Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.08.1917, Qupperneq 13

Heimilisblaðið - 01.08.1917, Qupperneq 13
HEIMILISBLAÐIÐ 95 XYIII. KAP. Bardaginn við Hattinn. Margir dagar vorn liðnir síðan bræðurnir kvöddu Rósamundu í Damaskus, er þeir heita júlínótt sátu á hestum sínum og störðu frá klettum nokkrum yfir gráu, þuru sléttuna, er nær frá Nazaret að hæðunum, er Tíberías og Galileuvötnin liggja að. Skamt fyrir neðan þá, umhverfis lindina við Seffurich, höfðu Frankarnir, er þeir voru verðir fyrir, dreift sér; þrettán hundruð riddarar, tvö þúsund fót- gönguliðs og hópar Turcopola — innfæddra ibúa landsins — vopnaðra eftir sýrlenzkri venju. í suð-austur, hér um bil tvær mílur veg- ar, sáust hin hvítu hús Nazarets-borgar, þar sem frelsari heimsins lifði og starfaði í þrjá- tíu ár. Án efa hafði hann einnig gengið yf- ir þetta sama fjall er þeir stóðu nú á. Það hafði heyrst að liðið ætti að halda áfram yfir sléttuna auðu, næsta dag og berj- ast við Saladín, sem lá. með allan sinn her við Hattinn, móti Tiberías. Godvin og bróð- ir hans töldu það óðs manns æði, því þeir höfðu séð herskara Serkja og höfðu riðið yfir auðu sléttuna í brennandi sólarhita. „Eg ætla að fara og vera á verði þarna yfir frá, en vertu hér,“ sagði hann við Wulr og snéri Eld við og reið dálítinn spotta yfir litinn ás norður á fjallið. Þar sá hann hvorki herbúðirnar né Wulf, eða nokkra lif- aadi sál, en var aleinn. Hann steig af hest- rnum og skipaði honum að vera kyrrum; gekk síðan að stórum steini og kraup á kné, °g bað með öllum kröftum hermannssálar- innar: „O, Drottinn, þú sem einu sinni dvaldir kér meðal þessara fjalla í þjóns mynd, og Bem þekkir hvað i mönnunum býr, ó, heyrðu ^Qig, eg er óttasleginn, ekki sjálfs míns vegna því mitt líf heíir svo litla þýðingu, heldur ýegna allra þessara þúsunda, er sofa umhverf- is Nazaret, þjóna þinna og meðbræðra minna Jaj og krossins vegna, og allra hinna trúuðu kór i austurlöndum. Ó, gefðu mér ljós! Ó láttu mig heyra og sjá, svo að eg geti varað þá við, því annars er ótti minn árangurslaus!11 Godvin fanst hann falla í fastan svefn;; sjón hans sljófgaðist og honum fanst alt sem 1 þoku. Svo fór að smáheiða til og skýrast,. líkt og gruggugt vatn er sezt til. Og sjá,. hann heyrði andana fara framhjá hvíslandi,. ög honum virtist þeir gráta yfir mikilli ógæfu er væri í vændum. Svo var sem blæju væri lyft frá augum hans, og hann sá lengra og lengra. Hann sá konung Frankanna í tjaldi sínu og umhverfis hann ráðsamkomu af æðstu herforingjum hans, og meðal þeirra hinn skarpvitra foringja Musterisriddaranna, og; mann einn, er hann hafði séð í Jerúsalem, og sem nefndur var Raymond af Tripolis, höfð- ingi yfir Tiberios. Þeir tóku saman ráð sín,. þangað til foringi Myjterisriddaranna dró sverð sitt i reiði og sló því í borðið. En þá lyftist blæjan og sjá! Hann sá her- búðir Saladins, hinar voldugu óendanlegu raðir tíu þúsund herbúða, þar sem Serkir báru fram bænir sínar til Allah. Hann sá tjald Saladins þar sem soldán gekk aleinn um gólf; engir af emírum hans, ekk' einusinni sonur hans var þar hjá honum. Hann var nið- ursokkin í djúpar hugsanir ogGodvin las þær. Hann hugsaði á þessa leið: Bak við mig hef eg Jórdan og Galileu-vatmð og í það verð eg hrakinn með herinn, ef farið er um- hverfis fylkingarbrjóst. Fram undan mér eru landamæri Eranka, þar sem eg á enga vini, og hjá Nazaret er aðalher þeirra. Allaheinn getur hjálpað mér. Haldi þeir kyrru fyrir, og neyði mig þannig til að 'fara yfir eyði- mörkina til áhlaups, mun her minn þynnast,. og eg er frá, og ef þeir fara á móti mér um- hverfis fjöllin gegn um land, þar sem nóg vatn er að fá og graslendi, þá getur vel farið svo að þeir sigri, en ef þeir fara yfir eyði- mörkina, eru þeir glataðir og yfirráð krossins á enda i Austurlöndum. Eg ætla að biða hér. Eg ætla að bíða---------

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.