Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.02.1915, Qupperneq 5

Heimilisblaðið - 01.02.1915, Qupperneq 5
HEIMILISBLAÐIÐ 13 „YiS verðum aS láta síga undan“, sagði God- vin loks. Þvi hér er vegurinu breiSari og hægara að komast að baki okkur“. Þeir véku til baka hægt og hægt, en höfðu altaf augun á óvinurn sínum. „Þá erum við hingað komnir“, sagði God- vin og brosti ofurlítið. En ertu nokkuð særð- ur bróðir minn?“. „Nei“, svaraði Wulf. En brostu ekki fyr en bardaginn er á enda, því margir eru eftirenn, sem brátt munu ráðast á okkur enn ákafar en áður, en Guði sé lof fyrir að þeir hafa hvorki spjót né boga að vopni.“ Hann sneri sér við og rendi augum yfir víkina; langt frá landi sá hann gráa hestinn synda sterklega með byrði sína. Vegna straumsins gat hann ekki synt beint yfir um, og sá Rósamunda því hverju fram fór og veifaði því til þeirra silkislæðu er hún hafði yfir sér. Þó foringi óvinanna hvetti menn sína til atlögu, héldu þeir sér í hæfilegri fjarlægð frá sverðum bræðranna, og í stað þess að gera á- hlaup svipuðust þeir um eftir steinum til að grýta þá með, en þar var ekki um annað að gera en stórgrýti sem ekki varð við ráðið. Maður sá í óvinaliðinu sem kallaður var »herra“, talaði enn á ný við túlk sinn, og hlupu þá sumir þeirra inn i runnana og komu þaðan með árarnar úr bátnum. „Hvað eigum við að taka til bragðs, bróðir?“ sagði Godvin, „Nú ætla þeir að gera útaf við okkur með árunum“. »Það vil eg ekki“, sagði Wulf, „en það skiftir núnstu hvað um okkur verður, ef Rósamunda frelsast bæði frá bárunum og ræningjunum, en héðanaf mundu þeir varla ná henni, því þegar við erum frá, eiga þeir eftir að leysa bátinn og korna sér fyrir í honum.“ Meðan Wulf var að tala, rak Godvin upp óp og rétti upp hendurnar og hneig áfram á kné sín. Einn óvinanna, er þeir hugðu dáinn, var kominn á fætur og hélt alblóðugu sverði 1 hendinni. Wulf særði hann síðan banasári eftir skamma vörn. Godvin var særður á höfð- inu og rann blóðið í augu hans og blindaði ^ann. „Frelsaðu sjálfan þig Wulf! Það er úti nm mig,“ stundi hann upp. „Nei sem betur fer er það ekki, því þá gætir þú ekki talað“, svaraði Wulf og tók yfir um hann og kysti á enni hans. Síðan greip hann bróður sinn og bar hann eins og barn í fanginu þangað sem hestarnir stóðu og lyfti honum á bak. „Þú verður að hatda þér föstum eftir megnr í faxið og hnakkinn“, sagði hann, „máske mér takist enn að frelsa þig“. Wulf hljóp á bak reiðskjóta sínum, og vafði taumnum af hesti Godvins uni handlegg sér. Ræningjarnir sáu nú hvar hestar tveir komu á harða stökki utan brúna. Á öðrum þeirra sat ungur maður Ijóshærður, með höfuð alhlóðugt og hélt sér dauðahaldi í fax reiðskjótans en á hinum sat Wulf hermannlegur á að líta; augu hans tindruðu og andlit hans var þrungið af reiði. Hann sveiflaði blóðugu sverðinu og hróp- aði nú hárri röddu, í annað sinn þenna dag herópið gamla: „Mætið d’Arcy! Mætið dauðan- aum!“ Ovinirnir ruddusl nú á móti þeim með ópi og eggjan og höfðu árarnar fyrir sér. Wulf knúði hestana áfram og þar sem þeir voru vanir burtreiðum ruddu þeir sér áfram og sóp- uðu árunum frá sér sem grasstráum. Nú blik- uðu mörg sverð á lofti og Wulf fann að hann særðist, en vissi óglögt hvar, hann brá líka sverði sínu og sá er fyrir því varð féll, en það var ekki tími til meira. Hestarnir þutu nú áfram og Godvin hékk enn á baki. Grái hesturinn var Iíka rétt kom- inn að landi hinumegin við víkina. Þeim var borgið! En fyrir augum Wulfs sló roða á alt umhverfis, honum virtist alt vera sem eldur brennandi, og jörðin ganga í bylgjum. Ópin fyrir aftan þá dóu í fjarska, svo ekk- ert heyrðist nema hófadynur hestanna, sem varð æ veikari og óskírari, og dó loks út, em myrkur og þögn féll yfir meðvitund Wulfs. Framh. A. : Hversvegna talaði presturinn svonafjarska hátt yfir gröfinni hans Mikaels sáluga? B. : Það veitti nú víst ekki af. Hann heyrði ekki svo vel meðan hann lifði.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.