Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.04.1920, Side 1

Heimilisblaðið - 01.04.1920, Side 1
Til vinar míns Jóns Helgasonar, er hann misti tvær dætur sínar, rúmu ári eftir andlát konu sinnar. Pú átlir unaðsstundir við indœl kœrleiksblóm, við blíðar barnamundir og bljúgan móður-róm, En gustur fór um grundir með geigvœn harma-él, þá blikna blómalundir, þá blœða sorgarundir, er blómin bíða hel. Hve var það sárt að vakna við veikra barna óm, og lika sárt að sakna og sjá in liðnu blóm. Pér blœða opnar undir, mér ógna sárin þín. Pín bíða betri stundir og blíðir vinafundir, þar sigursólin skín. Pú sér hvar leiðast systur og svífa gfír fjöll. Pú sér, að sjálfur Kristur í sinni hvítu höll, þeim birlist fagur, blíður og breiðir faðminn sinn, og englaftokkur fríður á frjálsum vœngjum líður og býður báðum inn. Pér biriist myndin mœra í morgunlita dýrð. — Ó, móðir milda, kœra, þin mgndin endursldrð nú breiðir faðminn fríða og fagnar dœtrum tveim, er inn til himins hliða á hvllum vœngjum liða i helgan bústað heim. Pú dýri dánumaður hve dýrðlegt er þér nú að sgrgja t Guði glaður og gráta t von og trú. Nú fgrst eg fœ það skilið er firn að höndum ber, hvað brúar geigvœnt gilið, hvað ggllir svarta þilið, — þar trúin trgggust er. Og mjúka vonarmjöllin nú mildar blóðug spor og svörtu sorgarfjöllin, nú signir friðarvor. Er sorgarggðjan svarta oss sendir beiskan koss, hvað vermir volað hjarta við vonarljósið bjarta sem trúar heilagt hnoss. Langafrjádag, 1920. Rikarðuv Jónsson.

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.