Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1932, Page 6

Heimilisblaðið - 01.01.1932, Page 6
4 HEIMILISBLAÐIÐ hætta liggur nærri að menn komist út í öfgar. — Margir halda að koma Drottins sé alveg fyrir dyrum. Hann komi mjög bráðlega. En svo eru aðrir, sem álíta, að það geti víst líka dregist eitthvað enn, að Drottinn komi. Sannleikurinn er sá, að þegar vér lít- um yfir ástandið í heiminum á vorum tímum, Pá hljótum vér að sjá að heimur- inn er í heljargreipum þeirrar kreppu, sem ekki á sinn líka í sögu alls mannkyns- ins. Það er sú alvarlegasta, djúptækasta og- víðfeðmasta kreppa, sem nokkkru sinni hefir komið yfir mannkynið. Hún er víð- tækust í fyrsta lagi vegna þess, að hún nær yfir allan heim. Það hefir komið mik- il og alvarleg kreppa oftar en einu sinni áður yfir mannkynið. En þá hefur hún að- eins náð yfir meiri eða minni hluta af heiminum. En það er öðruvísi á vorum dögum. Nú er svo komið, að hinir ólíkustu og fjarskyldustu þjóðflokkar mannkynsins hafa flutst nær hver öðrum. Fjarlægðirn- ar eru orðnar litlar. Mönnunum er nú orðið ljóst, hve allt mannkynið er í rauninni ein samfeld heild. Kreppan nær til alls mann- kynsins sem einnar heildar. Hún er engu minni í Kína og Indlandi en í Evrópu og Ameríku. Hún nær ekki eingöngu til hvítu þjóðflokkanna, hún nær engu síður til lit- uðu þjóðflokkanna. Meira að segja frum- þjóðirnar (villiþjóðirnar) fara ekki var- hluta af henni. En þessi kreppa er ekki að eins víð- tækasta kreppan af því, að hún nær til alls mannkynsins, heldur einnig vegna þess, að hennar verður meira eða minna vart á öllum sviðum mannlísins. Yfirleitt er ekki hægt að nefna eitt einast svið mann- lifsins, þar sem kreppan hefir ekki náð tökum. — Vér getum hér minst á nokk- ur svið. Vér skulum þá byrja á því, sem vér höf- um þegar minst á og' sem flestum er mest hugleikið, enda þótt það sé ekki það stór- kostlegasta. — Það er viðskifta- og fjár- málakreppan, kreppan á atvinnumála verslunarsviðinu. — Það er of lítið sagt að það séu örðugleikar í viðskifta- og atvinnulífinu. — Það er beinlínis óskiljan- legur glundroði. Hlutfallið milli framleiðslu og neyzlu er úr lagi gengið. Mennirnir koff- ast ekki yfir að notfæra sér allt það, sea1 þeir geta framleitt. Framleiðslan í he'irn' inum er miklu meiri en nóg. En það hlý^" ur að vera eitthvað meira en lítið í ólag1’ því fjöldi manna á við skort að búa, enda þótt framleiðslan sé svona mikil. Miki^ hluti af vinnuafli heimsins er ónotað. Það eru miljónir og aftur miljónir atvinnn- lausra manna. Viðskiftalífið í heild sinn1 er orðið svo margþætt, flókin vél, að menn- irnir ráða ekki lengur við hana. Pening' ar, verðbréf, ríkis- og bæja skuldamál, la11' tökur og lánveitingar, bankastarfsemi allt þetta, sem snýst um óeiginleg og búin verðmæti, en ekki raunveruleg, hef' ir fengið þvílíkt vald, að það kemur v1^' skiftalífi heimsins á heljarþrömina. Það ei svo komið, að mennirnir ráða ekki v1^ neitt lengur. — Menn spyrja hvort nokku1 bót sé í vændum. Mörgum ætti að vel’a ljóst að annað hvort verður að fara fran1 alger umsköpun á sviði viðskifta- og vinnumála eða að alt þetta hlýtur að enda með ósköpum. — Já, hvernig verður lausn- in á viðskiftakreppunni? Hvernig verðui atvinnumálunum komið í betra horf? I nánu sambandi við viðskifta og fial' málakreppuna er svo stjórnmála og’ ÞÍ^' félagskreppan. Það brakar og- brestur 1 undirstöðum þjóðfélagsbygginganna. Hiu11 miklu landvinningar 19. aldariinnar, lÝ^' ræðið, er nú statt í stormi og baráttu un1 líf og dauða. Þingræðið virðist að þrotun1 komið. Þjóðirnar eru friðvana, ólgan el svo mikil, andstæðurnar, sundrungin, upP' lausnin vex svo hröðum skrefum, að Pa ber þingræi og lýðræði ofurliði. Upprunalega voru aðeins tveir stói’11 flokkar í hverju landi og á þingunun1’ íhaldsflokkur og frjálslyndur flokkur. Síð'

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.