Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.04.1920, Page 3

Heimilisblaðið - 01.04.1920, Page 3
HIEMILISBLAÐI'Ð alt það bezta, sem vér getum fengið á móð- urmáli voru, án fordóma, og þar næst beztu ritsmíðar táanlegar, eftir öndvegishöfunda hinna Norðurlandaþjóðanna. Og hvað sem vér lesum, á hvaða tungum sem er, ríður á að velja góðar bækur og kenna æskulýðnum að meta glögglega, hvert gildi góðar bækur hafa fyrir heimilishamingja einstaklinganna. inningarljóS sungin við jarðarför systranna Guönýjar Jóns- dóttur og Guðrúnar Jónsdóttur, sem önduð- ust 21. og 22. marz sl., en voru jarðsettar 8. april. HEIMA. Lag: Af instu rót — A. vori koma hret og hélunætur, Þá hníga blóm og margur sáran grætur: Hin ljúfu blóm, sem lifa til að gleðja Og laða’, er sárt að verða fljótt að kveðja. Tvö lítil blóm, sem lifðu til að gleðja Um litla stund, við erum nú að kveðja; t*au spruttu hjer og vöktu vonir blíðar, En — vorhret kom og sló þær plöntur fríðar. Við tregum bros og hjal og hlátra ljetta, Ess hurfu jafnan áhjTggjur við þetta; Eg þá var ávalt ljettast Guð að lofa Er lögðust þau í faðm vorn til að sofa. En lof sje þeim, sem lætur blómin deyja, Eau lifa samt 0g hvað er þá að segja? Evi engil sinn hann ljet um leið þau bera Til landsins, þar sem sælast er að vera. þökkum við af þýðu ástargeði Hin þekku bros, hvert orð, er skóp oss gleði, Hg biðjum Guð að blessa minninguna — Pau blóm, sem hjartað ann, er ljúft að muna. ieið er sem í eyrum vorum ómi ’leð unaðsskærum, glöðum barnarómi: »Ó, verið sæl! Og þökk fyrir ástúð alla! Nú er oss Guð að brjósti sjer að halla. Ó, gleðjist pabbi, afi og ungu bræður, Því umskiftunum góður faðir ræður, Hann styrki og blessi hvern, sem að oss hlúði Og honum einum fyrir okkur trúði. í heimi er kalt, en hjer er sólblið æska, f*ví hjer skín stöðugt Drottins föðurgæzka; I dýrðarljósi, hátt í himinsölum, Við horfna, þreyða móður nú við tölum«. B. J. I KIRKJUNNI. Lag: í Jesú nafni upp stá. SlGURHÁTÍÐ sefar neyð! Páskaljós og lífsins gleði Lýsir yfir systra beði, Tendrar von á trúarleið, Englaskarar skæiúr syngja, Skipa vörð um barnagröf, Dýrðarklukkur duna’ og hringja Drottins yfir sigurgjöf. Þó að sorgin svelli’ í lund, Harmajelin hörðu dynji, Hjartað svo af trega stynji, Blæði þrútin þreföld und, Þá samt hærri huggun veitist, Heilög Ijómar vonin blíð; Sorgarfár i fögnuð breytist, Friður rennur upp um síð. Slær á hamalt hryggðarský Friðarboga’ í frelsisljóma, Fagrar trúarraddir hljóma, Sálum veitist sæla ný! Blasir nú við hryggum hjörtum Hástóll guðs, og englalið, Systur tvær í blóma björtum Brosa sælt við móðurhlið. Upp frá Jesú opnu gröf Stafar ljós á ljúfar sýnir,

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.