Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.08.1917, Blaðsíða 12

Heimilisblaðið - 01.08.1917, Blaðsíða 12
94 HEIMILISBLAÐIÐ ig minnast þess. Eg óska af alhug, að það hafi ekki verið neinn illur andi, er birti yður þennan draum, en hvernig ætti eg að færa frið, sem til þessa hefi aðeins fært með"mér bardaga og blóðsúthellingar. Farið nú, frænd- ur góðir, en ef þér viljið, þá skiljið Masondu eftir hjá mér; hún hefir ekki aðra vini. Farið og fylgi yður ást mín og blessun og dýrlinga þeirra er skulu vernda yður í bardögunum og leiða okkur saman á ný.“ Fegar Eósamunda hafði lokið máli sínu, huldi hún aftur andlit sitt með blæjunni, svo þoir sæju ekki tár hennar. Godvin og Wulf gengu nú þangað erhún atóð við hásæti Saladins, beygðu kné fyrir henni og kystu hönd hennar og kvöddu hana án þess að soldán hindraði þá. En þegar og hún bræðurnir voru farin, snéri hann sér að Hassan og prestinum, sem allan tímann höfðu setið þögulir og mælti: „Segið mér nú, sem eruð gamlir og lærðir, hvorn þessara manna prinsessan elskar? Tala þú Hassan, þú þekkir hana bezt.“ Hassan- hristi höfuðið. „Það er mér ekki nnt að segja“, svaraði hann. „Hún er of dul til þess að eg geti séð það.“ Síðan snóri hann sér að prestinum. „Þegar þessir trúleysingjar eiga að fieyja fyrir augliti hennar, munum við fá það að vita, það er að segja ef hún vill, enfyrekki“, svaraði hann, og soldán geymdi orð hans í minni. Næsta morgun beið Rósamunda við einn gluggánn á herbergi sínu til þess að sjá bræð- urna leggja af stað. Þeir voru í öllum her- klæðum, og riðu hinum ágætu hestum sínum, Eld og Reyk. Þeir stönsuðu fyrir utan hús hennar, og þar sem þeir vissu fyrir víst, að Bósamunda mundi sjá þá, þó þeir sæju hana ekki, þá drógu þeir sverð sin og veifuðu þeim í kveðjuskyni Svo riðu þeir þögulir brott og voru skjótt úr augsýn. Rósamundu óraði litið fyrir þvi, hvernig alt mundi breytast þangað til þau sæjust næst. I raun og veru vogaði hún varla að vona, að þau sæjust framar, því hún vissi vel, að þó að þeir kristnu hefðu betur i strið- inu, mundi hún verða send eitthvað burt þang- að sem þeir gætu ekki fundið hana. Hún vissi líka að ómögulegt mundi að flýja frá Damaskus, og að Saladín, þó hann elskaði bræðurna, eins og alla aðra drenglynda og hugrakka menn, mundi hann aldrei framar vilja taka á móti þeim sem vinum, af ótta fyrir því, að þeir kynnu að ræna henni, sem hann hélt að orðið gæti verkfæri til þess að veita honum friðsæla daga, það sem eftir væri æfinnar. Ennfremur mundi þessi úrsiita- styrjöld milli krossins og hálfmánans verða óvenju blóðug og hún var þess fullviss, að bræðurna mundi ætíð þar að finna sem bar- daginn yrði harðastur, því gat það vel átt sér stað, að hún hefði sóð þá í síðasta sinn. Þeir voru farnir! Jafnvel jódynurinn var dáinn út, og hún var eftir alein og yfirgefin. Hjarta hennar va’r fult af ótta fyrir framtíð þeirra, þó sérstaklega annars. Ef hann kæmi ekki aftur, hvers virði var þá lífið fyrir hana? Hún beygði höfuð sitt og grét, en þá heyrði hún eitthvert hljóð bak við sig og hún leit við, að vita hvað það var, og sá hún þá Masondu er grót einnig. „Hvers vegna grætur þú?“ spurði hún. Þá flaug Rósamundu nokkuð í hug, ný og hræðileg hugsun. Augu þeiira mættust, ogRósamunda spurði: „Hvorn?“ Borð stóð á milli þeirra, greypt perlum og fílabeini, og hafði ryk sezt á það. Masonda beygði sig áfram og skrifaði með vísifingri einn árabiskan staf i rykið á borðinu, og lagði svo höndina ofan á hann. Brjóst Rósamundu bifaðist ákaft. „Hversvegna fórst þú ekki með honum, þú sem ert frjáls?11 spurði hún. „Af því hann bað mig að vera hór, og vaka yfir þeirri konu er hann elskar“, svar- aði Masonda angurblítt, og féll í sama vet- fangi í faðm Rósamundu.

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.