Muninn

Árgangur

Muninn - 01.04.1993, Síða 30

Muninn - 01.04.1993, Síða 30
Að anda gegnum nefið Hún læðist algerlega hljóðlaust um allt breiðir út arma sína umlykur þig umlykur okkur alla. Enginn segir samt neitt því allir eru ókunnugir í strætisvagninum. En það hugsar hver sitt og reynir, eftir megni að anda ekki gegnum nefið. Þórarinn Stefánsson Dagur úr lífi manns. Hér á eftir er ætlunin að rekja raunir ungs manns sem finnst lífið og tilveran ekki eins dásamleg og af er látið. Hann vaknaði upp af værum blundi einn sólskinsbjartan sumardag. Hann varð viti sínu fjær af ótta þegar hann uppgötvaði að hann var orðinn blindur. Hvað ætti hann að gera? Hver ✓ myndi sjá um hann? I örvæntingu sinni nuddaði hann augun en fann þá að hann var bara með svona rosalegar stírur í þeim. Þegar hann ráfaði um íbúðina í þeirri von að finna baðherbergið var hann næstum dottinn um handsápu er lá þarna á rándýru marmaraflísunum sem hann hafði keypt í fyrra. Hann þvoði sér um augun en varaði sig ekki á speglinum og fékk snert af taugaáfalli þegar hann leit í hann og sá þá mynd sem hann verst þoldi, sjálfan sig. Hann var atvinnulaus og það hafði hann verið í langa sex mánuði. Það var svo sem notalegt að vera á atvinnuleysis- bótum og þurfa ekkert að gera en það gat nú samt verið leiðigjamt til lengdar. I dag ætlaði hann niður á torg, svo hann snaraðist í eldgömlu flauelsbuxumar og horgrænu rúllukragapeysuna sem amma hans hafði gefið honum stuttu áður en hún gaf upp öndina. Hann uppgötvaði þegar hann hafði lokað útidymnum hjá sér, að húslyklamir vora á eldhússborðinu en hann ætlaði ekki að hafa áhyggjur af því strax. Áður en hann vissi af, var hann kominn niður á torg, þar sem allt iðaði af fólki. Það var augljóst að klukkan var að verða hálf fjögur, hugsaði hann með sér þegar hann leit á torgklukkuna. Ef til vill hafði hann verið of lengi á kránni kvöldið áður en það skipti ekki máli nú. Hann fékk sér sæti á gömlum bekk á miðju torginu. Þarna var margt um manninn og mikið af undarlegu fólki. Þama var til dæmis ungur snáði í óða önn að snyrta á sér nefið, allir vora uppteknir við eitthvað. Hann tekur upp pakka af filterslausum Camel en fattar þá að hann reykir ekki og hefur aldrei gert, hann hlaut að hafa fest kaup á honum í gærkvöldi, ef til vill hafði hann drakkið of marga bjóra. Já, það hlaut að vera 30 MUNINN

x

Muninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.