Dýravinurinn - 01.01.1891, Page 38

Dýravinurinn - 01.01.1891, Page 38
38 Á ýmsan annan hátt geta hestar orðið illir og styggir. J>að er eigi óvanalegt, að tamdir hestar verða allt í einu styggir, og er það vanalegast mönnunum að kenna. J>eir ríða hestunum illa, berja þá og kippa í taumana; eptir þessu man hesturinn og vill því eigi láta ná sjer. f>etta er ritað til þess að vekja athygli þeirra, sein eiga hesta eða temja þá, á því hvers þeir eigi að gæta og hvað þeir eigi að varast. j>egar hestar eru orðnir hrekkjóttir, er áríðandi að vara menn við þeim, en ekki batna þeir við högg eða ilia meðferð. Opt leggja skapvondir eldishestar niður hrekkina, el' þeim er sýnt blíðlyndi og þýð meðferð. Ef hestar hafa einhvern af þeim göllum, sem þegar hafa verið nefndir, er bezt að korna þeiin til manns, sein er gætinn og skynsamur, og þykir vænt um hesta; verður hann þá að annast hestana að öllu leyti. Heppilegasta að- ferðin við þá er, að fara vel að þeim, klappa þeim, tala hlýlega til þeirra, og gefa þeim við og við eitthvert sælgæti, ef þeim þykir það gott; þá mun hesturinn brátt leggja af hrekkina og hænast að manninurn. Vissar reglur er hjer ekki hægt að gefa; þeir, sem vit hafa á hestum, þekkja bezt, hvað við á í hvcrt skiptið. Um fram allt þarf að hafa þolgæði og umburðarlyndi við þá. T. G Kötturinn og erfinginn. JÖgj'nsk kona, að nafni Knight, segir frá því í æfisögu sinni, er hón sjálf hefur ritað, að gömul kona á Irlandi átti ættingja einn, er var málfærzlumaður, og hafði hún arfleitt hann að öllum eigum sínum. f>essi gainla kona átti kött einn, er henni þótti mjög vænt um; vildi hann jalnan vera hjá henni og þegar hón andaðist íjekkst hann ekki til að fara frá líkinu. Erfðaskráin var lesin upp í herbergi einu við hliðina á því, er líkið var í. þegar dyrnar voru opnaðar, rjeðist kötturinn á erfingjann og hringaði sig svo fast utan um háls hans, að naumast var hægt að ná kisu burtu þaðan. Átján inánuðum síðar dó maðurinn, og meðkcnndi á banasænginni, að hann hel'ði ráðið frændkonu sinni bana til þess að ná sem fyrst í arfinn. •sr-ö-ss1--'

x

Dýravinurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.