Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1922, Side 5

Heimilisblaðið - 01.10.1922, Side 5
HEIMILISBLAÐIÐ 133 mikilli athygli það hlýddi á ræðu mína? Þetta er sennilega í fyrsta skifti, sem orð Drottins er flutt þessum söfnuði á máli, sem fólkið skilur. Jarðvegurinn er frjósam- ur og sæðið þungt; Guð styrki mig og hjálpi Wér, vesölum sáðmanni, og blessi starf mitt, svo að uppskeran geti orðið mikil og gleðileg og honum til dýrðar!« »Aldrei hefi eg heyrt þig tala eins og í dag, lvar«, mælti frú Elisabet. »Og þótt mér fyndist svo, sem hugur minn bærist allur ^eð hinum eldheita mælskustraumi, fann eg hitt líka, að hvert einasta orð hitti mark- ið og náði inn að hjörtum kirkjugestanna, °g það jafnvel hinna þungbrýndu og harð- gerðu manna, sem i kirkjuna komu með ofurhug og stríðsexir í höndum. Og eftir- spilið í kirkjugarðinum mun einnig hafa valdið áhrifum, sem ekki fyrnast«. Síra ívar brosti. »Já, þá fyrst verður unnið traust þessara náttúrubarna, er þeim er einnig sýnt, að eigi skortir líkamlegt at- gerfi. Og þvi var það, að eg hirti ofurlítið hnarreista heljarmennið i kirkjugarðinum«. »Og sú hirting mun hafa góð áhrif, hetjan niin«, svaraði frú Elísabet og strauk hend- mni bliðlega um glóbjart hár mannsins sins. »Eg er óviss um, hvort náði betri tök- Uttl á fólkinu: hrifningin, sem ræða þín °hi, eða aðdáunin yfir aflrauninni!« »Sér þú nú eftir því, Elísabet mín, að þú íórst með mér hingað? spurði síra ívar hliðlega. »Fjarri fer því!« svaraði hún með ákefð. »0g eg skal eftir mætti reyna að hjálpa þér við starf þitt. Eg skal vitja fátækra ogsjúkra, °g skal------!« Dyrnar voru opnaðar og þjónustustúlkan kom inn. »Gamall maður er hingað kom- lnn, sem vill mjög gjarnan ná tali af prest- inum«, mælti hún. Sira ívar undraði þetta, en stóð á fætur. »Svo síðla dags?« varð honum að orði. «Vísið honum til bænastofu minnar og kveikið ljós. Eg lcem«. Þegar presturinn kom inn i herbergi Þetta, nokkrum andartökum síðar, gekk hinn síðförli gestur til móts við hann og rétti honum höndina. »þú mátt ekki reið- ast mér, gömlum manni, þótt eg ónáði þig að næturlagi«, mælti hann, kynlegum og klökkum rómi. »Hrólfur í Árkrika!« varð presti að orði, um leið og hann tók í hönd gestsins, og var bæði undrunar- og gleðihreimur i rödd- inni. »Hjartanlega sért þú velkominn undir mitt þald« »Býður þú mig velkominn, mig, sem svo mjög hefi möðgað þig?« spurði öldungur- inn undrandi. »Þú ert mér betri — i einu og öllu« — hélt hann áfram. «Þessari vin- gjarnlegu kveðju þinni skal eg aldrei gleyma«. »Þú hefir unnið þrekvirki í dag, síra ívar. Þú hefir lagt Dalbúana að fótum þér með ræðu þinni og á þessari stundu ert þú mestur maður bygðarinnar! Frá mér hefir þú tekið hina gömlu trú mína á guði feðra vorra; eg hefi ráfað um sem örvita maður, siðan eg heyrði hina kynlegu kenningu þina í kirkjunni. Hvergi finn eg hvíld né frið! Og þessvegna kem eg nú til þin og bið þig að fræða mig og kenna mér. Seg þú mér meira um Guð þinn, skýrðu fyrir mér þetta mikilvæga málefni, svo eg sann- færist um sanneikann, og getir þú það, skal Hrólfur gamli að Arkrika þakka þér knékrjúpandi«. — Það var liðið langt yfir miðnætti er þeir slitu tali. Þegar síra Ivar kom aftur inn í dagstofuna, sat kona hans þar enn og var niðursokkin í lestur guðsorðabókar. »Þú kemur seint, vinur minn«, mælti hún, lagði frá sér bókina og gekk til móts við hann. Hann vafði hana örmum ástúðlega og mælti með hrifningu: »Fagna þú, guð- hrædda kona, því að mesti blótmaður bygð- arinnar hefir nú beygt kné fyrir hinum krossfesta frelsara. Hamarinn liggur nú mölbrotinn við rætur krossins. Síra Ivar. hélt áfram hinu blessunarríka starfi sínu i Dalnum í mörg ár, með ör- uggri aðstoð ástríkrar konu sinnar og Orms

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.