Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1925, Síða 9

Heimilisblaðið - 01.10.1925, Síða 9
HEIMILtSBLAÐIÍ) 137 þær höfðu ekkert hugboð um upprisu hans. Ef skoðun Aðventumanna væri rétt, þá hefir söfnuður Krists því sem næst frá upp- hafi brotið eitt hið helgasta boðorð Drottins og' þá væri það engu minni synd en að stela, ljúga og sverja! Og þá hefir Drottinn veitt starfi allrar kristninnar vöxt og viðgang nærri því eingöngu með þssu „broti“. 72. Aftur og aftur hafa sabbat-haldendur komið fram á liðnum öldum og gert sér far um að vinna Guðs verk; en Drottinn hefir eigi þurft þeirra við og þeir hafa litlu á leið komið og leið brátt undir lok. 73. Allir þeir, sem unnið hafa sérstaklega blessunarrík störf í þarfir kristinnar kirkju, hafa undantekningarlaust haldið sunnudag- inn heilagan, en ekki laugardaginn. 74. Á liðnum öldum kristninnar hefir ekki einn einasti frægur vakningapredikari hald- ið laugardaginn heilagan. þessar óhagganlegu staðreyndir ætti að nieta meira en allar þær hártoganir, sem Að- ventumenn beita tii að efla sem mest helgi- hald hins gyðinglega hvíldardags. Tigramaðurinn. Endurminningar frá Indlandi. Nokkrum árum fyrir heimsstyrjöldina síð- ustu dvaldi ég austur í borginni Bombay á Indlandi. Eg var að búa mig til ferðar langt inni í landi, til að ná þar 6 tígrum, sem þeir í Amsterdam höfðu beðið mig að útvega sér. í þeim sömu svifum varð næsta einkenni- legur maður á vegum mínum. Eg var búinn að vera 2 ár á Indlandi; var og þar fulltrúi úýrasölu-verzlunar og hafði undir mér full- D'úa í 10 héruðum. Vér vorum alt af að senda höggorma, sjakala, hýenur, úlfa, huffla og tígra og hverskonar dýr önnur sem kengu í gildrur vorar. Við vorum við og við fá sérstakar pantanir, t. d. frá Egipta- Inndi eina um sex fullorðna tígra, og karl- tígra fremur en kventígra. þá voru undirfull- trúunum send orð og eg bjóst til að fara norður og austur í tígraskógana. Svo var það eitt sinn að áliðnum degi, að hinn fyrnefndi tígramaður, Geval að nafni, gaf sig fram. Hann var hár vexti og öldurmannlegur; en í framan var hann hræðilega afskræmdur, svo mig rak í rogastanz við að sjá hann. Hann var fæddur eineygður og þetta eina auga var nærfelt í miðju andlitinu. Nefið var eins og hundstrýni, munnurinn breiður, varir þvínær engar og fullur af höggtönnum og skögultönnum. það var auðséð á honum, að hann bjóst við, að eg mundi verða steinhissa, þegar eg sæi hann. Hann gaf mér nægan tíma til að skoða sig í krók og kring. Að því búnu hneigði hann sig djúpt og mælti: „Mér er sagt, herra, að þér séuð dýraveið- ari“. ,,Já“. „þér veiðið þau lifandi“. „Já“. „Mig langar til að fara með yður. þeir kalla mig tígramanninn. Eg er ekki smeykur við nokkurt óargadýr; ekkert dýr þorir að ráðast á mig“. Hann sagði m,ér að hann kæmi frá þorpi, er Djópur héti, hjá Gadavery-fljóti, 200 míl- ur þaðan, sem við vorum. Og þar mundi grúi manna sanna orð sín. Eg var tvisvar búinn að heyra sagt frá þessum manni, árið sem leið, og furðuverk þau, er hann gjörði, en eg hafði ekki lagt trúnað á þær sögur. En eg sá fljótt að hann hafði með sér undra kraft til að dáleiða óarga- dýr. 1 næsta bæ til hægri handar bjó höfuðs- maður T. í hinu þarlenda fótgönguliði. Hann átti grimman hund og hafði hann í hlekkj- um að húsabaki. Hann var skaðræðisskepna og var búinn að vera 2 mánuði í tjóðri. þjónninn varð að fleygja til hans matnum og höfuðsmaður sjálfur þorði hvergi nærri að koma. „Fyrst þér eruð tígramaður, þá eruð þér víst ekki smeykur við grimman hund?“ spurði eg, þegar hann var búinn að segja sög- urnar af töfravaldi sínu.

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.