Heimilisblaðið - 01.05.1915, Page 8
40
HEIMILISBLAÐIÐ
kassa. Við nánari athugun fundust þar hvorki
nieira eða minna en 29,000 krónur í banka-
seðlum.
Árið 1657 var te svo dýrt, að pundið kost-
aði um 200 krónur.
Blað eitt í Berlín hefir læknir í sinni þjón-
ustu einungis til þess að vitja þeirra kaupenda
sinna sem læknishjálpar þarfnast, auðvitað þeim
að kostnaðarlausu. Þessara hlunninda verða
þó aðeins þeir aðnjótandi, sem eru fastir árs-
kaupendur.
Það er ekki lítið sem kostar viðhald hins
tnikla herliðs, sem nú er sent til vígvallanna víðs-
vegar um heiminn. Til dæmis er hér yfirlit
yfir það, sem ein þýzk herdeild þarfnast dag
hvern til helztu lífsnauðsynja. Herdeildin telur
40,000 hermenn. Hún eyðir sem hér segir:
3000 pd. af kjöti, 1000 pd. af hrísgrjónum, 200
pd. af kaffi, og salt fyrir sömu upphæð, 6000
pd. af brauði, 2000 pd. af ýmiskonar grænmeti,
auk margra annara smærri útgjalda.
Kaupmaður einn í Lundúnum var kærður
fyrir að hafa haft opna búð á sunnudegi. Hann
var dæmdur til að greiða 10 shillings í sekt.
Hann taldi fram upphæðina í eintómum Far-
things (smæstu koparmynt, sem til er í Englandi).
Dómendurnir neituðu að veita sektarfénu mót-
töku í svo smárri mynt, og gáfu kaupmannin-
um 24 klst. frest, en að þeim tíma liðnum skyldi
hann greiða féð í stærri mynt. Næsta dag
mætti hann í réttarsalnum með Iagasyrpu í hend-
inni, og sýndi dómendunum svart á hvítu, að
samkvæmt gildandi landslögum væri heimilt að
greiða sekt í koparpeningum, sem ekki færi
fram úr 2 sterlingspundum. Þeir létu sér þetta
vel lynda, og ætluðu að veita sektarfénu mót-
töku, en þá sýndi hann þeim annan lagastaf,
Sem sýndi, að réttvísin ekki gat krafist sektar-
fjár, sem hún einu sinni hafði neitað að veita
móttöku. — Allir í réttarsalnum hlógu — nema
réttvísin sjálf.
Mjög er áríðandi, að kaupendur blaðsins
verði samtaka um það að borga blaðið skil-
víslega. Altaf eykst kaupendatala blaðsins.
Nokkrar pantanir koma með því nær hverri
póstferð, — og mörg hlý og vingjarnleg orð fær
útgefandi blaðsins frá útsölumönnum þess og
einstökum kaupendum. Og ekki verður annað
sagt, en að yfirleitt hafi kaupendur verið skil-
vísir þau 3 ár, sem blaðið hefir komið út,
treystir útgefandi að svo muni einnig framvegis
verða. — Nokkrir eiga þó óborgað fyrir árið
1914 og væntir útg. að þeir láti það ekki drag-
ast lengur. —
Kaupendur austanfjalls borgi blaðið
framvegis, eius og síðastl. ár, lil herra kaup-
manns Andrésar Jónssonar á Eyrarbakka.
FANNEY,
barnabók með myndum, 5 hefti alls, kostar 50
aura hvert. Agæt barnabók. Fæst hjá öllum
bóksölum.
BarnaMaðið „Æskan“ kemur út í Reykja-
vík mánaðarlega, 12 blöð á ári, og auk þess
sérstakt jólablað. Árg. kostar aðeins kr. 1,20.
Utg.: Aðalbjörn Stefánsson og Sigurj. Jónsson.
Dýraverndarinn kemur út í Reykja-
vík fjórum sinnum á ári í 16 blaða broti. Kost-
ar 50 aura árgangurinn en 15 aura í lausasölu.
Utgefandi Dýraverndunarfélag Islands. Fæst
hjá Jóh. Ögm. Oddssyni kaupmanni Laugeveg
63. Kaupið málgagn munaðarleysingjanna!
SKINFAXI, 16 síður á mánnuði. Flytur
myndir. Verð 2 krónur. Gefur skilvís-
um kaupendum „Þjóðfélagsfræði“, eftir
Einar Arnórsson prófessor. Ritstjóri: Jónas
Jónsson frá Hriflu.
Utgefandi og ábyrgðarmaður:
Jón Helgason prentari.
Félagsprentsmiajan.