Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1918, Síða 4

Heimilisblaðið - 01.10.1918, Síða 4
148 HEIMILISBLAÐIÐ Gcildi sönglistarinnar. Dr. Arma Howard Shaw, ein af frægustu konum Bandaríkjanna, er um undanfarin ár hefir staðið mjög framarlega í kvenréttinda- baráttunni á meðal þjóðar sinnar og skipar forsæti í landvarnarnefnd kvenna (Council of National Defence), fer mjög fögrum orðum um gildi sönglistarinnar á yfirstandandi hættutímum : »Samfélagslífið og þjóðræknis-starfsemin gætu ekki beðið nokkurt stærra tjón en það} ef að tilsögn í sönglist og söngraddarnotkun félli niður. Vald það, sem sönglistin 'hefir á þjóðfélag- ið á tímum hörmuuganna, er óútreiknanlegt. Vér getum sungið oss frjáls, ef allar aðrar leiðir lokast. — Hermenn vorir, þreyttir og þjakaðir, syngja á eyðimerkurgöngunni þjóðsöngva sina til viðhalds hugrekkinu og voninni. — En hvort mundum vér eigi, sem heima sitjum, þarfnast sömu uppörvunarinnar til að geta leyst af hendi vorn skerf, í því að vinna stríðið ? Hefir sönglistin sama gildi fyrir oss sjálf, eins og hún hefir á hugi hermanna vorra á orustuvöllum Norðuráltunnar ? Eg vildi óska, að hver einasti bær, hver einasta borg, hefði einhverskonaai sönglistarmiðstöð, þar sem fólk gæti komið saman á degi hverj- um, þólt eigi væri nema stutta stund, til sameiginlegra söngiðkana. I öllum barna- og unglingaskólum ætti söngnáminu að vera skipað á bekk með hin- um allra göfugustu þjóðræknisskyldum. Sönglistin hefir ómótmælanlegt menningar- gildi- [Lögberg]. * * ♦ Vér íslendingar erum auðugir að fögrum söngvum, t. d. sálmum og ættjarðarljóðum. Eu það er mörgum falinn fjársjóður. Söngur- inn vermir hjartað og vekur til lífs það bezta sem þar er geymt. Söngurinn rekur á dyr úlfúðina og ófélagslyndið. « • Orin og ljóðið. Út í loftið ör eg skaul, ekki vissi eg hvert hún paut, hraðara hún flaug mér frá en fest eg gœti sjánir á. Kvað eg út í loftið tjóð, pað leið á burt um hulda slóð; enginn fylgja augum má óði kveðnum flugi á. Scinna að eik mig einni bar, örina mina fann eg par, og hltjju vinar hjarta í hitti eg tjóðið all á mj. B, J. pfjddi. Draumsjón. (Smásaga). Hann var foreldrum sínum, systkinum og yfirleitt öllum, sem höfðu saman við hann að sælda, til skaða og skapraunar. — — — Móðir hans hafði fætt hann með miklum harmkvælum. En þegar hún sá í fyrsta sinni liinn efnilega son sinn, áleit hún þau harm- kvæli sér ávinning, því liún vonaði, að son- ur sinn yrði sér til gleði. En nú voru allar líkur til, að sú von mundi bregðast. Mörg tár hafði hún felt í einrúmi vegna sonar síns og oft hafði hún beðið Guð að snúa honuin á rétta leið. En alt kom fyrir ekki. Hinn »týndi sonur« sneri ekki heim, en hélt áfram á braut lastanna. Flesta lesti og klæki hafði hann tamið sér. Hann hafði gengið glæpa- götuna með ráðnum huga og sjaldan hafði samvizkan ónáðað hann. Hann hafði stolið. rænt, logið, svikið, tælt saklausar stúlkur og eyðilagt framtíð þeirra. Að eins eitt varð hann sakaður um : — morð I — — — Og ef til vill var það tækifærisskortur, sem þar réði mestu um. Lýsingin er ekki glæsileg, — en hún er sönn, og munu menn þá skilja, að

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.