Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.04.1920, Side 13

Heimilisblaðið - 01.04.1920, Side 13
HEIMILISBLAÐIÐ 61 prestsheimili, þar sem alt of mikið andlegt líf væri í skákinni; en nú lá nærri að hana 'ðraði þess, að hún skyldi ekki heldur hafa kosið sér samastað á þesskonar heimili. Hún saknaði einmitt alls hér, sem hún hafði búist við að hitta fyrir á preslssetri. Hún þráði eitthvað betra, en hún vissi ekki hvað það var; þær samkömur, sem séra Haar hafði haldið fyrir ungar stúlkur í Kaup- Wannahöfn, höfðu ekki alveg farið fram hjá benni. Henni geðjaðist þegar illa að því, hve kirkjan var slælega sótt, svo rúmgóð og fög- Ur sem hún þó var; guðsþjónustan sjálf var köld og áhrifalítil. Það var eins og henni fyndist það á sér, að hún gæti engu hljóði UPP komið, þegar farið var að syngja. Það var eins og alt Iíf lægi undir fargi. En hún vildi svo fegin syngja, syngja af allri sál og buga. Séra Kursen var þó eiginlega góður prédikari °g gat verið mælskur; en hann talaði altaf f'I skilningsins, en aldrei til hjartans. Pré- dikanir hans voru líkastar fyrirlestrum. Hann var vanur að skifta hverri prédikun I 4 aðalkafla, og hverjum kafla aftur í smærri þætti; út af þessari reglu brá hann sjaldan. Presti fanst með sjálfum sér, að hann gæti hrósað sér af þessari ræðugerð. Og hann var lika upp með sér af því, að hann hafði getað Haldið sóknarbörnum sínum ósnortnum af °llum hreyfingum utan að. Vilhelm Beck hafði ekki einusinni náð þar uokkrum tökum, þótt hann hefði komið Þangað. Þegar hann sá, að aðrir prestar létu til- leiðast og leyfðu öðrum hiklaust að ferðast um sóknirnar og gáfu kirkjur sínar þeim á vald °g sjálfa sig jafnvel líka, til þess að halda Þur samkomur Grundtvigssinna eða fyrirlestra eða trúboðsfundi, þá þakkaði hann Guði, að liann væri ekki eins og aðrir menn. En það var þó heiður, sem enginu gat af ^onum skafið, að hann var nú í 19 ár bú- 1Qu að standa á verði ’fyrir því, að nokkuð aUnarlegt kæmist þar að; honum hafði tekist ‘Ueð lagni og hyggindum að bægja því öllu frá sófnuði sínum: lýðháskólum, safnaðar- húsum, trúboðshúsum og öllu þar að lút- andi. En í raun réttri hafði hann ekki útilokað það, heldur haldið því niðri. Og hann vissi ekki, að brytt hafði á mörgu og meiru en hann hugsaði í fyrstu og nú beið það einungis þeirrar stundar, að því yxi afl og djörfung til að brjótasj: fram, svo að þar mátti kveða: »Og rokviðrið nálgast fyr en nokkur veit af«. Fyrir tveimur árum hafði ungur læknir, Dalby að nafni, sezt þar að í sókninni. Hann hafði kappsamlega tekið þátt í kristilegu stúdentahreyfingunni, bæði sem* stúdent og kandídat og verið kristilegu félagi ungra manna hin mesta stoð og stytta. Líf silt með Kristi gat hann nærfelt rakið til þeirra ára, er hann gekk til prestsins fyrir fermingu; en eigi komst hann að fullu til lifandi trúar fyr en ári síðar en hann varð stúdent, sérstaklega við langvinna sjúkdóms- legu elskaðrar móður sinnar. Þegar hann var orðinn kandidat, þá hafði hann í byggju um hríð að gerast kristniboði sem læknir; en honum þótti heilsa sin svo veil, að hún væri því til fyrirstöðu. Af sömu ástæðu hætli hann við að leggja stund á lækningar í Kaupmaunahöfn, og leitaði heldur upp í sveit, þar sem minna var að gera. í sókn séra Kursens hafði hann nægilegt að starfa, og þar hefði hann kunnað vel við sig að öllu leyti, ef hann hefði þar ekki átt heima í »ríki hinna dauðu«, andlega dauðu, eins og hann komst að orði, sárhryggur út af því að svo skyldi vera. Á næstu jólum var hann búinn að vera þar tveggja ára tíma. Á þeim árum hafði hann því sem næst ekkert átt við prestinn saman að sælda, né fólkið hans. Prestur hafði heimilislæknir og hann sjálfur og hans fólk vildi engan annan lækni hafa. eins og eðlilegt var. Dalby læknir var ókvæntur og stundum — það játaði hann sjálfur — vildi hann gjarna eiga sér heimili, þar sem hann gæti

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.