Dýravinurinn - 01.01.1891, Qupperneq 42

Dýravinurinn - 01.01.1891, Qupperneq 42
42 Góð meðferð á skepnum er heiður og hagnaður. áir dagar líða svo að ekki standi f útlendum blöðum, að einhver hafi orðið fyrir fjárútlátum eða hegningu fyrir úmilda meðferö á skepnum, einkum hestum. Hjer skal sýnt iítið sýnishorn af því: „Vagnstjóri einn úk í gær eptir T — götu; vagninn var þungur og hála-svell á götunni, svo hesturinn hikaði sjer að draga vagninn. Vagnstjórinn batt þá 4 þuml. nagla í svipuúlina og barði hestinn sein úðast, en rjett í því kom lögregluþjúnninn að, og tók vagnsfjórann með sjer á lögreglustofuna; mun hann þar fá að bæta að maklegleikum fyrir fúlmennsku sína“. „Lögregluþjúnarnir túku í gær þrjá vagnstjúra með sjer á lögreglustofuna fyrir illa meðferð á hestum; einn hesturinn hafði sár undir vagnstöngunum, tveir voru haltir og magrir. Vagnstjórarnir og eigendur hestanna voru allir dæmdir til ríflegra fjárútláta“. ,.J gær tók lögregluþjón vagnstjúra fyrir misþyrming á hesti. Hosturinn var staður og vagnstjórinn hafði liaiið hestinn um fæturna ineð trjeskúm“. „Lögregluþjónn í B—götu túk eptir því í gær að vagnstjúri einn hafði haltan hest, fyrir þungum vagni. Maðurinn var sektaður“. dag sá lögregluþjúnn draghaltan hest ganga fyrir vagni í S—götu; hann Ijet strax leysa hestinn frá vagninutn og aka honuin með öðrnm vagni, á kosfnað eigandans, til dýralækninga-skólans. Kaupmaðurinn, sem ljet brúka svona halfan hest, verður sjálfsagt dæindur til fjárbóta, ásamt vagnstjúranuin“. „Vagnstjúri einn fór í gær inn í veitingahús í F—stræti, og varð þar svo skrafdrjúgt við kunningjana, að hesturinn varð að standa í 2 klukkatíma fyrir vagninum í hörðu frosti og var farinn að skjálfa þegar lögregluþjónn kom þar að. Hann ljet leysa hestinn frá vagninum og flytja í hlýtt hesthús, en vagnstjórann túk hann með sjer á lögreglustofuna til sekta“. „Máli fyrir illa meðferð á skepnum hefur nýlega verið skotið til yfir- rjettar bæjarins. Málið er þannig vaxið að 26. júlí næstl. hafði slátrari N. N. ekið í vagni sínum 11/2 mílu; hesturinn sein gekk fyrir vagninuin var heilbrygður. en við hlið hans var bundin 10 ára gömul hryssa, sein var veik í fæti og átti að flytjast til slátrunar. Slátrarinn fúr greitt og barði nokkruin sinnutn bæði hrossin. — Yfirrjetturinn sfaðfesti undirrjettardúminn. Slátrarinn var dæmdur í 50 kr. sekt, eða 8 daga einfalt fangelsi“. „Nautahirðir ralc í gær kú á undan sjer í N — götu. Lögregluþjónninn

x

Dýravinurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.