Heimilisblaðið - 01.04.1920, Side 9
57
HEIMILISBL AÐIÐ
Hcr er mynd aí pappirsmyllu úti i skóginum; liún býr til pappir úr tré. Myllan er búin aö mala heila skóga og svo
er^pappíriun fluttnr burt í fullhlöönum jórnbrautarvögnum. (Sjá Frumskógarnir i Noröur-Ameríku).
4
Lára.
Saga ungrar stúlku.
Eftir Vilhelm Dankau.
Bjarni Jónsson þýddi.
III.
^egarleið af vetrarnóttum (3.nóv.)lagðiLára
stað til Fjóns. Faöir liennar fylgdi henni,
að hann rak verzlun í mörgum bæjum
^ Pjóni.
Poreldrum hennar hafði komið saman um,
a®-.réttast væri, að Jörgensen sæi með sjálfs
síns augum heimilið og það fólk, sem Lára
ælti nú að vera hjá. En Lára var nú alt
annað en hrifin af þessarri samfylgd föður
síns.
Járnbrautarlestin kom til Rorup siðdegis,
en þá var svo bjart af degi, að Lára gat
fengið nokkra nasasjón af, kvernig þar væri
umhorfs; en ekki var hægt að segja, að út-
sjónin þar væri neitt sérlega lilkomumikil.
Veitingahúsið var andspænis stööinni; þar
var búið að kveykja Ijós; í kring um það
stóðu hús á stangli, öll eins í laginu og
stungu í stúf við búgarðinn, því að þar stóðu
húsin saman í langri röð.
Á búgarðinum bar mest af öllu; þar hafði
járnbrautarstöðin verið reist fyrir tíu árum.