Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1925, Side 17

Heimilisblaðið - 01.07.1925, Side 17
HEIMILISBLAÐIÐ 103 saman til pess að geta látið uppi hugsanir sínar hvorir við aðra um antlleg og veraldleg kenslumál. Var pví ákveðið, að [)eir skyldu koma saman aftur í haust. ----—•> C-> - Skuggsjá. Feiknafár. 1 Genfar-vatninu í Sviss hefir kom- ið upp bráðafár mikið í fiska, sem lifa í pví vatni. Vikum saman hafa 10,000 fiskar orðið pessari pest að bráð dag hvern, Pessu veldur Sóttkveikja ein í vatninu, sem enginn hefir pekt fyr en nú. Hitabylfljan í Bandaríkjunum. Síðasta hitabyigjan, sem gekk yfir Bandaríkin, var heitari en allar aðrar slíkar bylgjur, sem Bandaríkja- menn hafa orðið að sæta. 1 Washington tókst meðal annars að sjóða egg á aðalgötu borg- arinnar; pau soðnuðu á 9 mínútum. Bííluflur gegna lögreglustarfi. Býflugurnar eru iðnar og ötular, eins og vér vitnm; en hitt inun vera flestum ókunnugra, að hægt sé að beita peim eins og lögreglusveit til að skakka ijótan leik. En petta tókst óðalsbónda einum í Prohns- porpi í Prússlandi. Bændurnir á óðali hans voru komnir í hár saman og börðu hver ann- an sem óðir væru. Óðalsbóndann bar par að og ætlaði að ganga á milli peirra og koma sáttum á, en pað kom fyrir ekki. En pegar nann sá sitt óvænna með petta, pá laumað- !st hann út í aldingarðinn sinn, bjó sig grímu- búuingi og kom að lítilli stundu liðinni til bændanna aftur með afhjúpað býflugnabú í fanginu. Bændurnir börðust af hinni mestu g'ritnd. Pegar býflugurnar komu til sögunnar, Þá var leiknum lokið á augabragði og bý- flugurnar hurfu heim til sín aftur von bráðar °S voru hinar ánægðustu með leikslokin. Kolanám. Kolanám er hættulegur atvinnuveg- Ur- Enskum námamönnum, sem eyða mestum flluta æfi sinnar niðri í dimmum og óhollum námugöngum, telst svo til að eitt mannslíf týnist við hverja miljón smálesta af kolum, sem unnin eru. 1 Aineríku eru peir líka margir, sem týna lífinu hlutfallslega við kolanámið. Árið 1920 vorn par teknar upp 658,000,000 smálesta af kolum, en 2271 námumenn týndu lifi við pað. Sundkappi írá Japan. I sumar ætlar sundkapp- inn S. Nishimura að synda yfir sundið milli Englands og Frakklands (frá Dover til Calais). Kveður hann svo djarflega að orði, að harin muni geta synt alla leið á 16 klukkustund- um. Býr hann sig nú undir sundpraut pessa af miklu kappi. Hann er 6 stundir í sjó dag hvern og lifir eingöngu á eggjum og ávöxtum. Kállaroir, sem Sluppu. Freklega 250 kálfum var hleypt á land í hafnarborginni San Juan á eyjunni Porto Rico í Vesturheimseyjum. IJeir voru grindaðir á hafnarbakkanum og pjappað vel saman. En pegar minst varði, spentust grindurnar sundur og kálfarnir hlupu allir í einni pvögu út á aðalgötu bæjarins. Lögregl- an og brunaliðið var pá kvatt á vetfang og var nú tekið að elta uppi kálfana. Allir borg- arbúar klifu upp á húspökin og horfðu á pennan hugfangandi eltingaleik.' Kálfarnir í’éðu sér ekki fyrir fjöri og kæti yfir frelsinu; en seint og um síðir tólcst pó yíirvöldum borgarinnar að handsama alla kálfana. Loftskeytakvikmyndir. Ungur maður í Bandaríkj- unum sýndi fyrir skemstu nýja uppgötvun, sem talið er að muni marka ný tímamót í sögunni. Hann sýndi, hversu menn mundu framvegis geta með loftskeytatækjum einum fylgt atburðum, sem eru að gerast í margra mílna fjarlægð. — Petta verður með einskon- ar kvikmyndatöku og lætur hann kvikmyndir pessar verða sýnilegar á hvítu líni. Uppfundn- ingamaðurinn sýndi pessar myndir sínar að viðstöddum Wilbur, flotamálaráðherra Banda- ríkjanna.

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.