Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1976, Síða 5

Heimilisblaðið - 01.01.1976, Síða 5
í’egar skólinn hófst, fylgdi hún börnunum þangað sem strætisvagninn nam staðar — fótgangandi! Auðveldara hefði verið fyrir ^ana að fljúga, en krákan er mjög hermin fuSl. sem gerir eins og aðrir gera; þar af er dregið orðið hermikráka. Og eini hópurinn 'Seni hún þekkti, hann gekk á tveim fótum; þess vegna spígsporaði hún niður götuna á Undan þessum hóp, greip upp smásteina og ^astaði upp í loftið um leið. Fyrir kom, að hann goggaði í þá sem framhjá gengu og h^ópaði „halló“ hásum rómi, eina orðið sem 'lann kunni. Þegar börnin voru komin upp í Vagninn flaug hann heim til Jean, sem stóð V|(X> uppvaskið, og tilkynnti henni, að hann hefði séð um að skila börnunum á réttan stað hcilum og höldnum. En ef hann reyndi hins Vegar að hjálpa til við uppvaskið, tók Jean aun ofur einfaldlega og setti hann útfyrir. ^íðan þótti henni réttara að fara og telja Sllfurborðbúnaðinn. ^egar komið var fram á haust urðu villt- ar krákur varar við Göngugötuna og tóku UPP þann sið að vekja allt nágrennið klukkan ‘uirn á morgnana með því að garga eftir fé- agsskap hennar. Morgun einn snemma yfir- ®af þessi gestkráka síðan heimili okkar í y*gd þessa aðkomuhóps og sneri ekki til okk- ar aftur. ^estir okkar geta allir komið og farið þeg- ar þeir vilja. Það er skoðun okkar, að ef þeir Ve|ja sjálfir þann tíma og kringumstæður sem jSe'r vilja til að hverfa á brott, þá séu þeir herir um að sjá fyrir sér upp á eigin spýtur. firleitt fara þeir á brott á vorin eða á austin — á þeim tíma þegar eðlishvötin SefUr tengsl þeirra við mannveruna á hakann °8 fær þá til að leita burtu, jafnvel þótt þeir Seu því óvanir að vera úti í náttúrunni. við gætum þess að laða gesti okkar til kar á meðan þeir eru enn það ungir, að ^erhver umönnun gerir þá hænda að okkur. egar ekki þarf lengur að sjá þeim fyrir , .öl °g þeir hafa sigrast á frumstæðasta ótta jaipar- og getuleysis, þá sleppum við þeim lrleitt lausum, í von um að þeim finnist lr vera svo bundnir okkur, að þeir haldist ---------------- kyrrir við í húsinu og garðinum. Þau dýr, sem við höfum haft mesta gleði af og gagn, eru þau sem við höfum getað fylgst með í skóginum til að sjá hvernig þau spjara sig úti í náttúrunni. Við höfum farið í fiskveiði- túra með þvottabirni (þeir veiddu nú ekki nema smáseiði) og synt undir yfirborði vatns með mörðum (þeir geta stillt sig um að vera blóðþyrstir — t.d. þykir þeim gaman að því að leika sér með smásteina undir yfirborðinu, alveg við botninn). Sum dýrin er beinlínis erfitt að losna við. Þannig settum við óþekkan þvottabjörn út í skóginn fimm sinnum — þegar við komum heim, sáum við tlltaf hvar hann var kominn á undan okkur og búinn að éta upp úr syk- urkarinu eða rífa niður veggteppin. Við vor- um að tapa okkur af illsku, en þá var það eitt febrúarkvöld, að kvenþvottabjörn átti leið framhjá — og við höfum hvorugt þeirra séð síðan. Okkur hefur lærst að hagnýta eðlilegar til- hneigingar dýranna. Þvottabjöm laumaðist eitt sinn á brott með bíllyklana okkar og klifraði með þá upp í tuttugu metra hátt tré. John var farinn að binda á sig klifurskóna, en minntist þess þá að þvottabirnir draga nafn sitt a fþví, hversu gaman þeim þykir að skola fæðu sína og ýmsa smáhluti í vatni. Jean setti því þvottabalann út á borð í garð- inum og tók til að busla með höndunum í vatninu. Óðara kom sökudólgurinn niður úr trénu með bíllyklana í kjaftinum, stökk að balanum og kastaði þeim í vatnið. Síðan höf- um við getað sparað okkur margt ómakið með því að busla í þvottabalanum í hvert sinn sem einhver þvottabjörninn -— en af þeim höfum við haft 17 alls — hefur læðst burt með eitthvað, sem við máttum ekki án vera. Okkur hefur auðnast að reynast mörgum dýrum hjálpleg, en öllum þvottabjörnunum höfum við verið sannkölluð hjálparhella. Næstum hver einasti þvottabjörn, sem fær einhverja nasasjón af heimsmenningunni, verð- ur óðara sannfærður um, að mannskepnan sé til þess eins gerð að auðvelda þvottabjörnum lífsbaráttuna. Tökum rúmið sem dæmi. Kvöld ímilisblaðið 5

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.