Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.04.1920, Qupperneq 12

Heimilisblaðið - 01.04.1920, Qupperneq 12
60 HEIMILISBLAÐIÐ taka fram í fyrir honum og fá hann til að hætta þessu, en þá svaraði hann: »Lofaðu mér að segja söguna, telpa min«; gafst þeim þá færi, sem héldu niðri í sér hlátrinum að hleypa honum alveg úr kviuDum, og þó að Lára gæti ekki hlegið með þeim, þá þótti henni hálft í hvoru vænt um þetta hláturs- kast, því að það varð til þess að þagga niðri í Jörgensen, svo að hann fór sér dálítið hægra eftir það. En nú fór Jörgensen að tala um trúinál og þá varð nú Lára fyrst hrædd að marki, sérstaklega þegar hann fór að niðra öllu sem kallað er innra trúboð og taldi það lokleysu eina, með þvílikri uppgerðar-rögg. það var auðséð, að presti var skemt við að heyra til hans, enda andmælti hann ekki neínu af því, sem Jörgensen sagði, og það gaf, ef til vill, efni til þess að Jörgensen varð ófeilnari. En Lára varð eins og á nálum og óskaði þess eins, að eitlhvað yrði til að gera enda á þessu dómadags-rausi föður síns. Til allrar hamingju sló klukkan líu, því að þá voru allir á heimilinu vanir að ganga til rekkju. Jörgensen bauð góða nótt og kvaddi, því að hann ætlaði að leggja af stað í býti morg- uninn eftir. Séra Kursen var búinn að vera prestur í Hyslev í 19 ár. Hann var nýbúinn að losa sig við allar byrðar: byggingarlán, ársstyrk til fyrirrenn- ara sins í embættinu og aðrar álögur, fékk hann nú að njóta allra embættislaunanna; en samt sem áður átti hann fult i fangi með að verjast skuldum, svo að hann varð að halda tvær ungar stúlkur, aðra með 300, en hina með '400 króna meðlagi, til þess að geta haldið sér á réttum kili. Sonur hans, sem var að námi í Kaup- mannahöfn, dró drjúgum til sín. Hann var þar að nema guðfræði; en hann var gáfna- tregur mjög og féll presti það mjög þungt; samt vonaði hann, að syni sínum mundi nú takast að ná embættisprófi fyrir næstu jól. En sárast féll presti þó af öllu, að horfur voru á, að sonur hreppstjórans mundi — »kljúfa strauminn kræfur og komast án grands að landi« við þetta sama próf. Synir þeirra prests og hreppstjóra voru nærfelt jafnaldrar og ólust upp saman alt til þess er þeir voru 12 ára. Sonur prests var þá sendur til Sóreyjarskóla, en sonur hrepp- stjóra beið 'þess að hann yrði 18 ára. Þá fór hann fyrst að lesa og ganga á námskeið, þriggja ára tíma og náði þá stúdentsprófi með fyrstu einkunn, en sonur prests náði þar á móti með naumindum 2. einkunn. Svo bar fundum þeírra aftur saman í Kaupmannahöfn, og þá var það sonur prests sem hagnaðinn hafði af því, að þeir lásu saman. Nú áttu þeir báðir að taka fullnaðarpróf. t*að fór kvíðahrollur um séra Kursen, þegar hann hugsaði til þess að opna símskeytið og fá að vita endalokin; gat honum þá orðið á að gefa búgarði hreppstjórans hornauga og segja um leið: »Já, þú leikur þér að því!« Ekki var hægt að ámæla séra Kursen fyrir flokkadrátt. Hann lýsti því sjálfur yfir, að hann væri utan allra flokka. Kirkjan hjá honum var illa sótt og heldur fór það versnandi en batnandi. Engin kirkjuleg slarfsemi átti sér stað nokkursstaðar í sókninni hans, nema hvað lítið eitt var fengist við það á prestssetrinu að sauma til styrktar trúboðinu í Santhal. Ýmsum sóknarmönnum fundust orð nm, að þess háttar starfsemi væri heldur smá- vægileg, þegar þeir heyrðu getið uin andlegar hreyfingar annarsstaðar: Vakningar, helguu- arsamkomur, kristniboð og innra trúboö, söluborð til eflingar fjárhag kristilegra félaga og margt fieíra. Það var ekki einu sinm nefnt þar á nafn og því síður þekti fólk nokkuð til slikrar starfsemi. Láru leið þarna vel yfirleitt, en þótti ser þó hafa brugðist vonir. Hún hafði gert sér alt aðrar hugmyndir um prestssetur. Hún hafði auðvitað verið smeyk við eða að minsta kosti verið hikandi við að fara ó

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.