Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1922, Blaðsíða 8

Heimilisblaðið - 01.07.1922, Blaðsíða 8
88 H E I’M ILISBLAÐIÐ Tóku menn nú franí borðhnifa sina, hver hjá sér, lögðu til vista þeirra, sem á borðum voru og gerðu góð skil. Mjaðar- hornið gekk ört milli manna, en hús- karlarnir voru jafnan viðhúnir að fylla öl- kollurnar. Þegar menn höfðu svalað sárustu matar- þörf sinni, drap húsráðandi hnifskafti sínu í borðið. »Kaldan mat skyldi enginn for- smá, ef ekkert er i pottinum; en heitt er þó betra, og ekki skulu þið svo frá Ríki fara, að eigi hragðið þið svinaspikið! En kyssum nú ölkollurnar, þar til konurnar bera okkur annað undir tönn! Á meðan má margs minnasf, sem bygð vora snertir fyrst og fremst og sérhvern okkar síðan. Hingað barst í gær boðstingurinn1) með orðsending og bréfi um það, að Danakon- ungur muni senda okkur nýjan prest i stað þess, sem Sigurður á Sauðnesi drap fyrir sjö árum síðan. Hvað lízt ykkur, dalsbúar?« Fregn þessi vakti gremju mikla meðal gestanna: »Burt með Jótann!« (svo nefndu þeir jafnan Dani). »Burt með kolserkina! (prestana). Hingað viljum vér engan prest!« Og gamall bóndi einn barði í borðið svo undir tók og mælti: »Niður með Dana- konung og veldið danska! Burt með alt það erlenda hyski. Vér Norðmenn viljum hlýða norskum konungi, eins og áður var!« Þegar lægja tók fyrsla reiðibylinn, sneri Björn að Riki sér að sessunaut sínum á vinslri hönd og mælti: »Hvað leggur þú til málanna, Þór á Kvíabóli, um skipan þessa?« Sá, sem á var yrt, var maður miðaldra, lireinlyndislegur, en þó íbygginn á svip. Hann strauk höndinni um skegg sér: »Vita vildi eg fyrst, hvað þér lízt sjálfum, Björn að Ríki?« mælti hann eftir stundarþögn. i) Boðstingur = Budstikke, d: lokað tréhylki, sem notað var til þess, í Noregi, að senda í opinberar til- kynningar og bréf um bygðirnar. í öðrum enda hylk- isins var langur stálgaddur. Væri enginn heima á bænum, var hylkið skilið eftir þannig, að gaddinum var stungið í húsgaflinn yfir bæjardyrum og var bónda skylt að skila því til næsta bæjar. (sbr. þingboð). Björn virti hann fyrir sér um stund þegj- andi: »t*ví spurði eg þig fyrstan, Þór ólafs- son, að þú ert ættgöfgastur þeirra, sem hér eru. Fyrir þrem mannsöldrum kom lang- afi þinn hingað í bygðina, yfir vesturheið- arnar og keypti Kviaból. Ætt mín er að vísu bæði gömul og fræg, en þó er þín ætt tignari; því að þú ert kominn af hinni voldugu Giskja-ætt og af henni eru komnir bæði jarlar og biskupar. Eg endurtek því spurningu mina: Hvað leggur þú til mál- anna?« »Gjarna vil eg fyrst heyra álit þitt«, svar- aði Þór á Kvíabóli hæversklega. »Þú ert hér húsráðandi og gestgjafi vor, og þótt kominn sé eg af Giskjaættinni, sem fyrrum var voldug og víðfræg, og þannig í ætt við Axel Þórsson riddara, þann, sem margt er um kveðið, þá er þó svo, að ætt þín, Björn að Ríki, hefir jafnan verið, frá ómunatíð, mest metin hér í dalnum. Því mælist eg til þess, að þú segir okkur fyrstur álit þitt!« Björn hugsaði sig um andartak og virti fyrir sér svipbrigði gestanna, hvers af öðr- um. Fram á varir hans var komið napurt reiðisvar, en hann stilti skap sitt og mælti hátíðlegum rómi: »Rétt heflr þú að mæla, Þór Ólafsson. Bændurnir að Ríki hafa frá ómunatíð verið forj'stumenn hér í dal vor- um. Um forfeður mína var eins ástatt og þína ættmenn, þeir fluttust hingað úr ann- ari bygð. Drengur Hugleiksson settist að hér á Ríki fyrir röskum þrem hundruðum ára og var hann kominn af hinum viðfrægu Göltungum. Nú, nú, — en það er óskylt máli því, sem hér er um að ræða. — Dals- bændur góðir! Þér viljið vita hug minn, og skal eg tjá yður hann hreinskilnislega og óttalaust, svo sem sæmir frjálsbornum óðals- bónda. Sé prestur sá hinn nýi norskur maður, sem talar mál sem við skiljum og rækir kirkjuverk sín, en lætur annars afskiftalaus málefni vor, lifnaðarháttu og forna siði vora og venjur, sæmir oss eigi að meina honum aðgang að prestsjörð og kirkju, heldur ber oss skylda til að gjalda honum þá tíund og það offur, sem honum

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.