Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1959, Side 14

Heimilisblaðið - 01.05.1959, Side 14
átt að sjá mig. Þegar ég kom til New York og hélt að ég ætti að giftast Kára, þá kom hann að vísu og tók á móti mér og bauð mér út að borða. En þegar við vorum kom- in að ábætinum sagði hann með rödd eins og hann væri að panta kaffi: „Þú mátt ekki vera leið yfir því, María, en það er búið á milli okkar. Ég hef hitt stúlku frá OHIO, sem . . .“ og svo framvegis.“ Elín andvarpaði. ,,Það lagast, þegar þú færð eitthvað að gera,“ sagði María. ,,Á morgun skal ég tala við konu, sem ég þekki, sem veitir kjóla- verzlun forstöðu. Og á meðan við tölum um það, þá finnst mér að þú ættir að eyða dá- litlu af peningunum til að kaupa föt fyrir. Það er mjög mikilvægt að vera vel klæddur í þess konar atvinnu. Þú átt rúmlega fimm hundruð dollara. Eigðu þrjú hundruð og eyddu tvö hundruð til að kaupa föt fyrir. Þú getur fengið góðan fatnað fyrir tvö hundruð dollara. Þú getur annars fengið keyptan kjólinn, sem þú varst í í gær. Þú færð hann á heildsöluverði.“ „Æ, þakka þér fyrir,“ sagði Elín glöð. „Það vil ég gjarna. María, viltu hjálpa mér við að velja föt? Þú veizt hvernig maður á að klæða sig hér. Um leið og ég sá þig í lestinni, varð mér ljóst að eitthvað væri bogið við minn klæðnað. Ég verð að fá mér eitthvað nýtt, eitthvað eftir nýjustu tízku, en ég rata áreiðanlega aldrei í búðirnar hér. Ég hef ekki hugmynd um hvert ég á að fara.“ „Ég skal hjálpa þér,“ lofaði María. Hún leit rannsakandi á Elínu. „Þú hefur þó ekki í huga að reyna að vinna ást Péturs aftur?“ spurði hún snöggt. „Nei, nei, það er alls ekki þess vegna,“ sagði Elín alltof áköf. „Ég ætla að reyna að gleyma Pétri. Ég skal gera allt sem ég get, til þess.“ María var ekki sannfærð. „Ertu viss um það?“ spurði hún. „Mig mundi auðvitað langa til að hitta hann einhvern tíma,“ sagði Elín hæglátlega, „þegar ég væri betur hæf til þess — þú skil- ur, þegar ég veit að ég er vel klædd og hárið rétt greitt. Mig myndi langa til að hann sæi, að ég væri ekki lengur sama litla sveita- stelpan, sem hann áleit mig vera, og sýna honum, að mér væri alveg sama um hann.“ „En þér er ekki sama um hann?“ spurði María þrákelknislega. Elín andvarpaði. „Nei .. . ég er hrædd un1 að svo sé ekki.“ ★ v Elín sagði við sjálfa sig, að maður gseÞ haldið, að maður væri í Amestown en ekk1 í New York, þegar hún fékk sér göngu efttf hádegið, á meðan María var önnum kafin við teikniborðið, og kom auga á Hrólf May' ward í fólksmergðinni. Það er að segja, hana kom auga á hana fyrst. Það var yndisleg4 veður, reglulega fagurt septemberveður og hlýindi í loftinu, og Elín var í brúna kjólH' um nýja og með hatt, sem María hafði hjálp' að henni að kaupa um morguninn. Hrólf1 fannst hún vera með yndislegustu stúlkua1 sem hann hafði séð. Elín sá hann, þegar hann gekk brosand1 til hennar. „Góðan daginn, ungfrú Hallowell." „Hr. Hayward," sagði hún. „Góðan dag' inn — og — og þökk fyrir síðast.“ Hún ekki gleymt því, að hún átti það honum að þakka, að hún vann fimm hundruð þrjátlU og fimm dollarana. „Það var gaman að hitta yður,“ sag^1 Hrólfur. Hann minntist ekkert á það, hann væri búinn að rölta í nágrerininu a annan tíma í von um að hitta hana e®3' „Viljið þér drekka tebolla með mér?“ Elín ætlaði að fara að segja: „Nei, þakka yður fyrir,“ en tók sig á. Hún varð að reyUa að vinna bug á óframfærni sinni. Hún átb ekki við hér í New York, og það var heldur enginn, sem bjóst við því af henni. Og 1 staðinn fyrir sagði hún: „Kærar þakkir, það vil ég gjarna.“ „Jæja,“ sagði Hrólfur, þegar þau sá*u t móti hvort öðru við borð undir sóltjai uppi á þaki veitingahúss, „hvernig gengur' Hafið þér fengið eitthvað að gera?“ Elín hristi höfuðið. „María hefur lofað að hjálpa mér,“ sag 1 hún. „Hún heldur að hún geti ef til vill vegað mér atvinnu." „Við hvað, með leyfi?“ Elín hikaði aðeins. „Sem sýningarstúlk3’ held ég,“ sagði hún og flýtti sér að b®6*'3 við, „í kjólaverzlun." 102 heimilisbla

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.