Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1976, Qupperneq 4

Heimilisblaðið - 01.01.1976, Qupperneq 4
veitt manni. Við þörfnumst þessarar innsýn- ar, vegna þess að við skrifum og myndskreyt- um bækur um villta fugla og spendýr. Þess vegna bjóðum við aðalsöguhetjunum að dvelj- asf hjá okkur um skeið, í livert sinn sem við byrjum á nýrri dýrabók. Sumum kann að finnast það nokkuð óvenjuleg og djörf aðferð við að setja sig inn í venjur og hugsanahátt dýra, en það er þó sú aðferð sem árangurs- ríkust er. Mér lærðist hvernig það væri að sjá í myrkri — með hjálp eins af gestum okkar, refsins Fulvu. Á hverju kvöldi léku þau Jean og Fulva úti í garðinum, boltaleik með gúmmíbolta, og þarna úti var dimmt eins og í kolakjallara. Það var fullkominn einleikur, því að Jean gat hvorki komið auga á Fulvu né boltann. Votri snoppu var stungið í lófa Jean og boltanum þrýst í greipina. Síðan kastaði Jean honum. Eina hljóðið sem heyrð- ist var þegar boltinn kom niður á jörðina. En andartaki síðar var vota snoppan aftur komin með boltann. „Ég starei og starði, en gat ekkert séð nema myrkur. En jafnframt vissi ég, að leikfélagi minn gat ekki aðeins séð mig, heldur einnig boltann. Það kom mér til að skynja á ónota- legan hátt takmarkanir mínar“, segir Jean, þegar hún minnist þess arna. Á daginn lá Fulva og svaf inni í arninum okkar. Hún notaði hann sem greni, og það var ekki fyrr en með kvöldinu að refseðli hennar vakti hana til dáða. Þá smaug hún um húsið, hljóðlaust eins og skuggi, og leit- aði að Jean. Þegar hún fann hana, heilsaði hún henni á þann hátt sem refur auðsýnir ástúð sína og hollustu. Fyrst danglaði hún í áttina til hennar með mjúkum loppunum, í von um að Jean vildi „boxa“ á móti eins og raunverulegur yrðlingur. Eftir nokkrar þannig Iotur stakk Fulva snoppunni í hár Jean og dró burtu allar hárnálarnar og kambinn með skörpum tönnunum. Við erum þeirrar skoð- unar, að þetta hafi Fulva gert sökum þess að hún hafi álitið þetta vera þyrna og loðgras, sem refum finnst sjálfsagt mjög óþægilegt að festist í feldi þeirra. Þegar öllu þessu var lok- ið, hrifsaði Fulva í pilsið á Jean og dró hana með sér út í garð til að leika. Fulva leið aldrei af rangsnúnum kynferð- ishugmyndum eins og gæsin lét svo greini' lega í ljós, enda hramsaði Fulva eftir öllum karlmönnum — líka eftir John —, en lék sér að konum. John þótti fyrir því, að ref- urinn áleit hann „óvin“, og náði ekki gleði sinni fyrr en um vorið þegar spörhauksstegg' urinn Falco varð ástfanginn af honum! Steggurinn gerði hosur sínar grænar fyrlf John eftir öllum bestu reglum fuglaheimsins- Hann áleit eldhúsið, þar sem hreiðurkassinn hans var yfir dyrunum, sem yfirráðasvæði sitt og varði það með kjafti og klóm gegn öllum þeim, sem reyndu að ryðjast þangað inn einkum gegn Jean! Ef hún nálgaðist dyffíílX' kom Falco æðandi á móti henni með útspred' ar klærnar. Afleiðingin varð sú, að J°'in varð að taka að sér að sjá um matseðilinn- og að þau skötuhjúin höfðu eldhúsið út a fyrir sig. Á meðan kartöflurnar steikt' ust á pönnunni steig Falco bónorðsdansinn- hann blakaði vængjunum, sló til höfði og ra^ upp mjúk barkahljóð. John svaraði með Þvl að rétta fram hendurnar og tala við fuglinn- Ástarjátningar af þessu tagi ollu því, al> Falco varð sem rafmagnaður, þaut um a'1 eldhúsið, blakaði vængjunum allt hvað af tr)k og söng. Þannig gekk þetta í heilan mánuð- Þá fengum við kráku-unga í húsið, og Fal°0 sveik John og hvarf á vit síns eigin eðlis. Sonur okkar litli skírði krákuna „Göngugöt una“, því að hún var jafn hávær og göngu gata í stórborg. Unginn óx og þreifst ve^’ og brátt varð hann einráður í húsinu. morgninum flaug hann út í glugga, settist a höfuð Johns og tilkynnti að nýr dagur v:crl risinn. Síðan belgdi hann sig út af öllufl* þeim mat, sem við vorum ekki nógu ráðagoc> að komast yfir sjálf í tæka tíð. LeikfönS barnanna áleit hann réttmætan erfðahlut sinn- Dag nokkurn kom dóttir okkar grátandi inn og sagðist ekki vilja vita af þessari kráku meir — hún hefði tekið alla reitina úr púslu spilinu hennar og falið þá uppi í tré. H E I M I L I S B L A Ð 1 V 4

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.