Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1923, Qupperneq 11

Heimilisblaðið - 01.03.1923, Qupperneq 11
HEIMILISBLAÐIÐ 43 Brian tók stól og- Gig’gles starði stundar- kom þegjandi í eldinn, er síðan mælti hann: „Mér þótti vænt um, að þér komuð hing- að; eg er yður næsta þakklátur fyrir; eg hefði hvergi farið, ef eg hefði vitað það fyr- ir; eg vildi, að þér hefðuð slegið hann í rot“. „Eg hefði nú næstum óskað þess sjálfur", sagði Brian, „það er mesti fantur og fúl- menni; en eg held, að honum hafi skotið svo skelk í bringu, að hann geri yður ekki mein framar". „J>að stendur nú á sama, hvort hann ger- ir það eða ekki“, sagði Giggles þungbúinn, „hann kemur ekki aftur — af góðum og gildum ástæðum". „það þykir mér vænt um að heyra“, sagði Aden, „eg er hræddur um, að dóttir yðar hafi orðið dauðhrædd; en eg vona, að hún hafi náð sér aftur, og hafi ekki veikst“. „t>að veit eg ekki“, sagði Giggles og dró andann djúpt, „hún er farin“. „Farin!“ tók Brian upp eftir honum, og fanst sem hnífi væri stungið í hjarta sér. „Hvemig, eigið þér við — farin “ „Eg segi, eins og eg veit sannast“, svaraði Giggles anguivær; „hún hvarf héðan í gær- kvöldi eða í morgun, — og mig furðar það alls ekki. Hún vissi vel, að ef hún yrði hérna áfram, þá mundi konan mín — eða réttara sagt maðurinn þessi, þorparinn, mundi sitja Ufti hana — og hún gæti aldrei verið í friði fyrir honum, — eg get ekkert annað sagt, en aS hún hafði rétt fyrir sér, en eg er ógn kvíðafullur út af henni. Eins og þér vitið, þá er Myrtle fríð stúlka, og jafnvel meira en það“. „Já, hún er einkar fríð stúlka“, tók Brian hljóðlega upp eftir honum. „Já, og það er nú hið versta; einmitt það gjörir mig svo hugsjúkan út af henni; ófríð- ar stúlkur eru miklu óhultari; þær eru ekki ems —og hann strauk hendinni um skeggj- aða hökuna. „Eg hefi verið að leita að henni 1 allan dag; en hvemig ætti maður að geta fundið eina smámey í allri Lundúnaborg, sér- staklega ef hún fer huldu höfði ? Myrtle mín er líka forsjál, hún veit, hvernig hún á að halda sér leyndri; sjáið þér, hvað hún skrif- aði mér“, sagði hann svo, og rétti Brian kveðjubréfið frá henni yfir borðið. Brian var ógn þreyttur; hann hafði í svo mörgu að stríða um daginn, að hann var rétt orðinn ömiagna. þegar hann var búinn að lesa bréfið, laut hann líka fram á við og horfði í eldinn, og reyndi að rýma úr huga sér öllu hinu marga, sem nú kom þar upp, og alt laut að hinu sama, hve hjálparvana og vinalaus hin unga stúlka hlyti nú að vera — ein síns liðs í þessari stóru borg, og nú lægju fyrir henni ótal hættur. „það getur verið, að hún hafi farið til ein- hverra vina sinna, eða gæti það ekki verið ?“ sagði Brian hljóðlega. „Nei“, svaraði Giggles og hristi höfuðið, „fólk, eins og við, á enga vini, og ef við hefð- um átt einhverja vini, þá mundi Myrtle ekki hafa -felt sig við þá; hún var gjörólík öllum ungum stúlkum hér í nágrenninu; hún var alt af út af fyrir sig. Nei, Myrtle átti enga vini“. Brian leit hugsandi á Giggles; hann var ólíkt viðfeldnari en herbergið hans, og á máli hans mátti marka, að hann var af betra bergi brotinn en flest fólk annað í Digby- stræti. „það getur verið, að hún komi aftur í kvöld“, sagði Brian. „Nei, það gjörir hún ekki“, sagði Giggles hiklaust, „hún kemur hingað aldrei framar. En heyrið þér, eg heyrði ekki almennilega, hvað þér sögðust heita". „Aden — Róbert Aden“. „Eg ætla að segja yður eins og er, hún er ekki dóttir mín, eg tók hana mér í dóttur stað“. Brian var það léttir og fró, að svo skyldi vera; það var þó mikil bót í máli, að hún var ekki dóttir þessa hræðilega diykkjukvendis, sem hann sá þar kvöldið áður. „Eg veit ekki einu sinni, hvers dóttir hún er“, sagði gamli maðurinn; honum var það hin mesta fró að geta sagt hinum unga

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.