Dýravinurinn - 01.01.1891, Page 34

Dýravinurinn - 01.01.1891, Page 34
34 Fátæka ekkjan varð mjög felmtursfull er hinir skrautbúnu höfðingjar keisarans koinu inn til hennar, og það datt algjörlcga ofan yfir liana þegar þeir spurðu hana um hvað hún hefði gefið til kirkjunnar. „Jeg hef ekkert af að gefa, eins og þið getið sjeð sjálfir, og jeg veit heldur ekki neitt um það, að nafn mitt hafi verið skrifað uppi yfir kirkjudyrunuin í stað keisarans“. Erkibiskupinn sneri sjer þá að konunni og bað hana að hugsa sig vandlega um, hvað hún hefði gjört. Konan f'jell þá á knje ög sagði grátandi og skjálfandi: „Jeg get ekki talið það, það er svo lítið. Jeg gat ekki horft á það hvað uxarnir, sem drógu marmarahellurnar hjerna upp brekkuna urðu að taka mikið út af því vegurinn var svo vondur, svo tók jeg hálminn úr rúminu mínu og allan annan hálm, sem jeg fann og flutti hann niður á veginn, svo skepnunum veitti ekki eins örðugt og áður að komast upp brekkuna. Jeg hef ekkert annað gjört, og ef þetta er rangt gjört þá vona jeg að keisarinn fyrirgefi mjer“. feirn fannst öllum mjög mikið til um orð fátæku konunnar, og lofuðu brjóstgæði hennar og hjartagæðsku; erkibiskupinn ljet múnka sína skrásetja sögu þessa og er hún því til enn fram á þennan dag, þó kirkjan sje fyrir löngu síðan orðin tyrkneskt bænahús. „Sælir eru miskunsamir, því þeir munu rniskun hljóta“. Benedicte Arnesen-Kall. Rakki. Sá er nú meir en trdr og tryggur met) trýnib svart og augun blá, fram á stnar lappir liggur lfki bóndans hjá. Hvorki vott nje þurt, hann þiggur þungt er í skapi, vot er brá, en fram á sínar lappir liggur líki bóndans hjá. Ef nokkur líkib snertir, styggur stinna sýnir hann jaxla þá, og fram á sínar lappir liggur líki bóndans hjá. Til daubans er hann dapur og hryggur dregst ei hurt frá köldum ná, og hungurmorha loks liann liggur líki bóndans hjá. Grímur Thomsen.

x

Dýravinurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.