru félagar að við reyndum! - við höfum ekki setið algerlega aðgerðalausar. En eins og ég hef þegar sagt þá erum við staðráðnar í að hafa tilraunimar fleiri á þessari önn og þá er bara að vona að veðurguðirnir verði okkur hliðhollari. Sjáumst heil. / Fyrir hönd UTMA, Ragnhildur, 3. U 8n Eftirtaldir aðilar styrktu útgáfu þessa blaðs: s Fatahreinsun Vigfúsar og Arna Hofsbót 4 Brauðgerð Kristjáns Jónssonar S Ymir sf. - trésmiðja Furuvöllum 9 =vli MUNINN 25

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.