Heimilisblaðið - 01.04.1920, Síða 4
52
HEIMILISBLAÐIÐ
Látna vini dýrðin krýnir,
Sanna veitir sigurgjöf.
Það er huggun hreldum anda,
Himnesk lækning sárum við,
Trú og von í bikar blanda
Blessun þeirri’, er gefur frið.
Jesús lifir I Lifa þær,
Geymdar við hans guðdómshjarta,
Gleðjast þar til dagsins bjarta,
Þegar rís upp röðull skær,
Sá er vini saman kveður
Svo þeir aldrei skiljast meir,
ó hve von sú andann gleður,
Er oss hrellir dauðans þeyr.
Saman hjer nú sofa rótt
Systra lík á sama beði,
Sorgin þar til snýst í gleði,
Þegar öll er enduð nótt!
Faðir, bræður, frændur kveðja,
Fagna mitt í tregans sorg,
Að þær móður góða gleðja
Guði hjá í dýrðarborg. — Fr. Fr.
TVÖ HLUTTEKNINGARSKEYTI.
I.
ó, gæti eg sungið sólskin inn í salinn þinn!
Eg veit að oft þú grætur,
um langar og ljósvana nætur.
En Guð læknar svíðandi sárin,
hans sól ljómar skærst gegnum tárin.
Þú veizt, eftir kalda veturinn
hann vorröðul skina lætur.
Þá hlýtur þú bölsins bætur. — Vinur.
II.
Hrygð er mér í hjartans inni,
horfnar sjónum eruð mér.
Guð, er sér af gæzku sinni
glöggast, hvað oss hentast er,
ykkur heim frá holdsins sýki
himneskt bauð í dýrðarríki.
Systur kæru, sofið rótt,
sætt i Jesú, — góða nótt! — G.
ínvcr^ku IblöSin og Im^imdómurirm.
Kínversku blöðin eru í heild sinni hvorki
með né móti kristindóminum. Þau eru í einu
orði afskiftalaus af kristniboðinu, láta sér á
sama standa,
En þó eru þar blöð, sem opinberlega vinna
gegn kristindóminum og þeim má skifta í
þrjá ílokka. í fyrsta flokki eru þau, sem
vilja blása nýju lífi í kenningu Konfúsíusar
og gera hana að trúarbrögðum ríkisins. í
þeim flokki eru margir ungir menn, háment-
aðir og alvörugefnir. Þeir hafa séð, að krafli
og siðgæði hefir hniguað á seinni árum, en
kristindómurinn aftur á móti náð vexti og
viðnámi. Þeir hafa líka séð, að margir hinna
kristnu eru aðeins að nafninu kristnir og
standa þeim eigi framar að siðgæðum. Þess
vegna hafa þeir fengið óbeit á kristindómin-
um og þess vegna sett von sína til Konfúsí-
usar hins] forna spekings þeirra og kennara
(í siðfræði).
Hinn kunnasti leiðtogi þessa flokks er
Chen-Hwan-Chang. Hann hefir komið á sum-
arnámsskeiðum í fæðingarborg og legstað
Konfúsíusar, stofnað Konfúsíanskt æsku-
mannafélag og sunnudagaskóla. Hann vinnur
því á móti kristindóminum með aðferðum
kristinna manna. Hann er hámentaður og
fjölfróður. Hann fyrirdæmir kristindóminn i
nærrí öllu, sem hann ritar.
í öðrum flokki eru blöð, sem stjórnað er
af mönnum, sem hafa gengið á skóla erlend-
is og orðið þar fríhyggjumenn og guðsafneit-
arar.
Það er einkum tímaritið »Ný æska« I
Peking, sem ritað er frá þessu sjónarmiðn
Ritstjóri er einn af prófessorunum við háskól-
ann í Peking, vel mentaður maður, sem hefii-
verið að námi í Frakklandi. Tímaritið hófst
1915 og í því hafa verið margar svæsnar
árásargreinar á kristindóminn.
í þriðja flokki eru rithöfundar og blaða-
snápar. Það eru stúdentar, sem hafa drukkið
í sig skoðanir stjórnleysingja á dvöl sinni í