Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1912, Side 7

Heimilisblaðið - 01.10.1912, Side 7
HEIMILISBLAÐIÐ 79 eg hrossafeiti frá í fyrravetur, sem hún var að bræða og treina við handa okkur. Mér þykir betri góður bræðingur heldur enn smiör- líkið, sem fólk er að neyta og veit ekkert úr hverju er búið tii. Það skársta af kindaskjátunum er látið í kaupstaðinn; það er ekki orðinn mikill skurð- ur hjá bændum á við það, sem var í ung- dæmi mínu. Alt er sótt í kaupstaðinn, og ekki held eg, að kaupmenn selji okkur sveitabændunum ódýrara en ykkur“. „Nei, það er nú víst likt“. sagði Bjarni: gÞað er nú alt að hækka í verði hjá þeim“. „Er það skemtilegt!" sagði Jón. „Einkum það, sem menn geta með engu móti án verið“, hélt Bjarni áfram, „t. d. kaffl, sykur og tóbakið. Bað er þó enginn hægðarleikur fyrir gamla menn að venja sig af því. Eg segi fyrir mig, að eg yrði alveg vitlaus ef eg hefði ekki upp i mig eÖa í píp- una til lengdar". „Sama segi eg“, sagði Jón, „eg býst við að eg yrði ekki rólegur til skapsmuna ef mig vantaði i nefið", og um leið tók hann skinn- tuðru upp úr vasa sinum, nuddaði hana á milli handanna, helti síðan tóbaki á handar- bakið og saug upp í neflð, eins og það gat tekið á móti, en lét afganginn fara niður. nEg læt það nú vera, þó að við fáum okk- ur og í neflð", hélt Jón áfram, „og einstaka sinnum geflns á glasið, he he he, það setur okkur aldrei á hausinn, en glingrið og óþarf. inn, sem kvenþjóðin er að heimta með hverri ferð, það kostar skildinginn. Eg skal nú segja þér dæmi: Hún dóttir min ætlar suður í Reykjavík í haust að menta sig til munns og handa, og þessvegna þykist hún þurfa að fá stígvélaskó — þá er ekki hægt að notast lengur við Bauðskinnskóna — svuntuefni og nýtt slipsi. Mér sýndist nú, að hún geta notast lengur við gamla silkiklútinn, hann er ekki orðinn svo slitinn, þó að hann sé eftir hana ömmu hennar sáluðu. Og svo er konan að þessu sífelda nuddi, nú bað hún mig um hálft pund af rúsínum, gerpúlver fyrir 10 aura, kanel fyrir 5 aura, lárberjalauf fyrir 3 aura, — það hefði einhver vinkona hennar talið henni trú um, að gott væri að hafa það í graut — pipar fyrir 2 aura og saltpétur fyrir annað eins, já, margt fleira, sem eg man ekki að telja upp, og setti það heldur ekki á minnið. Bað er ekki lengi að koma í krónuna með þessu lagi“. „Já, ekki held eg að okkur kaupstaðar- búunum ofbjóði þetta", sagði Bjarni, „þær eru heimtufrekari en þetta kaupstaðarkonurn- ar og þá ungu stúlkumar ekki síður, sem vilja helst fá nýjan silkikjól fyrir hvern dans- leik. Ef þú þektir það alt eins og það er, þá mundi þér verða nóg boðið. Nú, en margt smátt gerir eitt stórt, segir máltækið, og það er ekki lengi að draga sig saman, þegar alt er eins dýrt og það er nú. Og ekki batnar þegar stiku metra-lítra-kilómetrið, eða hver þremillinn það heitir kemst á. Það hafa sann- orðir menn sagt mér, og eg er líka alveg viss um það, að það heflr einungis verið búið til fyrir kaupmennina, svo þeir eigi hægara með að féfletta ómentaðan almúgan. (Frh.). v Draumur. Eftir K. P. Rosogger. Eina nótt dreymdi mig þennan draum: Guð sat í dómarasæti sínu og kallaði stór- menni heimsins fram fyrir sig, hvert eftir annað ------- „Guð sagði við Móse: „Hvað heflr þú geflð þjóð þinni?“ „Lögmálið". „Og hverju hefir það komið til leiðar?" „Syndinni". Pví næst spurði hann Karl mikla:

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.