Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.02.1931, Qupperneq 4

Heimilisblaðið - 01.02.1931, Qupperneq 4
24 HEIMILISBLAÐIÐ landi til annara landa. I Kína, Rússlandi, Suóurhafseyjum og jafnvel á Egiptlandi bendir allt til, að konur hafi verið látnar fylgja mönnum sínum dauðum. Nú á tímum hafa ekkjurnar þad ekki alt af r/ott, þerjar madurinn er dáinn. f’rssi selur ávexti á götunni. Það er sag't að Alexander hinn mikli hafi á herferó sinni til Indlands verið við- staddur, er ekkjur voru har brendar, og féll honum og mönnum hans það mjög illa og kenndu í brjósti um konurnar. Og sagt er að Mogúl-keisararnir, sem réðu fyrir miklum hluta Indlands frá 1500, hafi barist ósleitilega gegn þessum sið. Þegar Englendingar lögðu Indland und- ir sig, þá skiftu þeir sér fyrst ekkert af jiessum ekkjubrennum; þeir vissu hverjum erfiðleikum það mundi valda, ef þeir færu að blanda sér í trúarsiði Indverja. En til lengdar gátu þeir ekki þolað þennan hrottalega sió. Og þar sem margir Ind- verskir þjóðhöfðing'jar voru andvígir þess- um sió, þá þótti Englendingum í’étt að taka í taumana. Árið 1815 fóru fram 378 ekkjubrennur og 1818 ekki færri en 839. Þegar svo bann- ið var gefið út, var búist við uppreist hjá her Indvei’ja, og stjórnin í Kalkútta sendi Englendingum mótmælabréf; en það bar engan árangur. I smáríkjunum uppi í landi, sem ekki lutu Englendingum en Englendingar voru aðeins ráðgefandi, .hélst siðurinn enn lengi. Og það kemur jafvel fyrir enn. Árið 1927 stökk ekkja ein í Bihar í bál manns síns og múgurinn aftraði lögreglunni frá að skifta sér af því. Þegar konan sá að log'- inn hafði læst sig í hana, þá hljóp hún samt ofan og stökk út í fljótið. En þótt henni væri bjargað frá drukknun, þá var læknum ómögulegt að komast til hennar fyr en hún var dauð af brunasárunum; svo var hún umsetin af Indverjum, sem streymt höfóu þangað úr öllum áttum til þess að tilbiója hana. — Minnisvarðar margra þjóóhöfóingja bera vott um margar ekkjubrennur á liðnum öldum. Meó öllum veginum upp að borg- inni Chitor, sem áður var blómleg borg, standa minnisvaróar; eru á þá markaðar hendur kvenna, er týnt hafa lífi sínu á þenna hátt til að fylgja mönnum sínum. Og á Mahasatisvæðinu, fyrir utan Udaj- púr, er fjöldi legsteina, sem bera vott um, að drottningar hafi fylgt konungum sín- um á sama hátt. Eru það silfraóir stein- ar í hóp utan um rauðmálaóa steina. Það var yfirleitt sjaldgæft, að einstök kona stigi á bál — þær geróu það oft svo hunar- uðum skifti. Og á einum stað á Suður-Ind- landi tvö til þrjú þúsund konur í einu, er

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.