Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1922, Síða 11

Heimilisblaðið - 01.07.1922, Síða 11
HEIMILISB LAÐIÖ 91 lébarðann til að hafa hamskifti og þvo svertingja svo, að hann verði hvítur. lJeir frændur voru nú skildir að skiftum, en það var þó hann, sem álti að taka bar- ónstign föðurbróður síns að erfðum. Brian fastréð nú með sér, að þann tignartitil skyldi hann aldrei bera, og hann var þó hið eina, sem honum stóð til boða, því að eftir þessa síðustu samfundi þeirra var séð fyi'ir endann á því, að Jósef mundi aldrei sleppa einum eyri af auði sínum við erf- *ngja, sem hefði móðgað liann svona hremmilega. Brian gerði sér nú far um að rýma þessum síðasta viðburði úr huga sér, og knúði nú sjálfan sig til að leggja allan hugann á starfið, sem fyrir bonum lá. Eins og næsta eðlilegt er, þá kom honurn nú til hugar aafinlýrið litla um ungu stúlkuna og rustamenni það, sem móðgaði hana. Hann hafði oft verið sjónarvoltur að sliku og þvílíku í mörgum fátækrahverfunum; hafði hann þar oft fengið færi á að heita sínum styrku höndum til hjálpar; en það hjó eitt- hvað í þessari ungu slúlku, sem fékk sér- staklega á hann. Brian var gæddur mikilli fegurðarlilfinn- Ingu, og þó að hárið á henni Myrtle væri hálítið úfið og hún væri illa til fara, þá hafði hann þó óðara veilt því eftirtekt, að hún var fríð sýnum, bæði í andliti og 'utan Uni sig; en á engu furðaði hann sig þó meira en á mjúka hreimþýða málrómnum hennar. Hann hafði oft séð tötralegar yng- ismeyjar með Maríu-mynda-ásjónum; en hver ögn af þeirri fegurð hvarf honum ems og hjóm, þegar þær ráku upp skríkju- hlátur eða létu gjallar skammir dynja eða létu við hann líklega; en Myrtle var þeim ekki vitund lík í látum né háttum. Hún leh á hann með ró og fullri ráðung á sér; hann hafði aldrei orðið þess var fyr hjá hennar líkum. Hann gat ekki að sér gert að vera ekki að brjóta heilann um, hvað um hana mundi verða, munaðarlausa og alveg einstæða. hyrst ilaug honum í hug, hvorl hann ælli ekki að fá einhvern af trúboðunum eða konurn þeim, sem voru á ferðinni i söfn- uðinum í trúboðserindum, til að fara til hennar; en hann sló þeirri hugsun óðara frá sér aflur, því að hann vissi, að fólk sem þrælar fyrír daglegu viðurværi sínu, er metnaðarfyllra en svo, að það geti þolað að óviðkomandi menn blandi sér i einka- mál þeirra, trú eða breylni. Pað var nú heldur ekki reglulegl fátækra- hverfi, sem hún átti heima í; og þó að þeir, sem hún var hjá, heyrðu til hinum eiginlega verkalýð, þá voru það víst virð- ingarverðir menn, svo að til þeirra gæti hann ekki sent umsvifalaust einhvern úr hjúkrunarliði safnaðarins til rannsóknar. Hann gat eftir þessu eklcert fyrir hana gerl, því að færi hann sjálfur að heimsækja hana, þá mundi það valda mis»kilningi og hann yrði misgrunaður. Hann var svo sokkinn niður í þessar hugsanir, að hann vissi ekkert, hvar hann vsr niður komiun; lolcs vaknaði hann af þessum draumum við það, að hann heyrði margra manna mál og hlátur i kringum sig. Gatan, þar sem hann var nú sladdur líktist nú götunni, þar sem frændi hans bjó; hann var kominn fast þar að, sem fólk var að koma úr samkvæmi; hafði lik- lega verið haldinn dans eða kvöldsamkvæmi í næsta húsi. Gatan var alveg full af vögnum; þeir voru að bíða eftir boðsgestunum; skraut- húnir menn og konur, glóandi af gimstein- um, stóðu þar alveg fram á gangstéllina og hiðu þess, að þeir kæmust af stað. Brian nam staðar augnablik lil þess að virða fyrír sér þessa glæsilegu sýn. Hann gat ekki leitt hjá sér að hugsa lil þess, hvað þetta skrautbúna, káta fólk væri gagnólíld því, er hann átti að venjast í volæðinu, þar sem hann álti heima og honum varð gram- ara í geði en orð fá lýst. Einn einasti af demantskartgripum, sem að hefðarkonur þessar létu skína utan á sér, án þess að hafa hliðsjón af nokkru öðru, sá hann að mundi nægja lil að fæða og ldæða lieilan

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.