Heimilisblaðið - 01.05.1959, Page 36
eftir í eldfast fat. Léttsöltuð rauðsprettu-
flökin eru rúlluð saman og sett ofan á baun-
irnar, svo er lok sett yfir og rétturinn aðeins
látinn mauka í ca. 10 mín. Ef það myndast
of mikill vökvi, er honum hellt af, áður en
uppstúfnum er hellt yfir.
Það er búinn til aspargusuppstúfur, og við
er hrærður eggjablómi. Þessum uppstúf er
hellt yfir fiskinn. Rétturinn er vel hitaður,
og áður en hann er framreiddur, er rækjum
stráð yfir. Rúnnstykki eru borin fram með
þessum rétti.
★
Ég veit að þessir „potta“-réttir eru ekki
sérlega ódýrir hversdagsréttir. En einstaka
sinnum langar húsmóðurina til að reyna eitt-
hvað nýtt og skemmtilegt, það léttir skapið
og eiginmanni og börnum þykir vafalaust
skemmtileg tilbreytingin.
SPEGLAR OG SNYRTIBORÐ
í síðasta blaði skrifaði ég ofurlítið um herbergi
handa ungum stúlkum. Eitt má ekki vanta í her-
bergi heimasætunnar og það er spegill! Aldrei á æv-
inni er eins löngum tíma eytt fyrir framan spegilinn
og þegar maður er 15—20 ára. Hér eru tvær uppá-
stungur.
Nýr „rammi“ utan um gamlan spegil, úr sama
efni og gardínurnar t. d., er skemmtileg endurbót
Faldið mátulega breiða lengju, þannig að hún hylur
spegilkantinn bæði að framan og aftan. Dragið síð»u
teygju í gegnum faldinn báðum megin og set]10
„rammann“ síðan um spegilinn.
Hér er ekkert athugavert við spegilinn, en hilÞ0
undir honum er gamall bakki, sem er málaður upf
og festur með vinkilhornum í vegginn. Merkilegr9
þarf það ekki að vera til að prýða herbergi heima'
sætunnar.
„Hvaða bolla eða glas á ég ?" heyrir maður oft spur '
þegar staðið hefur verið upp frá borðum og a&&
sezt að. Með varalit er gott að merkja leirtau, skn
ið eða merkið á glösin eða bollana með honum.
Verður barinn
Skósmíðanemi gat aldrei gert húsbónda sínuiu Jjj
hæfis og fékk jafnan löðrung fyrir hvað eina, se ^
hann gerði. Einn dag kemur hann æðandi inU
vinnustofuna og grætur.
Skóarasveinninn: „Hvað gengur að þér, drengur •
Drengurinn: „Konan húsbóndans er nýbúin 9
eignast tvíbura."
Sveinninn: „Hvað kemur það þér við?“ ^
Drengurinn: „Jú, mér verður kennt um það> ^
ég verð náttúrlega barinn fyrir það, eins og 9
annað."
HEIMILISBLA015
124