Dýravinurinn - 01.01.1891, Side 22

Dýravinurinn - 01.01.1891, Side 22
22 Glói. heí' jafnan átt fjárhunda í betra lagi, en einn þeirra bar þó langt af hin- um öllum og skal jeg því geta hans hjer að nokkru. Hundur þessi var gráflekkóttur, bíldóttur kringum hægra augað og hægra eyrað slapti, vinstri vanginn hvítur; svo var liann mjallhvítur aptur á bóga, íslenzkur að kyni, í stærra með- allagi á vöxt, hálsdigur, bógamikill og snögghærður; hann var kallaður Glói. Fjárhundur var hann svo góður, að hann gjörði hvað sem lionuin var sagt. Hann rak fjeð eins hart eða hægt eins og maður vildi, og það hvort fjárhópurinn hljóp á brekkuna eða undan, eða þó yíir vatnsföll væri að fara; hann var og mjög laginn að fara fyrir fje og færa manni það hvert sem maður vildi; sömuleiðis þurfti jeg ekki aðra enn hann mjer til hjálpar, til þess að koma lömbum á stekk um fráfærur, en opt mæddist hann á þeim leik. Stundum bar það við að jeg hafði engan samferðamann, er jeg fór kaup- staðarferð á haustin með fje og hesta; þó lagði jeg af stað, og rak sjálfur hestana, en ljet hann koma með kindurnar á eptir og allt gekk vel; allt sem jeg niissti eða fleygði sótti hann og færði injer, hvort það var stórt eða smátt; þannig sótti hann ætíð annað skíðið mitt, er jeg missti það í kafaldsbyljum á fjöllum uppi, annaðhvort í ófær árgil eða eitthvað undan brekku. Harður þótti hann í horn að taka ef í hann seig og enginn sem þekkti liann, mundi hafa kært sig um að hafa ofbeldi í frammi við mig, en þó jeg vildi tuskast við einhvern í gamni, þurfti ekki annað enn skipa lionum að sitja hjá og gegndi Iiann því þá þegar; helzti ókostur hans var sá, að hann ljet ófrýnilega við gesti, þó beit liann ekki, nema ef átti að slá hann, en þá sótti hann að því ákaíar; en færi gesturinn að kjassa hann, færðist hann fjær og vildi ekki eiga undir slíkum fleðulátuin; en vegna þess hann skildi aldrei við mig, var jeg jafnan við höndina, til þess að hasta á hann, hvenær sem liávaði heyrðist og liætti hann þá fljótlega. Eitt sinn var það að vinur minn kom að heitnsækja mig og gisti hjá mjer náttlangt; hann hafði gainan af að erta seppa upp, til þess að sjá hvað vondur hann gæti orðið; í baðstofunni var autt rúm, með nokkrum ijalarimlum í botninuin langsetis; hann tekur einn af rimlum þessuin og otar að seppa; hinn þrífur í endann og þeir togast á og dregur hvorugur af öðrum, og var þó maður þessi góður meðalmaður að burðum. Seppi rykkir á og færir sig um leiö smátt og smátt upp eptir fjölinni, þar til hann er kominn svo nærri höndum mannsins, að hann þori ekki annað enn sleppa, en seppi kemur með fjölina og snarar henni fyrir fætur mjer, hleypur svo til baka, og þá er gesturinn búinn að fá sjer aðra og fór nú viðureign þeirra á sömu leið, unz rúmbotninn var búinn; en á meðan seppi færði mjer síðustu fjölina, skauzt vinur minn í læst hús, sein var undir baðstofuloptinu, en seppi komst ekki nema að hurðinni og gelti þar ákaft; talaði jeg þá til hans og stillti hann. \

x

Dýravinurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.