Heimilisblaðið - 01.08.1917, Blaðsíða 3
+
j§óra l»orsteinn Jórarinsson
fæddur 29. sept 1832, dáinn 7. júní 1917.
Ei var frægt í auglýsingum
öðlings nafn, er hcr eg syng um,
en í lijartna heima þingum .
heiðursminning fögur skín.
Munu i himins mannvirðingum
nietin störfin þín.
Kennimanna sannur sómi,
sólshin yfir mannlifs blómi,
eins og vorsins vafurljómi
vcrmdir þú með kœrleiks yl.
Lék í hjartans helgidómi
háleitt undirspil.
Hér var ekki hrokans breiða
hrjósturkalda jökuleyða,
alla vildir laða og leiða
Ijóss og friðar blóma-stig.
Göfugmenskan himinheiða
hefir lágt við sig.
Þú varst einn af þessum mildu
þegnum Guðs er starfið skildu,
þeim, sem glaðir ganga vildu
glæstar jafnt sem hrörar dyr
og með kœrleiks gögnum gildu
gáfu vonar byr.
Misskilningur mannlífs alda
mörgum rétti hendi kalda,
þitt var ráðið, góða að gjalda
glaður rétta kœrleikshönd.
Breiðist það um aldir alda
yfir höf og lönd.
Ávált jafnt í orði og verki
upp þú lyftir sannleiks merki,
en löngum var hjá kóng og klerki
kœrt sig minna um reynd en orð,
Sannleiksljóminn sigursterki
signi mar og storð.
Hvar sem starfar mannsins máttur
manngœskan er reginþáttur,
því við lieim og himin sáttur
héðan leiðstu á Drottins fund.
Þar mun sunginn hélgur háttur
hvers ei gróf sitt pund.
eH'ífiazdwi' afónoson,