Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.06.1934, Síða 9

Heimilisblaðið - 01.06.1934, Síða 9
HEIMILISBL AÐIÐ 91 f meðan. Nú krefst ég þess, að þér verð- 1(5 hér kyrr og hafist ekkert að, meðan Vlð erum í burtu. Viljið þér lofa mér því?« »Nei,« svaraði hún. Hann vissi, að fortölur mundu vera ai'angurslausar. »Mansor!« sagði hann í skipunarróm og vatt til höfðinu. »Taktu ®trákínn þarna og bittu hann. Ég treysti honum ekki, meðan við erum í burtu.« Þrælavörðurinn fleygði frá sér pappírs- vindling, sem hann var að reykja, og labb- aði yfir að úlfalda sínum. Ilann kom aft- ur að vörmu spori með sterkleg handjárn. Caverley skoðaði þau gaumgæfilega. Pau voru öll ryðbrunnin, og höfðu sennilega verið notuð dyggilega öldum saman af tug- 1,111 þrælakaupmanna og böðlum þeirra. Bó sat tvovega á úlfalda sínum, sem lá á hnjánum. Hún hélt vakandi auga með þeim báðum. Caverley tók við járnunum og opn- aði þau með þungum lykli, er fylgdi þeim. »Viljið þér nú lofa því að vera kyr hérna?« spurði hann. >>Mér dettur það ekki í hug,« svaraði hún hrjózkulega. Það komu krampadrættir í úlfliðstaug- arnar á Bó, er Caverley greip fast utan handleggi hennar, en það var líka öll sú mótspyrna, sem hún þorði að gera. Eins °g nú horfði við, hafði hann bæði töglin °g .hagldirnar. Hvorugur þorparanna tveggja, sem stóðu hjá og horfðu glottandi a> myndu hika við að kyrkja þræl, ef um það væri að ræða. »Þá verðið þér líka að kefla mig!« sagði hún titrandi af bræði, svo að hún gat varla homið upp orði. Hann smeygði öðrum járnklafanum upp fyrir hnýttan hnefa hennar, smelti honum saman og sneri lyklinum. Klafarnir voru ^estir saman með stuttri hlekkjafesti. Cav- ei'ley smeygði nú hringnum gegnum söð- ulbogann og síðan upp á hinn úlfliðinn á Bó. »Þessir náungar eru alt of langt í burtu H1 þess að geta heyrt í yður, þó að þér oskrið eins og vitfirringur,« mælti hann. »Þér getið bara byrjað á söngnum!« Síðan rak hann tjóðurhæl niður í sand- lrm með riffilskefti sínu og hnýtti taumn- urn þannig, að úlfaldi Bó gat með engu móti losnað. Ali Móhab tjóðraði hina úlf- aldana á meðan. >>Eg ætla að láta yður vita það, hrein- skilnislega, að ég sætti mig ekki við þetta hérna,« sagði Bó og beit saman tönnunum. »Eg ætla mér að láta Carl vita, að ég er hérna, og leita verndar hjá honum.« Caverley ypti öxlum og sneri sér frá henni. Hann var orðinn uppgefinn á þvi að telja um fyrir henni og hafði nú ásett sér að gera það eitt framvegis, sem hon- um sjálfum fanst réttast, án þess að ræða um það við hana eða að reyna að skýra fyrir henni tilgang sinn og áætlanir. Móhab hafði fleygt af sér skikkjunni, til þess að hafa frjálsari hendur. Arm- vöðvar hans voru eins og brúnir kaðal- hnútar. Hann opnaði slíðrin utan um bog- sverð sitt. »Við mætumst hérna aftur, þegar við erum búnir að kála hver sinum náunga,« mælti hann eins og til hughreystingar við hina. Úlfaldasveinarnir, er drepa átti, til að hefna Hassans og Nurda, sátu á hækjum sínum í sandinum vinstra megin við salt- tjörnina. Lontzen sat í brekkunni hinum megin tjarnarinnar. Caverley varð því að fara í alt aðra átt en Móhab og félagi hans. Alí Móhab hvarf yfir sandölduna og Mansor fór rétt á eftir honum. Caverley tók eftir því, að það var mesti ólundar- og gremju-svipur á andliti þrælavarðar- ins. Mansor var sýnilega alls ekki hrif- inn af því að vera í fylgd með eins strong- um og kröfuhörðum náunga og Alí Móhab. Caverley sjálfur var heldur ekki hár í hattinum, er hann skreið áleiðis til hægri. Hann hafði dregið bogsverð sitt úr slíðr- um, meðan hinir voru viðstaddir, og próf- að eggina með þumalfingri, til að sýna með því grimd sína og vígahug. Alí Móhab kinkaði kolli til hans kumpánlega, er þeir skildu, eins og þeir væru hugheilir sam- herjar, sem þektu hvor annan og skildu til hlítar. Til þess að missa ekki í áliti hjá þessum gamla eyðimerkur-gammi, er bæði var beztur og verstur allra manna Tagars, varð Caverley að koma aftur með höfuð hvíta mannsins, eða að minsta kosti leggja sig allan fram um að ná því, svo eigi væri um viljann að villast. Úlfaldasveinar Zaads sátu um 50—C0 metra lengra undan en Lontzen. Caverley myndi því ná til hans á undan hinum. Hann skreið áfram sólskinsmegin í sand- öldunni, sem bar á milli hans og þeirra, er í tjörninni skvömpuðu. Andrúmsloftið var glóðheitt og gerði manni þungt um andardráttinn. Það var eins og fyrirboði

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.