Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1923, Blaðsíða 15

Heimilisblaðið - 01.03.1923, Blaðsíða 15
HÉIMILÍSBLAÖÍÖ 47 Þegar Adam ogEva höfðu syndgað, hugðu þau að fela sig fyrir Guði; og því miður leita fleiri þess Lokaráðs. Hvenær hættir þú að leita Guðs? — hvenær hættirðu að hafa ánægju af að koma í kirkju? — hve- nær lagðirðu bibliuna þína á hylluna? Var það ekki einmitt þegar hin yfirvofandi hrösun hafði átt sér stað? Þú varst ótta- sleginn, og þér fanst sem hvert orð Guðs hefði í sér fólginn áfellisdóm yfir þér, og í hugleysinu lagðirðu á flótta — og faldir Þig. Aftur hljómar Guðs orð til mannanna, urn fullnægingu fyrirheitisins: »Yður er frelsari fæddur«. En þeir sinna því ekki. Og svo eru þrældómsokin mörgu, sem hefta og hindra: daglega amstríð, tillit til annara — hvað þeim muni sýnast um þetta eða hitt, tízku-dekrið, gamlar syndavenjur °g ótti við menn; ó, hvílíkar hömlur á andlegum þroska æskulýðsins! Enn segir Guðs orð: »Ef sonurinn gerir }'ður frjálsa, niunuð þér verða sannarlega frjálsir«. En Vegna hins þunga þrældóms gefur hinn uaæddi maður því ekki gaum — sinnir því þvi ekki. Ó, hve hörmulegt hlutskifti: að van- megnast rétt hjá uppsprettu líjsins! [Kæri ungi vinur! Þetta er sett hér í blaðið til viðvörunar. Haltu fast við orð Guðs. Þú mátt reiða þig á það! Hættu aldrei að ganga í kirkju. Og gerðu þér það að fastri reglu, að lesa daglega í biblíunni þinni. Pá mun Guð gefa þér sigur yflr fi'eistingunum — og þá þarftu aldrei að ^eggja á flótta og fela þig]. (E. Borregaard. Á. Jóh.). 0 Stafur heimilis-agans og skóla-agans er eins °g stafur Arons. Kasti menn honum frá sér, Þá verður hann að höggormi; en sé hann tekinn og lagður inn í helgidóminn frammi fyrir augliti Guðs, þá ber hann blóm og ávexti. Dr. Barth. Hu3SsÍá- Dálitla hugmynd geta menn gert sér um þá mergð af skrifstofum, sera eru í skýbrjót- unum í Ameríku. í Hudson-Terminal-bygg- ingunni í New-York eru t. d. 3000 talsímar (helmingi fleiri en í allri Reykjavík). Bygg- ingin er 55 hæðir og samanlögð lengd síma- línanna, sem um húsið liggja, er 125 dansk- ar mílur. Strax þegar krókódílsunginn er skriðinn úr egginu, getur hann farið að bjarga sér sjálfur. Pó hann sjái ekki vatnið, sem er í nánd við hann, skriður hann þó þangað og fer að leita sér að fæðu, — þar er ekki langur ómagahálsinn. Sagt er að fornfræðingar, sem starfa í Jerúsalem, hafi fundið rústir hins fræga musteris Heródesar konungs mikla í Askalon. í þeim bæ var Heródes konungur fæddur og hann skreytti bæinn með byggingu þessa musteris og Jósephus sagnaritari Gyðinga segir svo um byggingu þessa, að hún sé hin skrautlegasta og undrunarverðasta í alla staði. í rústunum hefir meðal annars fundist stand- mynd af Heródesi konungi. Henry Ford, ameríski miljónaeigandinn, er strangur bindindis- og bannmaðnr. Hann hefir lýst því yfir, að ef nokkur maður eða kona, sem hjá honum vinnur, yrði uppvís að því að drekka áfengi, þá sé hann eða hún þegar ræk úr vinnustofum sínum. — Hin elsta bankaávísun, sem menn þekkja, er frá Kína; hún er útgefin af Hung-Wus keisara fyrir 550 árum siðan. Nú er hún geymd i Britisk Museum í Lundúnum. Pað er ekki óalgengt á Indlandi, að börn sjeu deydd, sérstaklega stúlkubörn, og er þeim þá oftast gefið inn ópíum. Petta er gert til þess að fyrirbyggja offjölgun fólksins. Og

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.