Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.02.1931, Blaðsíða 8

Heimilisblaðið - 01.02.1931, Blaðsíða 8
28 HEIMILISBLAÐIÐ I flyrmœtu dro-.um. — Varir hans voru skorpnar og sprungnar. Hann lifói þau augnablik öðru hvoru, að hann óttaðist sjálfan sig. Þorstinn var hræðilegur, og löngunin nærri ómótstæðielg til að grípa brúsann og tæma hann í botn. Hann gat gert það. Hérna rétt vió hliðina á honum voru fáeinir munnsopar af vatni. Og þaó var enginn, sem gat meinað honum að neyta réttar síns. Hér var aóeins unga stúlkan í afturskutnum og maðurinn, sem lá eins og duður við fætur hans. Hvers vegna ætti hann að vera að hugsa um þessar tvær manneskjur? Þær voru honum einkis virói. Hún fylltist hryllingi, ef hann snerti hana, og maðurinn blótaði honum og bannsöng langar leiðir. I þeirra augum var hann illþýði og villidýr, — óskepna, sem átti ekki einu sinni skilið að lifa. Hvers vegna ætti hann þá að vera að hugsa um þau? Hann átti vatnið með eignarrétti hins sterkasta. Hann heyrði gutlió í því á brúsanum, og hljóóið ætlaði alveg aó gera hann sturlaðan. Þaó var al- veg óbærilegt. »Guð minn góður«, tautaði hann, »hjálp- aóu mér til að halda orð mín!« Þá var það eitthvaó, sem hreyfói sig rétt við fætur hans og stundi. Honum datt hinn maóurinn í hug, Effington lávarður. Og hann fór að brjóta heilann um hvaða samband myndi vera á milli þessa manns og ungu stúlkunnar — hvort hann væri bróðir hennar, — frændi, eóa ef til vill unnusti hennar. Hann mundi að maðurinn hefói kallað hana Elsu, og að hún hafði kallaó hann Giles. Það var eitthvað annað og meira á milli þeirra en eintómur ferða-kunning- skapur. Hann leitaðist við að festa hugann við þessi heilabrot, aðeins til þess að fara ekki aó hugsa um vatnið. Allt í einu fann hann eitthvaó hreyfast við hliðina á sér. I myrkrinu kom hönd fálmandi og þreif í brúsann. Hendur þeirra rákust á í myrkrinu, og í augna- bliks bræói sló Ralph út í myrkrið. Hann hitti eitthvað — andlit hins mannsins — og stynjandi hneig maðurinn aftur ofan á bátsþyljurnar. Nóttin var stutt — eins og hún er ætíð á þessum breiddargráðum. — Senn varó mvrkrið grátt, breyttist í þokukenaan, gráan hjúp, sem gyltar geisla-örvar smugu óófluga gegnum; svo fossaói sólar- ljósió út yfir hafið, og það varð dagur á ný. III. Pau sem eftir lifóu. Ralph reis á fætur. Hann var máttfar- inn og svimaði. Eins langt og augað eygði lá hafið glitrandi í sólskinuinu, án þess að nokkur blettur sæist. Undanfarna daga hafði hafið verið lognkyrt og spegilslétt, en nú gáraðist það af hægum andvara. Þessi himinsendi vindblær hafði rofió tilbreytingarlausan hafflötinn og breytt honum í óteljandi glitrandi smábylgjur; kulið blés gegnum hárið á honum og sval- aði honum um andlitið. Hann teygaði hinn hressandi svala djúpt og lengi og bað í hljóði allar helgar vættir, að þetta mætti vara sem lengst. Hinn maðurinn í bátnum lá eins og hrúga við fætur hans. Andlitið sneri nið- ur og hendur og fætur stóóu svo skringi- lega út í loftið. Ralph laut nióur og reyndi aó reisa manninn upp, en höfuð hans hneig mátt- laust nióur aftur. »Dauður, veslingurinn!« tautaói hann. »Mér þykir fyrir að eg barði hann, en eg var neyddur til þess. Jæja, honum líðnr þó betur, þar sem hann er nú«. Hann helti í krúsina úr brúsanum og' ætlaði á aó nú væri aðeins ein krds eftir af vatninu. Síðan setti hann brúsann nið- ur í kjalsog bátsins, svo að hann skyldí sem minnst standa í sólskininu, og svo gekk hann með fulla krúsina afíur eftir bátnum til stúlkunnar. IJún hafói sofið, en er hann nálgaóist, opnaði hún augun.

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.