Heimilisblaðið - 01.04.1920, Qupperneq 16
64
h Eji m;i l i sfB l a ð;i'ð
Íkuggíiá
í hinni gömlu kunnu borg Avignon (frb.:
avinjong) í Suður-Frakklandi má ennþá sjá
rústir af höll mikilli, sem þar var á fyrri
öldum og þá kemur mjög við sögur, sér-
staklega sögu rannsóknarréttarins og svo
siðar sögu stjórnarbyltingarinnar frönsku. —
Það má sjá það ennþá greinilega, að ein
álma byggingarinnar hefir verið sprengd upp
og er til um það saga sú, er hér fer á eftir:
Árið 1441 hafði ungum háttsettum embætt-
ismanni páfans orðið það á að styggja
nokkrar tignar stúlkur í Avignon. Ættingjar
þeirra hefndu sín með því að limlesta hinn
unga geistlega embættismann. Fyrst sór hann
þesss eið, að hann skyldi hefna sín, en er
frá leið, leit svo út, sem hann helzt vildi
gleyma þessum atburði. Hann fór aftur að
umgangast óvíni sína og þar kom, að sætt
var gerð. Daginn, sem sættin var undirskrif-
uð af báðum aðilum, var efnt til veizlu mik-
illar í höllinni og þangað boðið öllum þeim,
sem við málið höfðu verið riðnir. — Þegar
hátíðahöldin stóðu sem hæst, voru gerð boð
eftir gestgjafanum og sagt, að úti biði sendi-
maður frá páfanum, sem hefði erindi við
hann. — Að tveimur mínútum liðnum sprakk
hallarálman í loft upp. — Hefndin var fram-
kvæmd.
Nú eru peningar lítilsvirði í Rússlandi, en
ekki var það betra á tíma frönsku stjórnar-
byltingarinnar 1789, þá kostuðu einir skór
6000 franka og eitt smjörpund 12000 franka.
Nýjast meðalið við sjóveiki er það, að sýna
lifandi myndir um borð. Þegar storma tekur
og sjóveikin fer að gera vart við sig, safnast
allir saman i stærsta sal skipsins og þar eru
sýndar lifandi myndir, t. d. af fögru lands-
lagi eða þá hlægilegar skopmyndir. — Þetta
kvað vera reynt á ýmsum stórum farþega-
skipum erlendis og hepnast vel. — Þar eru
»Bíóin«, eftir þessu, þarfari en í landi.
í Vínarborg er nú verið að búa til axla-
bönd úr hinum gömlu og dýru riddarabönd-
um frá keisaratímunum.
í ráði er að bygt verði innan skamms í
Lundúnaborg miklu stærra gistihús en áður
hefir þekst; jafnvel stærra en heimsfrægu
risa-gistihúsin amerísku. — í þessu Lund-
úna-gistihúsi eiga að vera 1000 herbergi og
þar eiga ekki þægindin að vanta, t. d. á að
útbúa stóra sundlaug og skautasvell o. fl*
þvíumlíkt inni í sjálfu gistihúsinu.
í nánd við Hamborg er gömul jarðgas-
uppspretta, sem fyrir löngu er tæmd oröin.
Nýlega hefir verið borað eftir gasi þar ná-
lægt og fanst þar ný uppspretta, sem streymir
út með miklum krafti.
Þegar í stað er búið að koma gasstöðvum
borgarinnar í samband við þessa nýju bjálp'
arlind, sem menn búast við að geti komið
í stað kolanna, en af þeim hefir Hamborg
haft lítið nú á síðustu tímum.
Nú lítur svo út, að minsta kosti eins og
stendur, að Þjóðverjar þurfi ekki á herút-
búnaði að halda í framtiðinni, þessvegna
hefir hinum nafnkunnu Krúppsverksmiðjum
verið breytt í verksmiðjur, sem búa til járn-
brautarvagna.
Borgun íyrir blaðið.
Nú kæmi útgef. sannarlega vel, ef alhr,
sem hægt ættu með það, sendu borguniö®
— 5 krónur — með næstu póstum.
Kaupendnr blaðsins austanfjalls borg1
til Andrésar Jónssonar, kaupm. á Eyrarbakka,
þar sem ekki eru innheimtumenn í hrepP'
unum fyrir blaðið.
Útgefandi: Jón Helgason, prentari.
Prentsmiðjan Gutenberg.